Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Page 8
8 DV. FQSTUDAGUR 25. JANUAR1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Engin misnotkun Eþíópskur embættismaöur segir að óstaöfestar fullyrðingar Banda- ríkjastjórnar um misnotkun á al- þjóðlegri matarhjálp kunni aö verða til þess að minnka áhuga hjálparstofnana og einstaklinga á því að aðstoða hinar milljónir Eþíó- pa sem nú eru á barmi hungurs- neyðar. Teferi Wossen segir Bandaríkja- stjóm ekki hafa sent mat til Eþíó- píu síöan i október. Einkastofnanir hefðu þó verið mjög gjafmildar. Hann sagði að stjómir Eþíópíu og Bandaríkjanna hefðu undirritað samning um 50.000 tonn af mat sem senda á á þessu ári. Ekkert af hon- um heföi þó borist enn. Teferi sagði allar fullyrðingar um misnotkun hjálparsendinga vera rangar. 1.000 hafa horfið Forsætisráðherra Perú hefur lof- að fullri rannsókn á staðhæfing- um Amnesty International um aö fleiri en 1.000 manns hafi horfiö í vörslu öryggislögreglunnar. Amnesty International sendi fjöl- miðlum í fyrradag skýrslu þar sem sagt var aö fólkið hefði horfið eftir að öryggislögreglan hafði handtek- ið það. Handtökurnar fóru. fram í héraði sem er undir neyðarlögum. I þessu héraði hafa skæruliðar mao- istasamtakanna Sendero Luminoso herjað mjög stíft. Fleiri en 4.000 manns hafa dáið í bardögum stjómar og skæruliða í Ayacucho héraðinu á undanfömum árum. Jóhannes Páll páfi ætlar að heimsækja Ayacucho þegar hann kemur í opinbera heimsókn til Perú ínæstu viku. Skaust upp Þrettán manns meiddust þegar geysimikill vindsveipur skaut flug- vél sem var á flugi yfir Grænlandi 300 metra upp í loftið á þremur sek- úndum. Boeing 747 vél Pan Amerikan flugfélagsins var í 10 kílómetra hæð þegar atburðurinn gerðist. Skyndilega fór 10 hnúta vindhrað- inn upp í 100 hnúta og breytti um stefnu og 80 gráður. Sex farþegar og sex flugfreyjur og flugþjónar meiddustlítillega. I flugvélinni vom 125 farþegar. Seðja sig áný Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, frétta- ritara DVí Svíþjóð: Líbönsku flóttamennirnir sem undanfarna dqga hafa verið í hung- urverkfalli í 'Trúboðskirkjunni í Vámamo hafa nú hætt hungurverk- fallinu. Segjast þeir hafa gert það vegna barnanna sem eru í þeirra hópi. „En við munum halda barátt- unni áfram fyrir því að fá að setj- ast að í Svíþjóð og við vonum að al- menningur í landinu styðji okkur,” sögðu talsmenn þeirra. Nær 3.000 fórust Indverska stjómin segir að sam- tals hafi aö minnsta kosti 2.717 manns látiö lífið í átökunum eftir morðið á Indiru Gandhi í nóvem- ber. Þessi tala er tvöföld sú tala sem stjórnvöld hafa hingað til not- aö. Umsjón ÞórirGuðmundsson Falklandseyjastríðið: Chile neitar en grunurinn hverfur ekki Braskir hermann sfga úr þyriu i calkiandsayjastriðinu. Notuðu þeir harflug valli i Chilo? Chilestjórn neitaöi í gær að nokkuð væri hæft í fréttum breska dagblaðsins New Statesman um að Chile hefði leyft 8 Bretum aö nota flugvelli sina til aö senda njósnaflugvélar yfir Argentínu á meðan á Falklandseyjastríðinu stóð. Bretar eiga í staðinn aö hafa lofað að selja Chile hergögn. Orðrómur var á kreiki á meðan á Falklandseyjastríðinu stóð að einhver samvinna ætti sér staö á miUi ChUe og Bretlands. Sá orðrómur fékk byr undir báða vængi þegar bresk þyrla hrapaði í suður Chile og áhöfn hennar fékk snarlega að fara úr landi. öryggisráð- stafanir í kringum Punta Arenas flug- vöUinn, sem aUtaf eru miklar, vora hertar mjög á meðan á stríöinu stóð. Nú hafa bæði Bretar og ChUemenn neitað að nokkur samningur hafi verið gerður. Mikiö er í húfi fyrir ChUe að ekki sannist slík samvinna. Chilemenn hafa nýlega gert samkomulag við Argen- tínustjóm um skiptingu nokkurra eyja við suöurodda Suður-Ameriku. Þetta samkomulag er talið í hættu komi í Ijós að Chilemenn vora á bandi Breta í Falklandseyjastríðinu. MIKIL SPENNA í SAMBÚÐ INDLANDS OG FRAKKLANDS Frá Arna Snævarr, fréttaritara DV í Lyon: MUiU spenna ríkir nú miUi Frakka og Indverja eftir hið nukla njósnamál sem komið hefur upp í Nýju Delhi. Ind- verskt blað hefur sagt aö Bolley höfuðsmaður, sem vann í sendiráði Frakka í Delhi en fór í snarhasti heim þegar upp komst um njósnirnar, muni verða lækkaður í tign. Frönsk blöö segja nú að ljóst sé aö hvorki Bandaríkin, Vestur-Þýskaland né Pakistan hafi átt hlut aðmáU. Held- ur sé þama um að ræða verslunar- og iðnaðarnjósnir og mútustarfsemi tU að liðka fyrir sölu á frönskum vopnum og háþróuðum iðnaðarvamingi. Talið er að tveir franskir og ann ind- verskur kaupsýslumaður hafi verið lykUmenn í njósnanetinu. Það hafi verið Indverjinn Kumar Narain sem sá um að bera fé á embættismenn i skiptum fýrir upplýsingar. Indverj- amir era nú í fangelsi en þeir frönsku komustúrlandi. Indverska stjómin leitar nú logandi ljósi að öðrum sem við sögu eiga að hafa komið. Eins og í öllum góðum njósnasögum vora vín og falar konur í spiUnu, að sögn blaða. Mun hinn fíni Gymkhanakiúbbur hafa verið gróðrar- stía spUlingarinnarí þessu tUfeUi. Gandhi tekur á móti þjóðarleiðtogum Rajiv Gandhi, forsætisráöherra Ind- lands, mun ganga í gegnum framraun sína sem heimsleiðtogi á mánudag. Þá verður hann gestgjafi fimm virtra þjóöarleiðtoga sem ásamt hinni látnu móður hans sameinuðust í mai í fyrra um að skora á stórveldin aö hætta tU- raunum með kjamavopn og að fram- leiöa þau. Rajiv tekur nú sæti móöur sinnar á þessum fundum. Þjóðarleiðtogarnir fimm era Miguel de la Madrid frá Mexíkó, Raul Alfonsin frá Argentínu, Olof Palme f rá Svíþjóð, JuUus Nyerere frá Tansaníu og Andreas Papandreou frá Grikklandi. Olafur Ragnar Grímsson var einn helsti skipuleggjandi þessara funda. Hann er nú í Nýju Delhi. Ráðstefnan á mánudaginn er sú fyrsta sinnar tegundar sem Rajiv Gandhi er viðstaddur sem forsætisráð- herra. Hann hefur enn ekki ferðast er- lendis síðan hann var k jörinn í embætti í desember. Gandhi situr sinn fyrsta alþjóðafund sem forsætisráðherra á mánudag. Ölafur Ragnar Grimsson áttl miklnn hlut í skipulagningu funda lelðtoganna sex. Fjármálaráðherrafundurinn: GÖNG UNDIR EYRARSUND? Ákvörðun f jármálaráðherra Norður- landanna i gær um að veita miklu rnagni f jár til vegaframkvæmda gæti orðið til að gera drauminn um Eyrar- sundsgöng hugsanlegan. Embættis- menn í Stokkhólmi seg ja að samningur fjármálaráðherranna sé um eitt stærsta samvinnuverkefni sem Norð- urlöndin hafa komið sér saman um. Þeir samþykktu að veita um 10 milljörðum íslenskra króna í vega- og járnbrautarframkvæmdir. Þetta gæti leitt til þess aö hafist verði handa um framkvæmd draumsins um göng sem myndu tengja Danmörku og Svíþjóð um hið 20 kílómetra breiða Eyrarsund. Þetta sund er nú frosið og hægt er að ganga milli landanna tveggja. Það er Per Gyllenhammer, hjá Volvo-fyrirtækinu, sem hefur verið for- sprakki slikra hugmynda nú nýlega. m------------------► Geta menn i framtiflinni keyrt undir Eyrarsund?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.