Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Blaðsíða 12
12 DV. FÖSTUDAGUR 25. JANUAR1985. Frjáist,óhá6 dagblað Útgáfufclag: FRJÁLS FJÖLMIOLUN HF. Stjórnarformaóur og ótgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍOUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍDUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgrciósla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda-og plötugerö: HILMIR HF., SÍÐUMÚLA 12. Prentun. Árvakurhf. ; Áskriftarveró á mánuói 310 kr. Verð í lausasölu 30 kr. Helgarblað 35 kr. Ríkisstjóm i klandrí Það er útbreiddur misskilningur, að búast megi við upphlaupi gegn ríkisstjóminni á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins í apríl. Langlíklegast er, að á þeim fundi verði örlög stjómarinnar ekki ráðin. Formaður Sjálfstæðis- flokksins, Þorsteinn Pálsson, hyggst nota fundinn til að stappa stálinu í liðið og tryggja sig í sessi. Hann mun telja, að flokkurinn þurfi skýrari stefnu. Ella hjaðni fylgi hans í mollunni, sem er um ríkisstjómina. Þetta þýðir, að biðstaða verður í málum stjórnarinnar fram yfir landsfund og lengur, nema framsóknarmenn veröi til að brjóta upp stjómarsamstarfið. Raunar gætir meiri óróleika í liði framsóknarmanna en sjálfstæðis- manna. Haraldur ölafsson, þingmaður Framsóknar, sagði á fundi um helgina, að stjómarsamstarfið gæti sundrazt á fjórum eða fimm málum. Blað framsóknar- manna, NT, hamast gegn stjómarsamstarfinu. Stjórnin er í klandri. Ekki hefur enn tekizt að bræða saman afgerandi aðgerðir í efnahagsmálum, sem forsæt- isráðherra boðaði um áramótin. Aðgerðimar áttu að liggja fyrir, þegar þing kæmi saman. Steingrímur ör- væntir nokkuð um, að þær verði til á næstunni. Hann sagði í DV í gær, að stjómin ætti ekki að sitja áfram, tæk- ist henni ekki að sameinast um efnahagsaðgeröir nú. „Við verðum að taka á þeim málum. Því miður misstig- um við okkur, er við töldum, að málin gætu þróazt eðli- lega án okkar afskipta, sem þau gerðu ekki,” sagði for- sætisráðherra. Meginmálið verður því, hvort stjómarliðið hefur mátt til aðgerða í efnahagsmálum á næstunni. En stjómin kynni að vilja sitja, þótt „aðgerðimar” yrðu bara mark- lausar viljayfirlýsingar um viðskiptahalla og erlendar lántökur. Þá gæti hún enn setið lengi. Stjórnarliðar hafa magnað rifrildi sín á milli um marg- vísleg mál. Þetta minnir nokkuð á sundrungina, sem var í síðustu vinstri stjórn. Menn muna, hvernig fór. Jón Helgason ráðherra braut gegn samkomulagi stjómarflokkanna í kjarnfóðurskattsmálinu. Samkomu- lag stjórnarliða var löngum kallað „mangó-jógasamning- urinn” og gekk út á, aö einn gæfi eftir hér, annar þar. Þorsteinn Pálsson lét landbúnaðarráðherra hafa það óþvegið vegna þessa máls. 1 öðru máli varð rifrildi. Alexander Stefánsson félags- málaráðherra lagði til aukna skattheimtu til að geta auk- ið stuðning við húsbyggjendur. Þorsteinn Pálsson lýsti því yfir, að ráöherrann væri að vaða reyk. Síðustu daga hefur enn komið upp ruglingur um afstöðu félagsmálaráðherra til lánveitinga til samvinnufélagsins Búseta og sjálfstæðismenn verið fljótir til að bera ráð- herrann sökum. Enn virðast málgögn stjómarflokkanna, Morgunblaðið og NT, vera í keppni um, hvort blaðið komist lengra í árásum á stjómarsamstarfið. Upplausn stjómarliðsins er því með ýmsum hætti. Raunar verður ríkisstjómin að svara þeirri spumingu á næstu vikum, hvort hún verðskuldar að sitja lengur. Svarið hlýtur að felast í því, að ríkisstjómin taki á vandamálunum, svo að einhverju skipti. Við höfðum slæma reynslu af næstu stjóm á undan þessari, sem strit- aði viö að sitja löngu eftir að séð varð, að hún leysti ekki vandann. HaukurHelgason. N 1984 (107. löggjafarÞin8' m 187. Frumvarp til laga um verndun kaupmáttar og viðnám gegn Verðb°'EUð GuðmUndsson, Guðrún Ríkisstjórnin skal ***£££ þeirra kjarasammnga ákvarðanir ríkisstjórnarmnar n um-gengKsCtámi^u íslenskúVtÓnuimar og aðrar rao 2. 8r- . Q hafa sérstakt eftirlit með skýrslu um þróun mn u fjalia um allt verðlag °P hækkun þjónustu ...- 3. gr. , o,„rltia stöðu útflutnings- i íslensku krónunnar og til þess að styrkja Léleg lífskjör eru ekki náttúrulögmál Ég man ekki eftir því á síðustu tuttugu árum að stjórnarandstöðu- flokkur hafi lagt fram jafnitarlegar tillögur í efnahagsmálum og Alþýðu- bandalagið hefur gert á þessum vetri. Þessar tiliögur ná til flestra þátta hagkerfisins. Ein ástæða þess að við fluttum frumvarpið var sú að við töldum og teljum að stjórnvöld eigi að leggja áherslu á að treysta sem best kaupmátt þeirra kjara- samninga sem gerðir voru. Tillögur okkar voru lagðar fram sömu dag- ana og ríkisstjórnin þurrkaði út með einu pennastriki ávinning kjara- samninganna sem geröir voru í haust. Það gerðist með gengisfelling- unni. Þá var reyndar lofað mildandi ráðstöfunum en efndir hafa auövitaö engar orðið. Gengisfelling getur ver- ið nauðsynleg aðgerö í efnahagsmál- um. Gengislækkunin nú var hins veg- ar samkynja gengisfellingunni vorið 1983 — tilgangurinn var sá aö breyta tekjuskiptingunni í þjóðfélaginu launafólki í óhag. Það er grund- vallarmunur þessara gengisfellinga og þeirra sem gripiö var til áður þeg- ar verðbætur á laun komu fyrir verö- hækkanir á innflutningi. Frumvarp Alþýðubandalagsins Frumvarp Alþýðubandalagsins um ráðstafanir í efnahagsmálum verður til framhaldsumræðu í neðri deild strax og þingið kemur saman nú eftir helgina. Aðalatriði frum- varpsins eru þessi: 1. Ríkisstjómin _ miði allar ákvarðanir í efnahagsmálum við að tryggja kaupmátt launa sem best hvort sem um er að ræða ákvarðanir í verðlagsmál- um, gengismálum eða vaxta- málum eða aörar ákvarðanir sem hafa beint eöa óbeint áhrif á lífskjörin. 2. Verðlagsráð hafi sérstakt eftir- lit meö innflutningi og sýnir kaffibaunahneyksliö nýlega hvílík nauðsyn er á aðhaldi í þeim efnum. Þá skal ríkis- stjómin taka til meðferðar verð- hækkanir opinberrar þjónustu á nýjan leik. 3. Aflað verði tekna — allt að ein- um miljarði króna — til þess að SVAVAR GESTSSON afnumdir og lokað fyrir erlend lán til verslunarfjárfestingar. Lögbirtingablaðiö birti reglu- lega lista yfir þá sem fá erlend lán. 6. Sjúklingaskattarnir verði afnumdirstrax. 7. Vextir verði kddtaðir og bannað að vextir fari nokkurn tímann fram yfir 2% umfram verð- tryggingu, þó 3% af lengri lán- um en til 10 ára. Vaxtataka um- fram þessi mörk verði refsiverð og farið með hana eftir lögunum um bann við okri. Bent hefur verið á að verðtrygging miöist við þróun kaupgjaldsvísitölu en ekki lánakjaravísitölu og Al- þýðubandalagið hefur iðuieg flutt um það tillögur. 8. Fyrirskipuð verði lækkun á A „Gengislækkunin nú var hins ^ vegar samkynja gengisfelling- unni vorið 1983 — tilgangurinn var sá að breyta tekjuskiptingunni I þjóðfélaginu launafólki í óhag." 4. koma í veg fyrir gengislækkun. Þessara tekna verði aflað með veltuskatti á banka, álagi á skrifstofu- og verslunarhús- næði, þ.e. stóreignaskatti, auk þess sem hagnaður Seðlabank- ans renni í ríkissjóð. Tekjum af skattinum yrði varið tn að treysta rekstrarstöðu sjáv- arútyegsins svo komið yrði í veg fyrir stööinm um leiö og tryggt yrði aö komið yrði til móts við kröfur sjómanna um bætt kaup — án gengisfellingar. LÖgð er áhersla á að fjallað verði um ráðstöfun á skatttekjunum i verðlagsráði sjávarútvegsins og aö ákvörðun verði að taka með samþykki sjómanna. Hert verði eftirUt með erlendum skuldum með sérstöku eftirUti með erlendum lánum verslun- arinnar. Langlánanefnd verði breytt og komið í veg fyrir að viðskiptabankamir hafi kverka- tak á nefndinni. Erlendir greiðslufrestir verði styttir og framgjöldum skipafélaganna og gert skylt að láta fara fram samkeppnisútboð um farmgjöld í útflutningi sérstaklega. 9. Vaxtatekjur af stærri inni- stæðum — yfir 10 mUjónir — verði skattskyldar og tekjur renni í Byggingarsjóð rikislns °g Byggingarsjóð verkamauna. 10. ÖU skuldabréf verða skráð á nafn og komlð í veg fyrir starf- semi okurlánaranna og skrúfað fyrir undirheimakerfið. Hér hafa verið nefndar aöal- tUlögurnar en hver þeirra væri efrii í sérstaka grein. Þessi grein er skrifuð til þess að sýna fram á að það eru tU aörar leiðir en þær sem ríkisstjómin hefur kos- ið að fara í efnahagsmálum. Spumingin er um póUtískan vUja. Léleg lifskjör eru ekkl náttúrulögmál. Hins vegar þarf aö safna liöi og sameinast tU þess að hrinda þeim tUlögum í framkvæmd sem hér hafa verið nefndar. Svavar Gestsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.