Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Blaðsíða 13
DV. MANUDAGUR1. APRlL 1985. 13 Kjallarinn STURLA BÖÐVARS- SON SVEITARSTJÓRI, STYKKISHÖLMI styrkja einingahúsaframleiöendur við þróun framleiðslunnar, bæði á sviði hönnunar og vél- og tæknivæðingar, mætti vafalaust lækka byggingar- kostnaöinn verulega. Slíkar aðgerðir gætu auk þess létt róður húsbyggjenda og dregiö úr fjárþörf vegna húsbygg- inga. Samræmdar aðgerðir við efnisinn- kaup, nýtingu innlendra hráefna, rannsóknir á byggingarefnum og ráð- gjöf við rekstur eru þær ráðstafanir sem stjómvöld þurfa að beita sér að þegar búið er að leiða húsbyggjendur frá gjaldþroti. Samhliða endurskipulagi í bygging- arstarfseminni þarf aö tryggja fjár- magn til þeirra verksmiðja sem ann- ast framleiðslu byggingarhluta. Framangreindar aðgerðir munu stuöla að bættum hag og stöðugleika þessarar-mikilvægu atvinnugreinar. Eina leiðin til þess að taka myndar- lega á þessu er að iðnaðarráðuneytið feli t.d. Iðntæknistofnun að annast verkefniö og hrindi af stað róttækum aðgerðum í byggingariönaðinum. Hluti þeirra 500 millj. sem ríkisstjóm- in hefur ætlað til styrktar nýsköpun í atvinnulífinu ætti að nota til beinna styrkja til einingahúsaverksmiðjanna til þróunar framleiðslu þeirra. Slík fjárfesting er fjárfesting í spamaði sem mun bæta lífskjör í landinu. Sturla Böðvarsson Ringulreið f Háskólanum — hugleiðingar í tilefni rektorskjörs Vegna mikillar umræðu undan- fama daga um stöðu Háskólans og samskipta hans við atvinnulífið tel ég mig knúna til að legg ja orð í belg. Svo er mál með vexti að ég er skráð stúdent í Hl en stunda þar ekki nám sem stendur. Háskólinn opnaði dyr sínar fyrir mér sem og svo mörgum öðrum árið 1982. Gekk ég þá glöð og einbeitt að verki, skráði mig í það sem ég taldi liggja næst mínu áhugasviöi. Ég horfði glöð og bjart- sýn til framtíðarinnar og verunnar innan veggja æðstu menntastofnun- ar landsins. Nú er áriö 1985 og viöhorfið allt annað hjá mér og mörgum öðrum sem ég átti samleið með. Það sem við höföum valið okkur að læra var nefnilega alveg ný námsgrein við Hl. Það sem beið okkar haustið 1982 var þvílík ringul- reið og úrræðaleysi að því verður varla lýst. Skipulagsleysi Eg held aö okkar námsbraut sé ekkert einsdæmi um hvemig búið er að nýjum og jafnvel gömlum náms- brautum innan Háskólans. Hún var lítt kunn og þeir sem leituðu vel í námslýsingu HI fundu kafla sem var ruglandi að því leyti að hann lýsti í senn fyrsta námsári nýju náms- brautarinnar en síðan ööru og þriðja námsári þeif-ra sem lagt höfðu fyrir sig „gamla námið”. Þar var hvergi að sjá neina lýsingu á því efni sem námsbrautin inniheldur í heild eða fimm ára nám. Við áttum því fljótt eftir að komast upp á lag með að skrá okkur á námskeið sem við vissum ekki hvað hétu, hver myndi kenna og hvemig yrðu metin. Einn- ig horfðum við upp á sívaxandi húsnæðisvanda sem verður víst ekki leystur í bráð með því sleifarlagi sem nú er á afgreiðslu þess máls. En hvað er þaö eiginlega sem ræöur því hvenær verður byggt yfir námsbrautina? Að sjálfsögðu er það forstöðumanna hennar að vekja máls á þessu og fylgja því ærlega eftir. Síðan er það yfirstjóm Háskól- ans sem deilir út fé til þessa. Eg vildi bara (ef ég gæti) spyrja okkar mjög svo frambærilegu menn, rektorsefn- in, hvers vegna sé verið að koma á laggimar, í sjálfu sér þörfum og nýtum, námsbrautum sem engu hafa yfir að ráða? A ég þá við húsnæði, mannafla og tækjabúnað. Hverjum er verið að þóknast? Er það atvinnu- lífiö sem heimtar það eða er það kannski ósk kennaranna i hinum ein- stöku greinum vegna verkefna- skorts? Við stúdentar óskum að sjálfsögðu eftir að fá meira að velja úr — annað væri óeðlilegt. En ef þetta aukna valfrelsi um náms- greinar þýðir annars flokks menntun •þá er ég ekki tilbúin að samþykkja útvíkkun Hl á æ fleiri sviöum. Verkefni fyrir verðandi rektor Eitt var það sem sló mig alveg sér- staklega eftir því sem ég kynntist Háskólanum betur gegnum störf mín í stjórnamefnd viðkomandi skorar. Það var sambandsleysið milli skora innan deilda hans og sömuleiðis milli hinna einstöku deilda sem oft á tíðum verða að vinna saman, en gera þó ekki. I okkar tilfelli sóttum við nám aö miklu leyti til annarrar deildar, en hvorug umræddra deilda vildi vita af tilveru hinnar. Verð ég þó að segja að gestgjafadeild okkar reyndist raunsærri gagnvart okkur og kom í heild mjög vel fram við „gestina”. Eg vona innilega að verð- andi rektor, hver sem hann verður, sé reiðubúinn að horfast í augu við þvílík vandamál sem ég hef lýst aö framan og sé þar að auki tilbúinn að hlusta á mæddar raddir stúdenta sem lent hafa í ólgusjó ringulreiöar- innar sem ríkir í skólanum. Allir vilja kenna fjármagnsleysinu um vandann. Auövitað er það stór þáttur af vandamálinu en það er bara ekki mergurinn málsins. Það er að mestu leyti röng dreifing fjár og nýting þess, auk þess sem margir fastráðn- ir starfsmenn Hl eru staddir á röngumstað. Burt með æviráðningar Hverjir eru áreiðanlegustu heim- ildarmenn um það hver er góöur kennari og hver ekki? Auðvit- aö er dómur nemandans áreiðanleg- astur, um það er enginn vafi. Þess vegna fylgdi ég Vökumönnum að Kjallarinn ALMA BIRNA ALMARSDÓTTIR HÁSKÓLASTÚDENT máli, þó ég sé enginn „vökustaur”, þegar þeir lögöu fram á stefnuskrá sinni í kosningunum til stúdentaráðs 1984 að stúdentar skyldu ráða því hvaða stundakennari, lektor eða jafnvel prófessor héldi sinni stöðu vegna augljósrar hæfni viðkomandi. Og því segi ég: Burt með æviráðning- ar innan Háskóla Islands! Þær virka oft á tíðum lamandi fyrir starfið í skólanum. Það verður að gera það eftirsótt að vinna við hann, aöeins þannig er hægt að auka virðingu hans og skapa „dýnamískan” skóla þar sem allar deildir hafa sama markmið að vinna að, en sitja ekki hver í sínu homi og keppast við að ota sínum tota. Þá á ekki að skipta máli í hugum manna hvort rektor er hugvísinda- eða raunvísindamaöur eins og vill brenna við núna. Saga litlu námsbrautarinnar er ekki úti. Hún óx og varð stór því margir hafa áhuga á að stúdera við hana. Saga hennar getur orðið sorg- leg því margir nemenda hennar hyggjast yfirgefa hana og fara utan þegar kostur gefst. Vonandi er þetta tímabil upplausnar brátt á enda og við stúdentar getum horft jafnbjart- sýnir á framtíðina og atvinnulífið og undirrituð geröi fyrir þrem árum. Vonin er að miklu leyti bundin við að sjá nýjan, ferskan gust leika um rektorsembættið. Anna Birna Almarsdóttir. Dýrasta þjóðarsport íslendinga Nýjungafíkna trúgimisstefnan stjórnvalda — ávexti nýjungafíknu trúgirninnar í atvinnumálum lands- manna? Þessi atvinnugrein er sjávarútvegur og fiskvinnsla. Byggingakostnaður loftkastalasmiðanna Þeir menn sem hamast hafa viö loft- kastalasmíöina í atvinnumálum lands- manna hafa gert þaö allt saman upp á krít í útlendum bönkum. Hver halda menn aö leggi til gjaldeyrinn upp í vexti og afborganir þeirra lána? Er það iönaöurinn margumtalaði sem er á góðri leið meö að gera Island að varan- legu láglaunasvæði? Er það land- búnaðurinn sem kominn er á opinbert framfæri? Nei — það er sú einasta framleiösluatvinnugrein í landinu sem hefur getað staðið á eigin fótum; sjávarútvegurinn. Sú atvinnugrein hefur nú verið svo blóðmjólkuð í þágu gæluviöfangsefna og loftkastalasmiða að ekki hefur hún lengur nógu mikið afgangs til þess að tryggja starfsfólki sínu sambærileg kjör við starfsbræður þess í nálægum löndum 1 — sem þó komast ekki með tæmar þar sem íslenzkir sjómenn hafa hælana í af- köstum. Þessi atvinnugrein er látin borga mistökin viö Kröflu, sem kosta þjóöar- búið árlega jafnháa upphæö og það kostar aö reka Háskóla Islands. Þessi atvinnugrein hefur verið látin borga ævintýrið um samkeppnina við sólina á Spáni um að búa til salt. Þessi atvinnugrein stendur undir kaupum og uppsetningu á þremur pappírsbleiuverksmiðjum fyrir þúsund bamsrassa. Allt er þetta borgað og keypt með gjaldeyri sem þessi atvinnugrein hefur skapaö. Ambassadorar „íslenskrar þekkingar"! Þessari atburöarás veröa menn að snúa við —á meöan enn gefst til þess tími. Nýjungafíknu trúgirnisstefnunni veröur að setja einhver takmörk, ann- ars förum við öll á vonarvöl. Hún má ekki til eilífðamóns vera sú glýja í augum þjóðarinnar sem lætur hana gleyma því atvinnulífi sem hún þekkir og kann til verka í. Hypjum okkui- því sem allra fyrst úr jakahlaupinu og aftur upp á þurrt þar sem menn hafa fast land undir fótum og geta staðiö báðum í senn á jörðunni. Snúum okkur svo aö því aö auka verðmæti sjávar- afurðaframleiðslu okkar, m.a. með frelsi í útflutningsviðskiptum og sam- keppni útflytjenda um hæsta verð og bestu markaði. Þannig sköpum við tækifæri til þess að gera kjaralega eftirsóknarvert að veiða og verka fisk eins og það myndi vera ef þessar at- vinnugreinar fengju aö njóta eölilegr- ar framþróunar og uppbyggingar í friði fyrir trúgjörnum loftkastalasmið- um sem stunda sínar byggingafram- kvæmdir á reikning sjómanna og fisk- verkafólks. Nýjasta afkvæmi nýjungafíknu trúgirnisstefnunnar er sú yfirlýsing iðnaðarráðherra. að hann hyggist ráöa „Þeir menn sem hamast hafa við loftkastalasmíðina í atvinnumðlum landsmanna hafa gort það allt saman upp á krít i útlendum bönkum." sér ambassadora til þess aö selja íslenzka loftkastalasmiði í útlöndum undir vörumerki „íslenzkrar þekking- ar”. Fíntskalþað vera. Eg væri á stundinni tilbúinn aö „selja” þá „sérþekkingu” fyrir ekk- ert, sem „gaf” okkur Kröflu, saltverk- smiöju, Norðurlandanegrakossamask- ínu og aðrar vorrósaroliur íslenzkra atvinnumála — ef bara einhver viðtak- andifyndist. Sighvatur Björgvinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.