Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Qupperneq 11
DV. FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR1985. 11 Niðurskurðurogfjárskipti eru nauðvörn Yfirlýsing I tilefni af ályktun sauðf járeigenda í Tálknafjarðar-, Ketildala- og Suðurfjarðahreppi frá 7. desember 1984 viljum við undirritaðir taka fram eftirfarandi. 1. Sú stefna var mörkuð á aöalfundi Búnaðarsambands Vestfjarða 1983 aö reyna með öllum tiltækum ráöum að útrýma riðuveiki úr sauöfé á Vestfjörðum. Það sem knúði á um að samræmd stefna væri mörkuð og henni framfylgt var hröð út- breiðsla veikinnar á Barðaströnd og rökstuddur grunur um að hún væri komin til nálægra sveita. Sauðfjárbúskapur í öllu Vest- fjarðahólfi var í veði, yrði ekkert að gert. Fullreynt var talið að niðurskurður einstakra hjarða, eins og hann hafði verið fram- kvæmdur á Barðaströnd, stöðvaði ekki veikina. Því yrði áætlun er tryggja ætti útrýmingu veikinnar í Vestfjarðahólfi að ná til þess alls. Skera yrði niður allt sauðfé á skýrt afmörkuðum svæðum, þar sem veikin var staöfest og einnig þar sem nokkur grunur leyndist. Jafnframt yrði aukið og hert allt heilbrigöiseftirlit meö búfé i öliu hólfinu. Þessi stefna var ítrekuð á aðal- fundi Búnaðarsambandsins 1984. Fylgi við þessa stefnu hafa lýst aðalfundur Fjórðungssambands Vestfirðinga 1984, sýslunefndir Vestur- og Norður-lsafjarðarsýslu og Vestur-Barðastrandarsýslu, fundur fulltrúa sveitarfélaga í . Vestfjarðahólfi, sem haldinn var að Núpi30. júni 1984, o.fL 2. Þegarákveðiðeraðskerasauðféí heilum sveitum fer ekki hjá því að þar geta verið margar einstakar hjarðir ósýktar, sem skera þarf. Um slíkt er þó engin leið að full- yrða, sökum hegðunar veikinnar. Það getur því á engan hátt talist gerræðisleg aðför að einstökum fjáreigendum þótt þeir verði að lúta hagsmunum fjöldans að þessuleyti. Landbúnaðarráðherra og Sauðfjárveikivamir fara með ákvörðunarvald um varnir gegn sauöfjársjúkdómum og þar með ákvörðun um hvar niðurskurði skuli beitt. 3. Niðurstööur sýnarannsókna gefa tilefni til að óttast að riðuveiki geti verið í hjörðum sem ekki voru skornar í haust og því síst gengið of langt í niðurskurðinum nú. 4. Mikilvægt er að heilasýni séu tekin úr öllu rosknu fé í Vest- fjarðahólfi sem slátraö er eða misferst og tU næst. Riöunefndum og héraðsdýra- læknum ber að hafa eftirlit með sýnatökunni. Sláturleyfishafar bera ábyrgð á henni í sláturhúsum sínum. Oskað hefur verið eftir að riðunefndir hreppanna sjái um sýnatöku úr rosknu vanhaldafé og heimaslátruöu. 5. SauðfjárveUcivarnir og stjómvöld hafa brugðist vel við óskum Vest- firðinga um aðstoð við útrýmingu riðuveikinnar og ber að þakka það. Á Tilraunastööinni á Keldum er verið að þróa upp aðferð tii að leita að riðusmiti á frumstigi með rannsóknum á heilasýnum og hefur þar náðst verulegur árangur. Það væri því nánast út i hött að ætla einhverjum öörum aðila að annast rannsóknir sýn- anna. Ohætt mun að fullyrða að vel- flestir vestfirskir bændur bera fullt traust til starfsmanna Til- raunastöðvarinnar á Keldum og Sauðfjárveikivarna. Starfs- menn Sauöfjárveikivarna hafa haft fullt samráð við heimamenn um aðgerðir í niöurskurðar- og f járskiptamálunum og rætt þau ít- arlega við einstaka fjáreigendur og aðra þá er málið varðar. Það hlýtur að vera einkamál Sauðfjár- veikivama hvemig starfsmenn þeirra skipta með sér verkum. Við undirritaðir lýsum yfir fyllsta trausti okkar á starfs- mönnum þessara stofnana og hörmupn að heilindi og starfshæfni þeirra skuli hafa verið dregin í efa. 6. Þaö er fagnaðarefni, að fjáreig- endur í Tálknafjarðar-, Ketildala- og Suðurfjarðahreppi skuli lýsa sig fúsa til samstarfs um vamir gegn og útrýmingu á riðuveiki. Bændur í Vestfjarða- hólfi verða að standa saman ef sigur á að vinnast á riðuveikinni. Niðurskurður og fjárskipti er slæmur kostur. Þau em nauðvörn sem grípa hefur orðið til þegar í nauðir rak. Það er eðlilegt að menn greini á um framkvæmd svona aðgerðar sem umturnar búskaparháttum i heilum sveitum þó um stundar- sakirsé. Þegar ágreiningur kemur upp þarf að reyna að jafna hann án þess þó að skerða möguleikana á að ná lokatakmarkinu, þ.e. að út- rýma riðuveikinniá Vestfjörðum. Vonandi bera vestfirskir bændur gæfu til aö standa þannig að þessum málum að sigur vinn- ist. Dýraf irði, 9. jan. 1985. F.h. framkvæmdanefndar fjárskiptanefndar Vestfjarðahólfs. Bergur Torfason. F.h.stjómar Búnaðarsambands Vestfjarða. Valdimar Gíslason. SKULDABRÉFAÚTBOÐ Samband íslenskra samvlnnufélaga hefur gefiö út skuldabréfaflokk hlutdeildarskuldabréfa aö upphæö 10.000 kr. og 100.000 kr. til sölu á almennum verðbréfamarkaði. Markmið skuldabréfaútgáfunnar er þríbætt: • Að fjármagna atvinnuuppbygg- ingu með innlendu lánsfé. • Að gefa sparifjáreigendum nýjan kost á hagkvaemri ávöxtun sparifjár. • Að fara nýja leið til að efla íslenskan fjármagnsmarkað. Kaupþing hf. hefurséð um skuldabréfaútboöic í Samvinnubanka íslands hf. $ SAMBAND ISLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA f EVRÓPUKEPPNIBIKARHAFA, 8 UÐA ÚRSLIT í Höllinni í kvöld kl. 20.30 og á sunnudag kl. 20.30. Mætum og hvetjum Víking 14 liða úrslit. Miðar seldir I Höllinni frá kl. 17.00 báða dagana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.