Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 25. JANOAR1985.
9
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Time vann
málið
en Sharon hafði
rétt fyrir sér
Arial Sharon er heestönœgður með niðurstöðu réttarhaldanna þó ekki hafi
hann unnið málið gegn Time.
Ariel Sharon tapaði i gær málsókn
sinni á hendur timaritinu Time í New
York. En hann sagðist samt í raun
hafa unnið mikinn sigur.
Eftir 11 daga umhugsun ákvarðaði
kviðdómur að Time hefði ekki gerst
brotlegt gegn Sharon. Grein þess þar
sem sagði að Sharon hefði rætt fyrir-
fram um hugsanleg morð i flótta-
mannabúðum í Líbanon, hefði þó verið
röng og ærumeiðandi.
Til að sanna að skrif séu ærumeið-
andi þegar um persónur í sviösljósinu
er að ræða verður að sýna fram á að
skrifin hafi verið gerð með illum hug
eða að skrifarinn viti að um lygi er að
ræða. Þetta gat Sharon ekki sýnt fram
á.
En útkoma réttarhaldanna sýnir
fram á það sem Sharon hefur haldið
fram allan tímann: að hann hafi ekki
endilega gert sér grein fyrir því hvað
gat gerst þegar hann, sem vamar-
málaráðherra, hleypti hægri sinnuðum
skæruliöum inn í búðir Palestínu-
manna í Sabra og Shatila.
Kviðdómendum fannst að fréttarit-
ari Times í Jerúsalem hefði ekki hegð-
að sér á allan hátt sem skyldi. Frétta-
ritarinn, David Halevy, sagði að í
skýrslu um fjöldamorðsmálið kæmi
fram að Sharon hefði rætt um nauðsyn
þess fyrir fjölskyldu hins myrta ný-
kjörna forseta Líbanons, Bashir
Gemayel, að hefna sín. Hins vegar
kom í ljós að þetta stóö ekki í skýrsl-
unni. Halevy varð að viðurkenna að
hann hefði getið sér þess til að þetta
stæðiihenni.
Frakkar
banna kvikmynd:
Klæmist
með
Maríu mey
—segja
kaþólikkar
Frá Ama Snævarr, fréttaritara DV í
Lyon:
Nýjasta kvikmynd snillingsins Jean-
Luc Goddards, Eg heilsa yður, María,
hefur verið bönnuð í Versalaborg og
tvenn kaþólsk samtök hafa höfðað mál
í því skyni að myndin veröi bönnuö í
gervöllu Frakklandi.
Borgarstjóri Versala, Andre Danien,
tók ákvörðun um að banna myndina
eftir að róstur urðu á forsýningu á
myndinni. Jafnframt kvaðst hann taka
til greina málshöfðun samtakanna.
Kaþólsku samtökin álíta að f jallað sé
um Maríu mey á klámfenginn hátt. 1
kröfu um bann við sýningum segir orð-
rétt: „Kvikmyndin er móögun við
Maríu mey og þar með við kaþólska
trú og þá sem iðka hana.”
Jean-Luc Goddard hefur mótmælt
því aö hann hafi viljaö ráðast á ka-
þólska trú í myndinni. Goddard, sem
er svissneskur að uppruna, er án nokk-
urs vafa áhrifamesti kvikmyndaleik-
stjóri sem starfar í Frakklandi.
önnur frönsk mynd var bönnuð á
miðvikudag í héraðinu Lot og Gar-
anne. Þar er á ferðinni Vítislestin með
og eftir Roger Hanin. Sú mynd tekur til
umfjöllunar viðurstyggilegt morö á
araba um borð i lest þar sem fjölmarg-
ir farþegar hreyfðu hvorki legg né lið
honum til hjálpar. Astæða banns við
sýningum er aö réttarhöld standa yfir í
málinu í þessu héraði og talið var að
myndin gæti haft áhrif á væntanlega
dómendur.
Þess má til gamans geta að Hanan
■er vinsæll, franskur leikari og mágur
Mitterrands forseta.
Kanakamál rædd:
UPPÞOT í ÞINGINU
Fró Arna Snævarr, fréttarltara DV í
Lyon:
Þær voru eldheitar móttökurnar sem
biðu Jean-Marie Tjibaou, leiðtoga
sjálfstæðissinnaðra kanaka á Nýju
Kaledóníu, þegar hann horfði á um-
ræður i franska þinginu frá þingpöll-
um. Stjórnarandstöðuleiðtogar urðu
æfir og heimtuðu að honum yrði hent
út. Claude Labbe, formaður þingflokks
nýgaullista, sagöi aö handtaka ætti
Tjibaou á staðnum.
„Hann ætti skilið lífstiðarfangelsi
fyrir glæpi sína,” hrópaði hann.
„Kynþáttahatari,” heyrðist þá hróp-
að af þingbekkjum kommúnista.
Þingforseti reyndi að lægja öldum-
ar. Hann minnti menn á, og þótti sum-
um glettið, að Tjibaou hefði ekki verið
ákærður um glæp og sem franskur
ríkisborgari hefði hann rétt á að fylgj-
ast með umræðum.
Málinu lyktaði með þvi að Tjibaou
fór út og sagði: „Eg vissi ekki aö ég
væri svona mikilvægur.”
Nýja Kaledónia ar skammt undan
Ástraiiuströndum.
0 ?S SO 75
«
# Tryggðareyjar
P
Nýja^s<.u»P\S.Canala
-Kaledónía3*
Ástralía
Kóralh^f
Nýja- k-.
Kaledónía^
Bandalagið neitar að borga
Danir hafa mótmælt harðlega vegna
ákvörðunar Evrópubandalagsins að
greiða Grænlendingum ekki eins og bú-
ið var að semja um vegna fiskveiða
bandalagsins við Grænland.
Málið snýst um hvort fiskur sé nú af-
gangs fyrir Evróputogara. Grænlend-
ingar segja aö svo sé ekki vegna slæms
veðure sem hafi orðið þess valdandi að
lítið sé af fiski á miðunum. Þeir segja
að ekkert sé afgangs fyrir Evrópu-
menn.
Evrópubandalagið heldur því fram
að tölur Grænlendinga séu rangar og
jafnvel falsaöar.
Evrópubandalagiö og Grænlending-
ar hafa samið um að bandalagið skuli
fá ákveöinn hlut af umf ramfiski á mið-
unum. Þó skuli Grænlendingum vera
tryggður 50.000 tonna þorskafli.
Bandalagið á að greiöa fyrir fiskveiðt-
réttindin jafnvel þó þeirra hlutur sé
enginn. 1 þetta sinn vilja þeir þó ekki
sætta sig við töiur Grænlendinga.
RYMINGARSALA
AFSLÁTTUR Á GÓLFTEPPUM.
AF HEILUM RÚLLUM OG BÚTAR.
ÖLL ÞJÖNUSTA.
FRIÐRIK BERTELSEN H/F TEPPAVERSLUN
SÍÐUMÚLA 23, SÍMAR 686260 OG 686266.
RYKSUGUR
LÉTTAR - HANDHÆGAR
SJÚGA EINNIG VATN
HAGSTÆTT VERÐ
Skeljungsbúðin
SíÖumúia33
símar 81722 og 38125
Léttar
handhægar
steypu
hrærivélar
ÁMJÖG
GÓÐU VERÐI
Skeljungsbúðin <
SíÖumúla33
símar81722 og 38125
Cinhell
vandaðar vörur
\Loftpressur
FYRIR LIGGJANDI
ALLTAF SAMA LÁGA
VERÐIÐ
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
símar 81722 og 38125