Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Qupperneq 2
2
DV. FÖSTUDAGUR 25. JANtJAR 1985.
Mælskukóngur á haustmisseri Hjörleifur Gutt-
ormsson, háttvirtur 5. þingmaður Austurlands. '
Mælskudrottning á haustmisseri Jóhanna
Sigurðardóttir, varaformaður Alþýðuflokksins,
háttvirtur 2. landskjörinn þingmaður.
Krónprins Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins, var í öðru sæti. En hann fór oftast
í ræðustól.
í þriðja sætinu Jón Baldvin Haunibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins.
Ordanna ráðsmenn á Alþingi
Málgleðin mæld — mælskukóngur og drottning
Hver talaði lengst á þingi? Hvaða
þingmaður fór oftast í ræðustól?
Hvaða ræða var lengst? i hvaða
flokkl tala þeir mest? Ur hvaða kjör-
dæmi eru þeir f jörugastir?
i jólaleyfi þingmanna sækja ýmsar
spurningar á landsmenn. Sjálfsagt
engin ofangreindra. Þó var undan-
tekningar að finna á ritstjórn DV —
þar voru þessar elnkennilegu
spurningar mjög áleitnar.
Því var bafist handa. Farið yfir ell-
efu hefti Alþingistíðinda og mældur
með stiku h ver dálkur.
Að þessari uppmælingu lokinni er
útkoman meðal annars sú að Hjör-
leifur Guttormsson er mælsku-
kóngur haustmisseris á þingi.
Frá þingsetningu 107. löggjafar-
þings Islendinga 10. október sl. fram
að jólaleyfi töluðu þingmenn sam-
fleytt í tæpa 5 sólarhringa. Vinnutími
þeirra, tæpar 11 vikur, reyndist vera
44 vinnudagar.
Þeir töluðu í 6915 mínútur samtals.
Þaö eru rúmlega 414,900 sekúndur. I
klukkustundum mælt reyndust þing-
mennimir hafa talað í 115 klukku-
stundir (og 15 mínútur).
Og það var Hjörleifur Guttorms-
son, háttvirtur 5. þingmaður Austur-
lands, alþýðubandalagsmaður, sem
talaði Iengst. Þó var vinnutími hans
á þingi skemmri en margra annarra
þingmanna. Hann var fjarverandi í
að minnsta kosti hálfan mánuð er
hann sat þing Sameinuðu þjóðanna í
New Vorkíhaust.
Hjörleifur, hér nefndur mælsku-
kóngur, talaöi alls í 549 mínútur eða
rúmar 9 klukkustundir. Hann fór 58
smnum í ræðustól á Alþingi. Lengsta
ræðan hans mældist 69 mínútur í
flutningi eftir okkar stiku.
Sá sem styst talaði á Alþingi
íslendinga þetta haustmisseri er
varaþingmaðurinn Sveinn Jónsson
sem leysti Hjörleif af hólmi. Sveinn
talaði í hálfa mínútu.
Málgleðin á
síðasta þingi
Þessi uppmæling á málflutningi
ræðumanna hefur áður verið fram-
kvæmd hjá DV. Síðastliðið vor var
ræðutími þingmanna mældur og
hafði þá flokksbróðir Hjörleifs,
Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins vinninginn. Þá var öll
vetursetan mæld í orðum og feröum í
ræðustól. Nú er aöeins hálfleikur.
Síðastliöið vor átti Svavar bæði
metin, hann talaði lengst og fór oft-
ast í ræðustóL Ekki sporlatur maöur
hann Svavar. Hjörleifur þingmaður
að austan var í ööru sæti í fyrra í
„mállengd” en Albert Guðmundsson
ríkiskassaráðherra var næstoftast í
ræðustól á síðasta þingi. 1 þriðja
sæti, með viðkomu í ræðustól, var þá
Stefán Benediktsson sem þá sat sitt
fyrsta þing. Ráðherrarnir Albert
fyrrnefndur og Sverrir Hermanns-
son voru í þriðja og fimmta sæti í
fyrravor og Jón Baldvin Hannibals-
son, núverandi formaður Alþýðu-
flokksins, þáverandi krónprins, var í
fjórða sæti eftir síðasta þing.
Um jólaleyti 1983 var gluggað í
Alþingistíðindi og þá einnig könnuö
málgleði þingmanna. Þá sem nú
hafði Hjörleifur austanmaður vinn-
inginn.
Svavar, sem formaður hans og
hinna í flokknum, var í fyrsta sæti sl.
vorsemáðurgetur.
Formenn flokka
og þingflokka
Svavar Gestsson tók forystuna í
sinum flokki á síðasta þingi. Hann
hefur einnig forystuna í flokki for-
manna. Formaður Alþýðubanda-
lagsins talaði í 468 mínútur það sem
af er þessu þingi, því 107. í röðinni.
Formaður Framsóknarflokksins,
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráöherra, er í þriðja sæti á for-
mannalistanum. Hann talaöi í 162
mínútur samtals. Já, og nýkjörinn
formaður Alþýöuflokksins, Jón
Baldvin Hannibalsson, er í öðru sæti.
Hann talaöi í 326 mínútur, fór 42
sinnum í pontu og lengsta ræðan
hans stóö í 44 mínútur. Áfram með
formannalistann, þá er Þorsteinn
Pálsson, formaðurSjálfstæðisflokks-
ins, í fjórða sæti. Hann talaöi í 51
mínútu. Þorsteinn fór 4 sinnum í
ræðustól og hans lengsta ræða stóð
yfir í 28 mínútur.
Bandalag jafnaðarmanna og Sam-
tök um kvennalista hafa ekki form-
lega formenn nema þingflokkanna.
Þá tökum við næst, Bandalagiö
fyrst. Formaður þingflokks Banda-
lags jafnaöarmanna er Guömundur
Einarsson. Hann talaöi í 187
mínútur. Tölti alls 32 sinnum í ræðu-
stól, lengst dvaldist honum þar í 18
mínútur.
Kristín Halldórsdóttir, formaður
þingflokks Samtaka um kvennalista,
talaði í 130 mínútur, eða rúmar tvær
klukkustundir. Lengsta ræða
Kristínar var í 18 mínútur.
Olafur G. Einarsson, formaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins, fór
fjórum sinnum í ræðustól, talaöi
lengst í sjö mínútur. Heildartími
hans í ræðustól var þrettán mínút-
ur. Páll Pétursson, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins, talaði í
rúma klukkustund, eða 64 mínútur.
Fór hann 20 sinnum í stólinn.
Formaður þingflokks Alþýðu-
flokksins, Eiður Guðnason, talaði í
194 mínútur, lengst í 27 mínútur.
Hann er léttur á fæti og fór 47 sinnum
í ræðustólinn. Eiður á metið í hópi
þingflokksformanna hvaö tímalengd
eða minútufjölda snertir. Næstur
honum er Ragnar Arnalds, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins.
Hann talaði í 188 mínútur, fór í 31
skipti í pontuna og talaði í einni strik-
lotu í 34 mínútur einu sinni.
Tólf konur á þingi
Það þykir eflaust tíðindum sæta að
tólf konur sátu á Alþingi Islendinga á
haustmisseri. Þær sátu ekki allar
tólf samtímis, eins og postularnir, í
þingsölum. Sumar hurfu af vettvangi
og aðrar komu í staðinn. Ein kona
eöa tvær komu í stað karla og einn
karl í stað konu. En sem kunnugt er
eru níu konur kjömir þingmenn frá
síðustu kosningum.
Alls settist 71 einstaklingur í sæti
þingmanna í Alþingishúsinu þetta
tímabil; auk hinna kjörnu 11
varaþingmenn (utanríkisráðherra þar
meðtalinn).
Konur voru 1/6 hluti þingliös og töl-
uðu í takt við það. Þær tóku 1/6 hluta
af heildarræðutímanum.
Samtals töluðu konurnar tólf í 1138
mínútur.
Sú konan sem talaði lengst var Jó-
hanna Sigurðardóttir, varaformaður
Alþýðuflokksins, hér nefnd mælsku-
drottning meö mælskukónginum,
honumHjörleifi.
Jóhanna mælskudrottning talaði
samtals í 235 mínútur. Lengsta
ræðan hennar tók 38 mínútur í flutn-
ingi og alis fór hún 37 sinnum í ræðu-
stól.
Fáorðust kvennanna var Magða-
lena M. Sigurðardóttir, varaþing-
maður af B-lista í Vestfjaröakjör-
dæmi. Hún fór tvisvar í ræöustól og
talaöi í hálfa minútu í hvort skipti.
Ekki talaði Magöalena skemmst
alira þingmanna. Þann heiður á
áðumefndur Sveinn Jónsson vara-
þingmaður sem kom inn fyrir
mælskukónginn Hjörleif Guttorms-
son.
Rétt er að geta þess að allir þing-
menn tóku til máls. Um jólaleyti í
fyrra, þegar mælistikunni var beitt'
hér á DV, kom í ljós að tveir þing-
menn höfðu alls ekki tekið til máls.
Nú voruallir með.
Ráðherrar
Samtals töluðu ráðherramir tíu
rúmar 25 klukkustundir. Þeir töluðu í
1533 mínútur sem em 25 klst. og 33
minútur. Af samanlögðum mínútu-
fjölda í ræðustól Alþingis hafa ráð-
herrar tekið tæplega einn fimmta af
tímanum.
Ráðherrarnir ásamt þeim þremur
sem í efstu sætum sitja nú, Hjörleifi,
Svavari og Jóni Baldvin, hafa talað
samtals í tæpar 3 þúsund mínútur
sem er drjúgur skerfur 13 einstakl-
inga af 71 sem á þingi hafa setið.
Heildartíminn var tæpar 7 þúsund
mínútur.
Sá ráðherranna sem lengstu ræð-
una hefur flutt er Albert Guðmunds-
son, um fjárlögin auðvitað. Hann fór
einnig oftast þeirra ráðherra í ræðu-
stól, eða 64 sinnum. En tímalengdina
á Sverrir Hermannsson iönaðarráð-
herra. Hann talaði í 3126 mínútur
alls. Sverrir fór 40 sinnum í ræðustól.
Lengst talaði hann í 39 mínútur.
Sverrir og Hjörleifur eru báðir
methafar hvor í sínum flokki.
Sameiginlegt áhugamál þeirra
beggja — álmálið — hefur knúiö þá
áframtildáða.
Matthías A. Mathiesen viðskipta-
ráöherra talaði skemmst ráðherra,
eða tæpar 20 mínútur alls. Hann fór 4
sinnum í ræöustól og lengsta ræða
hans var í 6 mínútur. Geir
Hallgrímsson utanríkisráðherra
talaði í 35 mínútur og Jón Helgason
landbúnaðar-, dóms- og kirkjumála-
ráðherra í samtals 58 mínútur.
Konan i ráðherrahópnum,
Ragnhildur Helgadóttir mennta-
málaráðherra, talaði í 135 mínútur,
fór 35 sinnum í ræöustól og lengsta
ræöan tók 14 mínútur. Forsætisráð-
herra talaði lengst í 33 mínútur, hann
fór 28 sinnum i ræðustól og talaði alls
í 162 mínútur.
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í
ríkisstjórninni, sem eru sex, töluðu
að meðaltali hver maöur í 165 mínút-
ur. Ráöherrar Framsóknarflokks-
ins, hins stjómarflokksins, töluðu að
meðaltali hver maður 135 mínútur.
Þeir ráðherrar eru fjórir. Lengst
framsóknarráöherra talaöi félags-
málaráðherrann Alexander Stefáns-
son, eða 181 mínútu.
Meðaltal eftir
flokkum
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru
23 samtals. Að meðaltali talaöi hver
þeirra 77 mínútur. Tveir varaþing-
menn komu inn í þann hóp og með
þeirra framlagi lækkar meðaltal
hvers ræðumanns í rúmar 73 mínút-
ur.
Þingmenn Framsóknarflokksins
eru 14 alls. Fjórir varaþingmenn
flokksins tóku sæti á þingi þetta
nýliðna misseri. Meðalræðutími
framsóknarþingmanna er um 66
mínútur. Með ræöutima varaþing-
mannanna styttist meðaltíminn í 53
mínútur.
Tíu þingmenn Alþýðubandalagsins
hafa talað að meðaltali 194 mínútur
hver. Einn varaþingmaður er í
þessum tíu manna aöalhópi. Það er
Margrét Frímannsdóttir, en hún tók
strax í upphafi þings sæti Garðars
Sigurðssonar, Suðurlandskjördæmi.
Sat hún fram að jólaleyfi. Tveir
varaþingmenn til viðbótar tóku sæti
á þingi fyrir Alþýðubandalagiö og
með þeirra framlagi lækkaöi meðal-
tími á hvern ræöumann í 162 mínútur
rúmar.
Þingmenn Alþýðuflokks eru sex að
tölu. Þeirra mest talaði formaöurinn,
Jón Baldvin, og minnst Karl Steinar,
eöa 51 mínútu. Meðaltími alþýðu-
flokksmanna er 195 minútur á hvern
þingmann. Með einum varaþing-
manni þeirra, Magnúsi H. Magnús-
syni, sem talaði í 26 mínútur, lækkar
meöaltalið í 171 mínútu. Magnús H.
Magnússon talaði næstlengst vara-
þingmanna sem komu inn í hálfan
mánuð til þingstarfa. Lengst þeirra
talaði varaþingmaður Kvennalist-
ans, Kristín Ástgeirsdóttir, 49
mínútursamtals.
Samtök um kvennalista hafa þrjá
kjöma þingmenn. Að meðaltali töl-
uðu þeir þingmennimir eða þær
konumar í 140 mínútur hver þeirra.
Guðrún Agnarsdóttir talaði þeirra
lengst í 162 mínútur, hún fór 37 sinn-
um í púltið og lengsta ræðan hennar
stóö í 20 mínútur. Þær stöllur Kristín
Halldórsdóttir og Sigríöur Dúna
Kristmundsdóttir töluðu hvor um sig
í 130 mínútur. Tveir varaþingmenn
tóku sæti fyrir Kvennalistaþingmenn
og með þeirra ræðum styttist meðal-
tíminn í rúmar 96 mínútur.
Bandalag jafnaðarmanna hefur
fjóra þingmenn kjörna. Þeirra
málglaöastur er Stefán Benedikts-
son. Hann hefur talað í 212 mínútur
samtals, farið 46 sinnum í ræðustó!
og talað lengst í 29 mínútur í senn.
Samtals töluðu fjórir þingmenn
bandalagsins í 509 minútur eða 127
mínútur rúmar aö meðaltali á mann.
Deilt á kjördœmi
Þegar málgleði þingmanna er deilt
niður á kjördæmi virðast þeir
málglaðastir í Austurlandskjör-
dæmi. Það munar um Hjörleif og
Sverri. Og þeir eru liödrjúgir bæði
Halldór Ásgrímsson með 140
mínútur í ræðustól og Helgi Seljan
með 147 mínútur.
Tómas Árnason talaði samtals í 37
mínútur.
Þingmenn Reykvíkinga eru alltal-
hressir. Þeir töluðu að meöaltali í 157
mínútur. Vestfjarðaþingmenn eru
með hressara móti eða meö 131
mínútu að meðaltali. Rétt er að geta
þess að Austurlandsþingmenn eru
með um 200 mínútur aö meðaltali.
Þingmenn í Suðurlandskjördæmi
eru ákaflega stuttorðir. Að meðaltali
hafa þeir talað í tæpar 37 mínútur
hver. Lengst þeirra sunnanmanna
hefur Jón Helgason ráðherra talað
eða í 58 mínútur, þá Arni Johnsen í 53
mínútur og Þorsteinn Pálsson í 51
minútu. Skemmst talaði Eggert
Haukdal í 7 mínútur samtals, en
hann fór tvisvar í púltið.
Eftirmáli
I þinghléi er mælskukóngur úr hópi
þingmanna tvímælalaust Hjörleifur
Guttormsson (549 mínútur). Tveir
krónprinsar fylgja honum fast.
Svavar Gestsson (468 mínútur) og
Jón Baldvin Hannibalsson (362
mínútur). A eftir þessum methöfum
þremur koma þeir Sverrir Her-
mannsson (316 mínútur) og Albert
Guðmundsson (286mínútur).
Jóhanna Sigurðardóttir er
mælskudrottningin, talaöi í 235
mínútur alls. Næst á eftir henni
kemur Guðrún Agnarsdóttir (162
mínútur) og síöan Guðrún Helgadótt-
ir (160mínútur).
Stystu viðdvöl í ræðustól átti
Sveinn Jónsson, hálfa mínútu. Af
ráðherrum talaöi Sverrir Hermanns-
son lengst. Ráðherrar sjálfstæðis-
manna eru málglaðari en ráðherrar
Framsóknar. Af formönnum flokka
talar Svavar mest. Hann á reyndar
annað met, sem enn er ógreint frá.
Hann fór 70 sinnum í ræðustól á þess-
um tíma.
Af formönnum þingflokka talaði
Eiöur Guðnason lengst eða 194
mínútur. Og þegar litið er til kjör-
dæmanna hafa þingmenn Austur-
landskjördæmis sagt flest orðin,
miðað við höfðatölu og meðaltal.
Af varaþingmönnum, sem komu
inn til skemmri vistar, talaði Kristín
Ástgeirsdóttir lengst, eöa 49 mínútur
samtals. Þingmenn Alþýöubanda-
lagsins tala mest allra þingmanna —
miðað við höföatölu og mínútufjölda.
Tilgangurinn með mælingu þessari
var ekki að mæla afköst þingmanna
á 107. löggjafarþingi Islendinga.
Orðin í dálkunum segja ekki alit. En
þau eru eins og meydómurinn, ekki
aftur tekin. Sumir þingmenn kunna
aö hafa spakmælið góða í huga: Fæst
orð hafa minnsta ábyrgð, aðrir:
Minnisstæð eru margtöluð orð.
Þeirra er valið — og kjósenda.
-ÞG