Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Blaðsíða 61
DV. MANUDAGUR1. APRlL 1985.
61
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Skottulæknir einn í Bandaríkjunum
hefur sett á stofn klíníkstofu þar sem
hann sinnir því fólki sem vill breyta
útliti sínu af einhverjum ástæðum.
Ekki þætti þetta í frásögur færandi ef
ekki væri þaö aö hann hefur auglýst að
hann hafi stööluö form á boöstólum.
Menn geta fengið nef eins og Robert
Redford eöa höku eins og Goldie Hawn.
Efniö sem dotesinn notar er brjósk úr
svínseyra. AÍdeilis svínslegt.
Bruce Springsteen:
SCOTCH-DISKETTUR
FRÁ 3M MEÐ
LÍ FSTÍÐ ARÁB YRGÐ
diskotU
Eigum fyrirliggjantí; diskettur I flestar tölvur og skráningavélar á hagstæðu verði,
Útvegum einnig harða diska, segulbönd og segulkort með stuttum fyrirvara.
Gerum magntilboð. Hafiö samband. Lifstíöarábyrgð segir alla söguna.
ARVIK
Ármúla 1.
Sími 687222
Bjartasta von rokksins
Maöur er nefndur Bruce Spring-
steen. Hann er kallaður „The Boss” í
rokkinu. Það er mál manna aö hann sé
bjartasta von rokksins. Á fyrri hluta 8.
áratugarins sagði popp-gagnrýnandi;
„Eg hefi augum litiö framtíö rokksins,
Bruce Springsteen.” Mönnum varö
snemma ljóst aö hér fór maður sem
stefndi hátt. Enda hefir komiö í ljós að
hann hefur ekki brugöist vonum
manna. Nýjasta plata hans „Born in
the USA” hefir selst í ríflega sjö
milljónum eintaka og hljómleikaferðir
hans eru óteljandi. Hann er stórt nafn í
rokkinu, ansi stórt.
Bruce Springsteen er lifandi dæmi
um hinn eina sanna draum þeirra í
Ameríku, ameríska drauminn. Hann
byrjaði lágt en nú veit hann ekki
milljóna sinna tal en hann heldur engu
að síöur í hugsjónir sínar sem glöggt
koma fram í textum hans. Hann þykir
um margt sérstakur hljómlistar-
maöur. Hann heldur áhorfendum
sínum stórkostlega „veislu” í heila
fjóra tíma. Meðan hinir sem í
poppinu eru fyUa upp með alls kyns
skemmtiatriöum og aukanúmerum.
Springsteen er ekki á þessari línu,
hann er yfirleitt aUan timann á sviðinu
íklæddur snjáöum gallabuxum og
leðurvesti og kyrjar lög sín meö festu
og glæsibrag.
„Eg er sennilega ríkur en innra meö
mér er ég fátækur og mér finnst aö ég
hugsi sem fátækur,” — segir Spring-
steen. Honum virðist ekki þykja mikiö
tU peninga og ríkidæmis koma. Hann
segir: „Þaö er ekki mikið variö í aö
horfa á veröldina úr aftursætinu á
stórri límósínu.” Þetta lýsir viöhorfum
hans vel, hann gefur lítiö fyrir þann
glamúr sem oftast fylgir stjörnum,
jafnvel þeim sem hafa svipaðan bak-
grunnoghann.
Springsteen kom fram á sjónarsviöið
í New Jersey áriö 1973 og hefur leiö
hans legið uppá viö síöan. Fyrsta stóra
platan hans bar nafniö Greetings from
Ashbury Park. Hún vakti nokkra
athygU en ekki nóga til aö gera hann
frægan. Hún var spfluö mikið á út-
varpsstöðvum sem sérhæfa sig í rokk-
tónlist. Sú plata sem skaut honum upp
á stjömuhimininn var Born to Run og
var hans þriðja plata, kom sú út áriö
1975. Æ síðan hefur stjarna hans skinið
í gegnum móöu skrumara í poppi og
diskótónlist sem nóg er af í Banda-
ríkjunum og hefur hann veriö mikið
umtalaöur þar í landi. Hann hefur
prýtt forsíöur margra blaða víöa um
heim m.a. Newsweek og Time. Hann á
margt enn í pokahominu aö eigin sögn
en hann heldur fast viö markaða stef nu
sína og lætur eigin hug ráöa feröinni,
en ekki skrum og tískusveiflur sem
margir hafa fylgt og farið flatt á. Víst
er aö Bruce Springsteen hefur ekki
sagt sitt síðasta og stjama hans á eftir
aö lýsa mönnum veginn lengi enn.
Einn keppenda æfir af kappi.
Þar suður f rá kasta
menn dvergum
Til stóð fyrir skemmstu aö halda all-
nýstárlega keppni á Nýja-Sjálandi.
Vertar á vertshúsum höföu skipulagt
keppni þar sem keppa átti í hver gæti
kastað dverg lengst. Þegar þetta
fréttist brugðust menn ókvæða viö og
mótmæltu kröftuglega. Þúsundir bréfa
streymdu inn og menn söfnuöust sam-
an til að mótmæla. Svo menn uggöu
nú um framtíð keppninnar. Þegar síö-
ast fréttist voru menn enn aö skegg-
ræða hvort taka ætti þá áhættu að
halda keppnina. I óvissu sinni vom þó
keppendur aö æfa af kappi, ef ske
kynni.