Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.1984, Page 6
6 DV. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER1984. M Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Hvers ðskarðu þér ■ jélag'jöf? Hvaða jélagjöf þðttl þér vænst um aö fá? Allir eiga sér einhverjar óskir um hvað þá langar til að fá í jólagjöf. Allir eiga líka minningar um góða gjöf eða gjafir sem þeir hafa fengið. Við bregðum út af venju í dag á neytendasíðunni og skeytum ekki um verðlag eða heimilisrekstur og förum beint i jólaskapið þvi þetta er síðasta siðan okkar fyrir jól. Við lögðum tvær spurningar fyrir nokkra þekkta íslendinga. Að vísu svöruðu ekki allir sem við leituðum til, en þessir svöruðu okkur og kunnum við þeim þakkir fyrir. Vonandi verður öllum að ósk sinni. Við óskum ykkur öllum, lesendur góðir, GLEÐILEGRA JÓLA. A.Bj. og J.L Salome Þorkels- dóttir: Vissi ekki að svona mikil hlýja og vin- semd væri til Ég óska mér bókarinnar hennar Auöar í Gljúfrasteini. Hvað varöar seinni spurninguna um hvaða gjöf mér hafi þótt vænst um er svo- lítiö erfitt að taka fram eitthvað sérstakt. Mér þykir alitaf vænst um gjafirnar sem litlu barnabörnin mín gefa mér, gjafir sem þau hafa jafnvel búið til sjálf. En mig langar að nefna eitt. Fyrir ellefu árum varð ég fyrir því óhappi að lenda í bílslysí í desemberbyrjun og kom heim af sjúkrahúsinu rétt fyrir jólin. Þá fékk ég sendingar frá hinum og þessum, fólk sendi mér bæöi gjafir, af jólabakstri heimila sinna og kveöjur. Það fylgdi þessu svo mikil hlýja og vinsemd að ég hefði ekki trúað að svona nokkuö væri til og því vil ég nefna það sem mína eftirminnilegustu jólagjöf. ÞórarinnJ. Magnús- son: Vantar skíðagræjur „Mig vantar skíöagræjur svo að ég geti elt konuna upp á fjöll. Hún á skíðaútbúnað og fer mikið á skíði en ég hef aldrei stundað þá íþrótt,” sagði Þórarinn Jón Magnússon, rit- stjóri nýja Luxus-tímaritsins. — Nú, lúxusmenn biðja ekki um lítið? „Nei, maður biður nú ekki bara um bækur nú til dags. Annars þarf ég að byrja á aö fara á skíðanámskeið því ég held að ég verði ótta- legur klaufi ef ég fæ alit í einu fínar græjur.” „Hvað mér hefur þótt besta jólagjöfin, ja, nú vandast málið. Ætli mér hafi ekki þótt mest gaman að fá allar stóru bítlaplöturnar á einu bretti hérna eitt árið frá frúnni minni. Ég held þær séu um tuttugu. Þær hafa stytt mér marga stundina og er ég enn að hlusta á þær. — Bítlamir eru alltaf vinsælir.” JI Bryndís Schram: Dýrmætast að gefa öðrum gjafir Ég myndi óska mér íslensks ljóðaúrvals sem Kristján Karlsson hefur valið og kemur út hjá Almenna bókafélaginu. En ef ég ætti að vera alveg ærleg þá myndi ég óska mér peninga því ég hef aldrei áður verið jafnblönk og nú. Þá gæti ég kannski gefiö öðrum eitthvað og það þykir mér mikils virði. Varðandi dýrmætustu gjöfina sem ég hef fengið verð ég að segja að ég minnist ekki neinna sérstakra gjafa en maðurinn minn hef- ur stundum gefið mér plötu eða bók í jólagjöf og það sem mér þykir vænst um er það sem hann skrifar inn í bækurnar. Það geymi ég alltaf. Sigríður Ella Magnús- dóttir: Fékk óvænta peningasendingu —fór með togara til íslands Sigríður Ella Magnúsdóttir óperusöngkona sagöist eiga erfitt með að óska sér einhverrar einnar jólagjafar í ár en hún sagðist hins veg- ar geta hugsað sér allt frá stórum góðum koddum og upp í litla gullkistu fulla af pening- um svo hún gæti keypt gjafir handa öllum vin- unum. „Það sem mér hefur þótt vænst um að fá í jólagjöf er ekki beinlínis hægt að pakka inn í jólapappír og binda utan um. Fyrstu jólunum í burtu frá f jölskyldunni hafði ég eytt í Vínar- borg á námsárum mínum. Nú leið að næstu jólum — og átti ég einnig að eyða þeim jólum þar — en fékk óvænta peningasendingu frá vinum á tsiandi sem átti að gera mér kleift að lyfta mér eitthvað upp um jólahátíöina, fara út að borða og svoleiðis. Hins vegar sá ég að þessi peningaupphæð nægði fyrir lestarfari frá Vín til Bremerhaven svo ég tók mig til og fór þangað og var komin um borð í íslenskan togara — Víking frá Akra- nesi — áður en varði. Siglingin heim til Islands tók fjóra og hálfan sólarhring. Við fengum vitlaust veður allan tímann en ég man enn eftir tilfinningunni þegar ég sá jólaljósin í Reykjavík.” JI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.