Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1985, Blaðsíða 19
DV. FÖSTUDAGUR 25. JANOAR1985. 31 þróttir íþróttir íþróttii Íþróttir íþróttir ns og fyrirliði og ar líklegt að þair júgóslavnasku hafi akki vitað hvað stóð á um heppnir t við áfram” i Crvenka, mótherja Víkinga íkvöld eðlilegt, dómaramir og annað, ættum við að komast áfram. Ég vona svo sannarlega að okkur takist að sigra í leikjunum gegn Víkingum,” sagði Siobodan Miskovic í samtali við DV í gærkvöldi. Júgóslavamir æfðu í gærkvöldi í Réttarholtsskóla og var greinilegt að þar fara engir byrjendur í handknatt- leik. Ljóst er að leikmenn liðsins eru mjög ungir en hávaxnir og sterkbyggð- ir. Ef Vikingar ná að sýna sínar bestu hliðar ættu þeir að geta komið á óvart. Áhorfendur geta hér ráðið úrslitum. Hið unga lið Crvenka verður eflaust taugaóstyrkt í kvöld og áhorfendur ættu að geta tekiö leikmenn liðsins á taugum með öskrum og hvatningar- ópum. Það er skylda áhorfenda að hreinlega öskra Júgóslavana út úr keppninni. Full Laugardalshöll af hvetjandi áhorfendum ræöur úrslitum í leiknum í kvöld sem hefst í Laugar- dalshöllklukkanhálfníu. -sk. King tii Úlfanna Andy King, fyrrum knattspyrnu- maður Everton, sem hefur leikið með AEK Aþena i Grikklandi og hoilenska liðinu SC Cambuur undanfarin ár, er nú á fömm tU Englands á ný. Úlfarair hafa sýnt mikinn áhuga á að fá hann tU sín. -SOS. „Hlýt að mega segja að ég sé ánægður” o Jón Páll Sigmarsson sterkasti maður heims o „Má því miður ekkert segja fyrr en eftir þrjár vikur ” sagði Jón Páll í gærkvöldi „Ég má því miður ekkert segja. Við skrifuðum undir þagnareið varðandi keppnina áður en hún hófst. Þetta kemur tU vegna sjónvarpsstöðva sem hafa aUan einkarétt á frásögn af mót- inu fyrstu þrjár vikumar,” sagði kraftajötunninn Jón PáU Sigmarsson i samtali við DV í gærkvöldi eftir að hann hafði sigrað glæsUega í keppninni um nafnbótina sterkasti maður heims. „Mátt þú ekki segja að þú sért mjög ánægöur með sigurinn? „Jú, ég hlýt að mega segja þér að ég er ákaflega ánægður með þennan sig- ur,”sagði JónPáU. Keppni þessi felst í því að leysa hinar ýmsu þrautir. Draga trukka, henda trjástofnum, velta bifreiðum ákveðna vegalengd, lyfta björgum o.fl. Jón PáU hlaut 57,5 stig af 64 mögu- legum. Annar varð heimsmeistarinn í 125 kg flokki kraftlyftinga, Walters að nafni. Hann hlaut 51,5 stig þannig að sigur Jóns Páls var stór. Þriðji varð kúluvarparinn kunni, Geoff Capes frá Englandi, hann hlaut 49 stig. -SK. Það þarf stæltan likama til afl sigra í keppninni um nafnbótina sterkasti maflur heims. Allir ættu að geta verifl sammóla um afl Jón Póll sé í stæltara lagi enda sigrafli hann glæsilega. Bestu leikir Víkings eru í Evrópukeppninni Rætt viöKristjánSigmundsson landsliðsmarkvörð um Evrópuleiki Víkings ogCrvenkaogfleira „Það er vel hægt að koma leikmönn- um Crvenka úr jafnvægi og við Víking- ar förum í leikina við þá með því hug- arfari að sigra og komast í 4-liða úrslit Evrópukeppni bikarhafa,” sagði Krist- ján Sigmundsson, hinn leikreyndi markvörður Víkings, i samtaU við DV. Kristján hefur leikið yfir 200 leiki í meistaraflokki Vikings — aUa Evrópu- leiki liðsins frá 1978 — og hefur leikið 95 landsleiki fyrir ísland. Fyrri leikur Vikings og Crvenka verður í Laugar- dalshöUinni i kvöld og hefst kl. 20.30. „Hugarfar leikmanna er aUt annað í dag en fyrir tíu árum þegar ég var að byrja að leika handbolta. Þá höfðu menn ekki trú á sigri gegn erlendum liöum. I dag krefjast menn sigurs, bæði leikmenn og áhorfendur. Ég veit að leikmenn Crvenka verða erfiðir en ég tel okkur eiga jafna möguleika og júgóslvaneska liðið. Við getum sigrað með góðum stuðningi áhorfenda og samstöðu leikmanna,” sagði Kristján. Nú töpuðu Víkingar fyrir FH á dög- unum, þrátt fyrir stórleik þinn í mark- inu? „Já, við töpuöum en í hörkuleik. Við lékum stórgóðan handbolta í fyrri hálf- leik og sýndum þá að við erum á upp- leið. Þetta er bara spurning um tíma og við verðum í toppformi gegn Crvenka. Ég var ánægður með mína frammistöðu gegn FH, þrátt fyrir tap- iö. Eg fann mig vel og varði mörg erfið skot. Lékum vel á Spáni Þaö er ekki vafi að Víkingsliöiö er mjög sterkt þegar allt smellur saman. Það sýndiun við í Evrópuleikjunum á Spáni, lékum okkar bestu leiki á leik- tímabilinu og stóðum saman sem einn maður. Afrek okkar ber að skoða í því ljósi að Coronas Tres de Mayo sigraði nýlega Atletico Madrid og Tecnina, tvö stórlið í spönskum handknattleik. Peter Eror, þjálfari Vestmannaeyja- Þórs, sagði fyrir skömmu í viötali að Víkingar ættu litla möguleika gegn Crvenka. Ég tel það jákvætt fyrir okk- ur ef það verður til þess að Júgóslav- arnir vanmeta okkur. Víkingur hefur sýnt í Evrópuleikjum á undanförnum árum að liðið er mjög sterkt. Þar eru margir leikir eftirminnilegir eins og þegar við lékum við ungverska liðið Tatabanya. Víkingur sigraöi, 21—20, í Reyk ja vík. Fórum meö eins marks sig- ur í veganesti til Ungver jalands og það nægði. Við áttum stórleik og það ótrú- lega gerðist að við slógum út austan- tjaldsliö. Við höfðum trú á okkur og það skipti sköpum. Þá eru leikirnir við Atletico Madrid mjög minnisstæðir. Eftir leikinn í Madrid fékk ég tilboð um að leika á Spáni. Eg var ekki tilbúinn að fara, var þá á ööru ári í viðskipta- fræði við Háskóla íslands. Erfið ár en mikill árangur Árin með Víkingsliðinu hafa veriö stórkostleg en feikilega erfið. Við sigruðum á Islandsmótinu fjögur ár í röð, jafnoft í Reykjavíkurmótinu og höfum fjórum sinnum orðið bikar- meistarar. Kjarninn er til staðar enn í dag og við erum reynslunni ríkari. Höf- um trú á getu okkar og lið sem hefur leikmenn eins og Þorberg Aöalsteins- son, Viggó Sigurðsson, Guðmund Guð- mundsson, Hilmar Sigurgislason, Steinar Birgisson, Karl Þráinsson og Ellert Vigfússon í markinu er ekki á flæðiskeri statt. Allt leikmenn sem em sjóaöir í baráttunni með Víkingi og ís- lenska landsliðinu,” sagði Kristján Sigmundsson. Tekst Jóni Erai Slgurðssyni að vinna sér inn 10 þúsund krónur um helgina? Tíu þusund í 1. verðlaun Heljarmikið mót veröur haldið í billiard að Armúla 19 um helgina. Sigurvegarinn gengur út með tíu þúsund krónur og þrátt fyrir dýrtíðina hér er hægt að fá ýmislegt fyrir þá upphæð. Keppnin, sem er öllum opin, er með útsláttarfyrirkomulagi. Alls nemur verðlaunaféð 30 þúsund krónum. Fyrir annað sætið em veittar 5 þúsund, 2500 kr. fyrir þriðja og f jórða sætið og þúsund krónur fyrir næstu fjögur sæti. Auk þess fær sá keppandi sem nær hæstu skori 5 þúsund krónur. Það er því til mikils að vinna fyrir knattborðsleikarana um helgina. -SK. Hörkukeppni á stigamótum íbilliard Jónas P. Erlingsson varð sigurveg- ari á þriðja stigamóti Billiardsam- bandsins sem fram fór nýverið. Jónas hefur nú unnið tvö mót í röð og er efstur að stigum, hefur hlotið 89,5 stig. í öðm sæti er Ágúst Ágústsson með 89,3 stig, þriðji Jón öra Sigurðsson með 67 stig, f jórði Viðar Viðarsson með 60,2 stig, fimmti Ásgcir Guöbjartsson með 46,7 stig og sjötti er Bjami Jóns- son sjálfur með 46,5 stig. Þegar stiga- mótunum lýkur komast fjórir efstu menn sjálfkrafa i landsliðið. Næstu verkefni þess em væntanlega leikir gegn Englendingum eða Skotum. -SK. þróttir íþróttir íþróttir íþróttir Heimsmet Salazar strikað út Fyrrum heimsmet Alberto Saiazar USA,Í maraþonhlaupi, 2 klukkustundir 8 mín. og 13 sekúndur, sem hann vann í New York-maraþonhlaupinu 1981, hefur verið strikað út af stjóra frjáls- íþróttasambands Bandaríkjanna. Komlð hefur í ljós að það var ekki rétt vegalengd sem Salazar hljóp. Reynd- ist 50 metrum of stutt og þetta kom fram nýlega þegar brautin í New York- maraþonhlaupinu var endurmæld. Árangur Bretans Steve Jones, 2:08.05, sem hann náði í maraþonhlaupi í fyrra i Chicago, er besti timi sem náðst hefur í maraþonhlaupi. Framkvæmdastjóri New York- maraþonhlaupsins, Fred Below, sagði í New York í gær að ákvörðun stjórnar frjálsiþróttasambandsins hefði komið mjög á óvart. „Við munum áfrýja”, sagðl hann „því í reglum um maraþon- hlaup er leyfður 92 jarda munur hvað vegalengdina snertir — það er fré hin- um hefðbundnu 26 mðum, 385 jördum.” t kílómetrum er það 42,195. •hsím. íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.