Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Síða 14
14 DV. FÖSTUDAGUR 25. JANUAR1985. Mikil sfldarganga íEskifirði: Fjörðurinn breytt- ist í sædýrasafn Frá Emil Thorarensen, Eskifirði: Mikil síldartorfa kom inn á Eski- fjörð í fyrradag. Fylgdi torfunni mikið mávager, svo og háhyrninga- ganga. Léku háhyrningarnir við hvern sinn fingur um allan fjörð og gátu Eskfirðingar fylgst meö þessari óvenjulegu en skemmtilegu heim- sókn úr gluggum heima hjá sér í nokkra klukkutíma. Fannst mörgum fjörðurinn líkjast sædýrasafni meðan leikur háhyrninganna stóð sem hæst. Kristjári Guðmundsson, skrifstofu- maður á Eskifirði, taldi engan vafa leika á því að þarna hefði mörg hundruð tonna síldarganga verið á ferðinni. Það leyndi sér ekki. Til sönnunar máli sínu sagðist hann minnast þess þegar hann hefði áður fyrr verið á síldveiðum. Þá hefði nót- inni oft verið kastað á mávager og hefðu slík köst sjaldan brugðist. Þessar síldarfréttir koma líka heim og saman við frásögn Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráð- herra sem var hér fyrir nokkrum dögum og brá sér í síldarrann- sóknarferð í Reyðarfirðinum með Jakob Jakobssyni á rannsóknarskip- inu Arna Friðrikssyni. Ráðherrann sagði eftir þá ferð að talsvert væri af síld í firðinum eins og reyndar fleiri fjörðumhéraustanlands. -EH. Bjarni Stefánsson, forstjóri Hljómbæjar hf., og Ingvar Ásmundsson skóla- stjóri við afhendingu tækisins. Auk þeirra eru á myndinni Kristján Zophaníasson sölustjóri og Loftur Jónsson f jármálafulltrúi. Gjafir til Iðnskólans I tilefni af 80 ára afmæli Iðnskól- berfékksvoskólinnandvirðitveggja ans í Reykjavík gaf Hljómbær hf. súkkulaðibræðslupotta að, gjöf frá skólanum myndbandstæki, Tækið er Sultu- og efnagerð bakara. Pottarnir mjög hentugt við kennslu og mun verða notaðir við kennslu í verk- koma sér vel fyrir skólann. I desem- námsdeild bakara. Selfoss: Efri hæð Fossnest is tekin I haust og það sem af er vetri hefur verið unnið af kappi við að byggja efri hæð Fossnestis að Austurvegi 46, Selfossi. Neðri hæðin hefur veitt góða og fullkomna ferðamannaþjónustu í hvívetna undanfarin ár. Þaö eru fyrirhyggjumenn sem reka þetta fyrirtæki af mikilli framsýni. Fossnesti var byggt i tveimur áföngum, árið 1967 sá fyrri og seinni hlutinn 1977. Nú á að fara að vígja þriðja áfangann á morgun. A neðri hæðinni er matsalur og alls konar fínar veitingar og vel útilátnar. Maturinn þarna er alveg frábær. Ferðafólk, sem keyrir eftir Austur- veginum, finnur ilmandi matarlykt út á götuna og snarstoppar bíla sína i gagnið og fær sér mat að borða og kerrur alltaf aftur og aftur. Eigendurn.ir sjá sér ekki annað fært en að byggja þamaefrihæðina. Efri hæðin hefur hlotið nafnið Ing- hóll og er nýr veitinga- og skemmti- staöur á Selfossi. Salurinn er 380 fermetrar að flatarmáli. Tekur hann tvö hundruð manns í mat en 325 manns í dans. Búist er við að salurinn verði mikið notaður fyrir einkasamkvæmi. Pantanir eru orðnar margar langt fram á vor. Vígsluhátíðin fer fram á morgun klukkan 16. Framkvæmda- stjóri Fossnestis hf. er Guömundur Gunnlaugsson. Regína Thorarensen, Selfossi. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis: Símaþjónusta ut- an afgreiðslutíma Frá og með 25. janúar næstkom- andi munu starfsmenn Sparisjóös Reykjavíkur og nágrennís svara í síma hans (27766) utan venjulegs af- greiðslutíma. Þessi nýjung í starf- seminni hefur hlotið nafnið Síma- þjónusta sparisjóðsins. Meö þessu móti veröur nú mögu- legt fyrir viðskiptavini sparisjóðsins að nýta sér ýmsa þjónustu hans og fá margháttaðar upplýsingar um hana, enda þótt afgreiðslan sé lokuð. Símaþjónusta sparisjóðsins verður fyrst um sinn opin frá kl. 17—21 virka daga og frá kl. 13—18 á laugardög- um. Af þjónustu sem veitt verður í Símaþjónustu sparisjóðsins má nefna móttöku tímapantana vegna viðtala við sparisjóðsstjóra og aöra starfsmenn og móttöku á beiðnum um millifærslu. Ennfremur verða í Símaþjónustu sparisjóðsins veittar upplýsingar um reikninga, þar á meðal VISA-reikninga, og gjalddaga lána auk almennra Uþplýsinga. Menning Menning Menning Halldór Asgeirsson — sýnir íNýlistasafninu Halldór Ásgeirsson myndlistar- maður er nú staddur hér á landi (en hann er annars búsettur í París) og sýnir 9 ný verk í sýningarsal Nýlista- safnsins. Gefur þar að líta verk sem tengjast í senn conceptlistinni og nýja málverkinu. Málað concept Það þarf vart aö hafa orð á því að nýtt málverk (á gömlum grunni) hefur ruöst inn á myndlistarsviðið á síöast- liðnum árum og stuggað conceptlist- inni í skuggann. Conceptið lifir þó áfram og þess konar listamenn eru sífellt að skilgreina listhugtakið á ný, finna nýja og nýja möguleika. En svo eru líka conceptlistamenn sem hafa til- einkað sér framsetningarmáta og formskrift nýja málverksins og hafa þeir oftast mikla sérstöðu innan hins nýja málverks. Er gjarna sagt að þeir séu meira „intellectuel” í sinni list. Halldór Ásgeirsson er einn þessara conceptlistamanna og hefur undan- farin ár unnið meö performanca og ljósmyndir, liti og pappír, en er nú kominn nær því sem við getum kallað málverk. En myndverk listamannsins eru ekkert tjáningarflog, líkt og við höfum oft séð í nýja málverkinu, heldur fullkomlega yfirvegaðar til- raunir sem fjalla um mynd-„tákn”, myndrými og tíma í myndverki. Kvikmynd I fremri sal sýnir listamaðurinn verk tileinkað Bayeux-reflinum. Verkið myndar samfellda heild en skiptist innbyrðis í fjölda aðgreindra þátta. Litameðferð og „tákn” minna um margt á nýja málverkið en mynd- Þarf stundurM mtkta hörkji Helga Meisteö í Dallas Nájn tómní' " persónuielkápróf ■ VÍÖtíí! '/:?> ISfSroíkfcaíótti.if Dýir' hjé 'íésocw:, ét?ar«ís Enn sem fyrr er auglýsingin ódýrust í Vikunni. — Getum veitt aðstoð við uppsetningu auglýsinga. Vikan, auglýsingar, sími 68-53-20. Misstu ekki VIKU úr lífi þínu! i^VtKW' VIKAN ajgjgg Helga Melsteð í Dallas Súaveðhlaup Börn í snjó Margrét Þóroddsdóttir Dymock, starfsmaður Exxon, í Vikuviðtali Náin kynni — persónuleikapróf Gull í greipar Ægi Matarlist Vídeóvikan Enska knattspyrnan — spáin fyrir laugardaginn Tvœr góðar peysur á krakkana . . og svo auðvitað allt hitt á næsta blaðsölustað

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.