Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Blaðsíða 22
22
DV. MÁNUDAGUR1. APRIL1985.
ÞORSC/Wfi
IBENll
DM8H
MlfiVIMDAGire 3. APRIL
r-1
Húsið opnað kl. 19.00
Fordrykkur í anddyri.
Páll Eyjólfsson leikur spánska gítartónlist.
MATSEÐILL
Rjómasveppasúpa. Glóðarsteikt marinerað
lambalæri með maiskomi, rósinkáli,
steinseljukartöflum og bemeisósu.
Desert: Rjómarönd með mandarínum.
SKEMMTIATRIÐI
Benidorm ferðakynning, myndasýning og
kynning á ferðaáætlun sumarsins.
ÞÓRSKABARETT Júlíus, Kjartan, Guðrún,
Saga og Guðrún flytja bráðfyndið skemmtiefni.
DÚETTINN Anna og Einar syngja ástarsöngva.
ÁSADANS: Þau snjöllustu fá verðlaun.
FERÐABINGO
Spilað verður um ferðavinninga til Benidorm |
DANS
Hljómsveitin Pónik og Einar leikur fyrir dansi.
BORÐAPANTANIR
| miða og borðpantanir í síma 23333 frá kl. 16.00. |
l^jFERDA..
m MIÐSTODIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
Útboð og atvinna
Á undanfömum mánuðum hefur
talsvert veriö fjallaö um útboö á
vegum hins opinbera í fjölmiðlum,
og þá sérstaklega um útboö Vega-
geröar ríkisins og hlutdeild „heima-
manna” (heima í héraði) í þeim.
Sýnist hér sitt hver jum eins og við er
að búast en „heimamenn” þykjast
fótum troönir af hinum stærri verk-
tökum sem bjóöi lægra í verkin en
eölilegt geti talist.
Svo vikið sé aö VR þá er þaö stefna
hennar að bjóöa út á almennum
markaði öll verk stór og smá s vo sem
lög gera ráö fyrir. Er það hárrétt
stefna og lýðræðisleg sem hlýtur aö
spara þjóöarbúinu stórfé. Þaö þýöir
og væntanlega fleiri kílómetra af
varanlegum vegum sem kemur
okkur öllum til góöa.
Ein er sú stétt manna sem hvaö
haröast berst gegn þeirri stefnu VR
aö bjóöa út ÖU verk en það eru vöru-
bílstjórafélög víöa um land.
Að þeirra mati mun sú stétt manna
lognast útaf og fólksflótti af lands-
byggöinni aukast verulega ef VR
breytir ekki stefnu sinni hvaö varðar
útboð á hinum ýmsu verkum. Ekki
er annað aö skilja á þeim vörubil-
stjórum en færa eigi þeim verkin og
vinnuna á silfurfati heim í héraö þ.e.
sama gamla einokunin.
Já, þeim er mikið niðri fyrir bU-
stjórum úti um land en maður veltir
því fyrir sér hvort hugur fylgi máli.
Er það virkUega ætlun þeirra aö sem
flest verk VR veröi aö þeim rétt og
unnin eftir „gamla” kerfinu, í
reikningsvinnu?
Er þaö ætlun þeirra aö VR taki
hugsanlegum tilboðum heimamanna
í verk heima í héraði þó þau séu
hærri en annarra sem í b jóöa?
Er þá ekki til lítils aö bjóöa út
verkin?
I greinargerð frá vörubUstjóra-
félaginu SnæfeUi á Austurlandi er
deilt mjög á útboö í vegagerð og sagt
að þaö muni kippa lífsgrundvelli
undan 9—11 þúsund manns úti á
landsbyggðinni ef svo heldur sem
horfir.
Þetta eru stór orð, hvaö með þá at-
vinnu sem hinir ýmsu verktakar
(útboös) hafa veitt og munu veita
fólki úti á landsbyggöinni t.d. í vega-
gerö, jafnvel „vinnuvélaeigendum
og bílstjórum” svo ekki sé talað um
þaö fólk sem fylgir sínu fyrirtæki í
vinnu. Þetta er fólk og þarf aö vinna
líka og vinnur vel. Já, hér er hlaupiö
upp tU handa og fóta en bara í vit-
Kjallarinn
HALLGRIMUR
EINARSSON
STARFSMANNAFULLTRÚI
gangsréttar tU vinnu við verkið á
undan eigin tækjum á gUdandi kaup-
töxtum á hverjum tíma.” Tilvitnun
lýkur.
Viö hvaö er átt hér? Á aö bjóöa út
stærstu verkin eingöngu en síðan
ætla vinnuvélaeigendur og vörubíl-
stjórar af viökomandi svæöi aö vinna
þau á „gUdandi kauptaxta”. Hér á
ekki bara aö gleypa eitt, heldur aUt,
ekki taka neina áhættu, láta aöra um
þaö. Aö, aöeins veröi boðin út þau
verk sem tækjakostur úr nálægum
byggðarlögum ráði ekki viö en
skylda síðan viðkomandi verktaka tU
að nota tæki og bUa úr þeim byggðar-
lögum. — Hver á aö skilja þetta?
Sem betur fer eigum viö dugandi
verktaka í landinu sem leggjast ekki
í vol og væl þó móti blási en bjóöa
fram tækniþekkingu sína, góðar
vélar og ekki síst góðan mannskap í
hvaða verk sem er, hvar sem er á
landinu.
^ „Eðlilegast er að líta á landið allt
w sem einn markað í þessu tilfelli og
að vinnuvélaeigendur og bílstjórar úti
um land nýti sér það eins og hverjir
aðrir verktakar.”
lausa átt. Vissulega er fólksflótti af
landsbyggðinni vandamál út af fyrir
sig en þar held ég aö útboöum á
vegum hins opinbera veröi vart um
kennt. Hins vegar munu útboö á
hvers konar framkvæmdum hvaö
varöar vega-, hafna- og flugvaUa-
gerö aö mínu mati einmitt stuöla aö
minnkandi fólksflótta af landsbyggö-
inni, bættar samgöngur hljóta aö
hafa áhrif þar á. Þá hefur VR lýst því
yfir að þetta sé það sem gildi (þ.e.
útboö) og mun ódýrara í framkvæmd
— það hafa dæmin sannað.
I áöurnefndri greinargerö frá VBF
SnæfeUi segir orörétt: „Skorað er á
Alþingi og ríkisstjóm aö fella úr gildi
heimildir tU útboös, nema á aUra
stærstu verkum s.s. viö jaröganga-
gerö og virkjanir sem tækjakostur
viökomandi og nærliggjandi
byggöarlaga ræöur ekki viö en binda
þau útboð þó því skUyröi aö hverjum
verktaka sé skylt aö láta aUt vinnu-
afl og aUar frambærUegar, nothæfar
vinnuvélar og vörubUa viðkomandi
byggöarlags njóta óskoraös for-
EðUlegast er aö líta á landið aUt
sem einn markaö í þessu tUfeUi og að
vinnuvélaeigendur og bílstjórar úti
um land nýti sér þaö eins og hverjir
aörir verktakar. Nú er einmitt
ástæöa til að taka höndum saman og
stuðla aö enn frekari útboðum
verka af öUu tagi um aUt land. Þaö
er langbesti kosturinn. Taka á vand-
anum, ekki velta honum af sér yfir á
aðra.
Við skulum halda okkur viö ártaUö
1985. Það eru breyttir tímar og að
þeim verðum viö aö reyna aö laga
okkur öll. Vonandi heldur ríkisvaldið
uppteknum hætti og býöur út ÖU verk
á sínu sviöi eins og lög gera ráö fy rir.
Það er von mín aö vörubílstjórar
og vinnuvélaeigendur úti á lands-
byggðinni beri gæfu tU aö vinna
saman og byggja upp sína atvinnu og
sitt samstarf og sækja fram á vinnu-
markaöinum á sama grundveUi og
svo margir verktakar, á grundvelU
laga frá árinu 1970 um útboö á
verkum á vegum hins opinbera.
HaUgrímur Einarsson.
„Sem betur fer eigum við dugandi verktaka í landinu sem leggjast ekki í vol og væl þó móti
blási en bjóða fram tækniþekkingu sína, góðar vélar og ekki síst góðan mannskap í hvaða
verk sem er, hvar sem er á landinu."