Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Blaðsíða 3
DV. MÁNUDAGUR1. APRIL1985.
Kjör ráðast
af af stöðu
til skattsvika
Gunnþór Guðmundsson, Hvamms-
tanga, spuröi: — Viltu réttlátt
þjóðfélag? Munt þú beita þér fyrir því
að lækka hærri launin og hækka þau
lægri?
„Svarið við þessu er aö á seinasta
flokksþingi okkar alþýöuflokksmanna
í nóvember samþykktum við stefnu-
yfirlýsingu sem heitir Hver á Island?
og er um leiðir til þess að jafna eigna-
og tekjuskiptinguna í landinu. Þetta er
áætlun í efnahagsmálum um það að
jafna eignaskiptinguna til dæmis með
því að taka upp stighækkandi eigna-
skattsauka. Það eru mjög ítarlegar
tillögur í skattamálum sem miöa að
því að þurrka út skattundandrátt og
skattsvik og draga þannig úr þeim
mikla mun sem er á milli þeirra
tveggja þjóða sem byggja þetta land,
annars vegar launþega, sem selja
vinnu sína fyrir lág laun, og hins vegar
anriarra sem hafa með höndum ein-
hvern atvinnurekstur eða þjónustu og
eru raunverulega búnir að segja sig úr
lögum við þetta þjóðfélag, eru með sitt
eigiö neðanjarðarhagkerfi. Þannig er
svarið við þinni fyrri spumingu um
réttlátt þjóðfélag að það er kjarninn í
okkar stefnu aö draga úr því þjóð-
félagslega óréttlæti sem hér er. Að því
er varðar iaunin þá teljum við að
launamismunur hér sé orðinn allt of
mikill, að minnsta kosti orðinn meiri
en einn á móti tíu. Það eru til menn
sem hafa til ráðstöfunar hátt á annaö
hundraö þúsund krónur á mánuði,”
sagði JónBaldvin.
mitt aö taka afstöðu til þess. Fyrst
veröa alþýðubandalagsmenn að gera
það upp sjálfir hvers konar flokkur
þeir eru. Einu sinni voru þeir
kommúnistaflokkur og voru í alþjóða-
samtökum kommúnista, síðan geröust
þeir sósíalistaflokkur og voru enn
stalínistaflokkur. Núna eru þeir Al-
þýðubandalag. Mér skilst að þeir hafi
verið að velkjast með þessa tillögu í
tvö ár í Alþýðubandalaginu. Hún fæst
ekki afgreidd vegna þess að Alþýðu-
bandalagið stendur þrælklofiö um
þessa afstöðu. Sumir segjast vera
kratar. Aðrir segjast ekki vera kratar.
En Alþýöubandalagið hefur í hálfa öld
fyrst og fremst barist gegn krötum og
kratisma. Við náttúrlega bjóðum vel-
komna alla nýja krata,” sagði Jón
Baldvin.
Hvaðáað
geraíhús-
næðismálum?
Sigurður Gíslason í Mosfellssveit
spurði:
— Hvað ætlar þú og þinn flokkur að
gera fyrir þá sem hafa orðið fyrir því
að taka þessi vísitölutryggðu lán og
ráða ekki neitt við neitt?
„Húsnæðismálin eru fyrst og fremst
húsnæðisfjármál. Þeir sem ætla að
gera eitthvað í húsnæðismálum verða
að sýna fram á það hvar hægt sé að út-
vega peningana. Það höfum við gert
allar götur frá 1979. Fyrsta atriðið er:
Skilum byggingarsjóðum ríkisins og
verkamanna aftur tekjustofnum
þeirra sem eru launaskattur. I öðru
lagi leggjum viö til að tekinn veröi upp
stighækkandi eignarskattsauki á stór-
eignafyrirtæki og stóreignamenn sem
næðislánakerfið er orðið að tekjutil-
færslukerfi frá þeim fátæku til hinna
ríku. 25% af því sem verið er að byggja
í Reykjavík eru villur, yfir 250 fermetr-
ar og stærri. Við viljum að þeir sem
eru að byggja hóflegar íbúðir, 90—110
fermetra, fái forgang og ekki lána neitt
umfram vissa stærð.
Við viljum hækka lánshlutfallið. Það
á að vera 60% af kostnaðarverði miðað
við þá tekjustofna sem við höfum.
Lánstímann á að lengja í 42 ár sem
þýðir til samans að greiðslubyrðin
verði viðráðanlegt hlutfall af launum.”
Sigurður spurði einnig hvort athuga
ætti innflutning á húsum sem að hans
reynslu hefðu verið stórgölluð.
, Jíg þekki dæmi um svona mál og að
mínum dómi ætti að banna innflutning
á þessum húsum því þau standast eng-
an veginn samanburö við íslenska
staöla, en ég get ekkert sagt um það
hver er ábyrgur í þessum málum.”
Sjónvarp og
heyrnarlausir
Jóhannes Árnason, Kópavogi,
spurði:
— Ég tala fyrir hönd konunnar
minnar vegna þess að hún getur ekki
talaðí síma vegna heymarleysis.
Eg spyr hvort nokkuð örli á
þjónustu sjónvarps á að texta efni sitt
fyrir heyrnarlausa og heyrnarskerta.
Hér á landi eru á milli fimm og tíu
þúsund manns sem nota heyrnartæki,
fyrir utan þá sem eru alveg heyrnar-
lausir.
„Eg get ekki svarað þessu fyrir
hönd sjónvarpsins. Mér sýnist þetta
vera þörf og réttmæt ábending sem
þarfaðtakaupp.”
— og áfengi yfirleitt. En ég er ósam-
mala þér um að það eigi að banna
bjór.”
— En veistu hvemig vín virkar?
„Auðvitað geri ég þaö. Eg er ekki
bindindismaður. Hvaðvarðar umsagn-
araöilann sem spurt var um tel ég ekki
að það sé neinn alvitur í því máli.”
Flokkur
barnsins?
Anna Hjálmarsdóttir (barn), Keflavík,
spurði:
— Heyrðu, getur þú sagt mér
eitthvað um Alþýöuband. . . nei,
Alþýðuflokkinn?
„Já, ég get sagt þér margt um hann
en ég get fullvissað þig um að hann er
frekar barngóður flokkur. Og ef þú vilt
fræðast um flokkinn þá skal ég senda
þérefni umhann.”
Áætlun um að
jafna eigna-
skiptinguna
Jóhannes Sigursveinsson, Reykjavík,
spurði:
— Hefur Alþýðuflokkurinn fast-
mótaða stefnu í laúnamálum?
„Þetta er fyrst og fremst spurning
um verðmætamat og launamun.
Launamunur í þessu þjóðfélagi er
orðinn, að okkar mati, allt of mikill.
Það versta við það er þó annað:
Afkoma manna og raunveruleg kjör
ráðast raunverulega ekki svo mjög af
þeirri upphæð sem kallast laun heldur
af aðstöðu til skattaundandráttar,
skattsvika — og margvíslegum
eiga að semja um kaup og kjör í
landinu, sem eru vinnuseljendur og
vinnukaupendur, eigi að gera þetta í
samningum. En ég útiloka ekki íhlutun
ríkisvaldsins ef þetta gengur ekki
öðruvísi.”
Þjóðnýta
Aðal-
verktaka
Ingólfur Sigurðsson í Reykjavík
spurði:
— Gætiröu hugsað þér aö taka undir
aronskuna, það er aö taka gjald af
varnarliðinu, láta það byggja vegi,
hafnir og svo framvegis?
„Ég er andvígur gjaldtökuhug-
myndinni. Eg tel að við eigum að fara
eins að og Norðmenn. Þeir hafa byggt
upp flugvalla- og vegakerfi sitt meö
verulegum framlögum úr sjóðum
NATO og við eigum fullan rétt á því að
fá þannig framlög líka. Hvað varðar
aðrar hliöar þessa máls þá álít ég aö
það eigi að þjóðnýta íslenska aðal-
verktaka.”
Fæég
nælu og
lykiakippu?
Lúðvík Thorberg Helgason, Tálkna-
firði, sagði:
-1 einkamáladálkum DV rakst ég á
auglýsingu um aö alþýðubandalags-
fólki stæði til boða merkið „hnefinn og
rósin” og ætti það að hafa samband við
Ámunda Ámundason. Varst þú höfund-
ur hennar eða var hún sett að þínu und-
irlagi í blaöið?
Eg var ekki höfundur hennar, menn,
sem eru að gera aö gamni sínu, spyrja
inig ekki fyrirfram. Ætli það hafi ekki
verið Ámundi sem gerði þetta.”
— Vildir þú í framhaldi af þessu sem
alþýðubandalagsjafnaðarmaður út-
vega mér þetta ágæta f yrirbæri sem ég
hef reyndar aldrei séð?
Eg skal senda þér það um hæl, bæði
lyklakippu og barmmerki.”
Bifreiða-
tryggingar
Jón S. Jónsson, Akranesi, kvaðst
vera óánægður með hækkun bifreiða-
trygginga sem hann taldi forkast-
anlega. „Er ekki hægt að koma í veg
fy rir þetta? ” spuröi Jón S.
Jón Baldvin svaraði:
„Tryggingafélögin framvísa bara
reikningumog segja: Þetta er það sem
við þurfum. Síðan er þeim bara afhent
það sem þau vilja þó að reynt sé að
klípa eitthvað af því. Þau sjá auðvitað
við því með því að gera áætlunina bara
hærri. Með öðrum þjóðum er ekki um
neitt slíkt kerfi að ræða. Þar verða
fyrirtækin bara að spjara sig í sam-
keppni. Þaö þarf að koma á löggjöf á
Islandi gegn hringamyndun og ein-
okunarverðmyndun. Það á bæði við til
dæmis tryggingafélögin og olíu-
félögin,” sagði JónBaldvin.
Ellert B. Schram ritstjóri, Jónas Haraldsson fréttastjóri og Arnar Páll Hauksson blaðamaður með Jóni Baldvin Hannibalssyni á beinni linu DV.
DV-mynd KAE.
Allaballar
velkomnir
í hóp krata
Sigurjón Sigurgeirsson, Akureyri
spurði:
— Ertu meðmæltur því aö Al-
þýðubandalagiö gangi í alþjóöasamtök
jafnaðarmanna? Ef svo er eru þá þrír
jafnaðarmannaflokkar á Islandi?
„Venjan er sú að þaö eru ekki fleiri
en einn flokkur aðili aö alþjóða-
sambandi jafnaðarmanna frá hverju
landi. Þó eru á því undantekningar, til
dæmis Italía og Belgía. Þaö er ekki
á að skila ríkissjóði tveimur milljörð-
um og þessum fjármunum ætlum við
fyrst og fremst að verja til þess að
gera átak í húsnæðismálum. Þá viljum
við taka hluta af svokölluðu bundnu fé
Seðlabanka og íf jóröa lagi leggjum við
til að hagnaður Seðlabanka verði gerð-
ur upptækur í ríkissjóð. Síðan þarf
mörgu að breyta. Þaö er í fyrsta lagi
að lengja lánstímann. Hins vegar mun-
um við ekki falla frá verðtryggingu,
það væri aðeins gjöf til atvinnurek-
enda. Hins vegar verður að greiða því
fólki til baka það sem það greiddi um-
fram það sem kaupgjaldsvísitalan
mældi, í formi lengingar á lánstíma og
stöðvunar á slíkum greiðslum.
Við erum með hugmyndir um að
breyta verulega stofnanakerfinu og
lánakerfinu. Það er makalaust að hús-
Veistu hvern-
ig vín virkar?
Þórir Eiriksson í Reykjavík spuröi:
— Mér skilst aö þú sért einn af
flutningsmönnum bjórfrumvarpsins.
Hverja telur þú hæfustu umsagnar-
aðila um þetta mál?
„I mínum huga er þetta ekki
spurning um bjór eða ekki bjór. Þetta
er spuming um hvort við eigum að
bann hann. Landið er fullt af bjór. Bjór
er fluttur inn af farmönnum, flugá-
höfnum, honum er smyglaö og hann er
bruggaður í landinu. Hér spretta upp
bjórstaðir en ef við lítum á bjór sem
háskavöru þá eigum við að banna hann
hlunnindum. Ef spurt er um fast-
mótaða stef nu í launamálum þá vilj um
við vinna að því að þurrka út skattsvik
og skattundandrátt, hreinsa til í þjóð-
félaginu að því er það varðar þannig að
upplýsingar um raunveruleg laun og
raunveruleg kjör liggi fyrir og draga
úr óeölilegum launamun sem við
teljum aö sé oröinn meiri en einn á
móti tíu.”
— Mun Alþýöuflokkurinn beita sér
fyrir lagasetningu um hækkun lág-
markslauna?
„Við höfum flutt slfkt frumvarp á
Alþingi einfaldlega sem neyðar-
ráðstöfun vegna þess að við töldum, og
teljum, að lægstu laun dugi engan
veginn til þess að framfleyta
f jölskyldu. Samt sem áður tel ég þetta
óæskilega leiö. Við teljum að þeir sem
Hvererfífl?
Sveinn Baldursson í Reykjavík spurði:
— Nú segist þú vera mikiö á móti
kerfinu. Þrátt fyrir það auglýsa fjöl-
miðlar þig upp, fjölmiðlar sem kerfið
á. Hvemig fer þetta saman? Ert þú að
hafa okkur að fíflum eða er einhver að
hafa þig að fífli?
„Þú verður að svara fyrir sjálfan
þig hver er fífl. En þetta með að fjöl-
miðlar séu að auglýsa mig upp kannast
ég ekki við. Hins vegar vil ég benda á
að ég skrifa mikið í blöð, er virkur á
þann hátt. Þá hefur mikil fylgis-
aukning Alþýðuflokksins vakið at-
hygli. Athygli f jölmiðla hefur þá beinst
að ákveðnum aðgeröum, ákveðnum
ummælum eöa ákveðnum stefnuyfir-
lýsingum, eða ákveönum greinum sem
ég hef skrifað í blöð.”