Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Side 38
38
DV. MÁNUDAGUR1. APRIL1985.
„HEILSAN GÓD EN
HRÆÐILEGA KALT”
— sagði Rúnar
Jónssonum
verunaí20
stigagaddi
á sprungu-
barminum
Frá Hannesi Heimissyni, frétta-
manni DV á Egilsstöðum:
„Jökullinn opnaðist skyndilega og
Kristján féll niður. Og ég vissi sjólf-
ur ekki fyrr en sprungan' var við
framenda skiðanna hjá mér,” sagði
félagi Kristjáns Hálfdánarsonar,
Rúnar Jónsson, en engu mátti muna
að hann félli niður í sprunguna á eftir
Kristjáni.
„Okkur brá óskaplega við að sjá
Kristján hverfa niður. En það var
ólýsanlegur léttir er viö heyrðum í
honum og aö hann hefði ekki
slasast.”
Rúnar sagði ennfremur aö sér og
Friðriki Sigurðssyni hefði liðið
þokkalega i kuldanum viö sprungu-
barminn. „Heilsan var góð en það
var hræðilega kalt.”
Fyrstu viðbrögð þeirra Rúnars og
Friðriks, eftir að Kristján féll niður í
sprunguna, voru að koma sér út af
hættusvæöinu en þeir voru ó sprung-
unnillka.
„Við reistum okkur smáskýli sem
við hírðumst síðan í og sváfum þar
um nóttina i svefnpokum,” sagöi
Rúnar.
Og ekki vantaöi kuldann, 18 til 20
gráða frost, auk þess sem það var
noröaustan rok og skafrenningur.
Lífsreynsla þessara manna er ótrú-
leg.
Og allan tímann gættu þeir þess að
hafa samband við félaga sinn, Krist-
ján Hálfdánarson, á minnst 2 klukku-
stunda fresti.
-JGH
Sprungan sem Kristján hvarf niður um. Hún var mjó, um 11/2 metri að breidd. Og brúnin
Strax tilkynntaö
Kristján væri
ómeiddur
Frá Hannesi Heimissyni, frétta-
manni DV á Egilsstöðum:
Rúnar Jónsson lagði mikla
áherslu á það að hann hefði strax tfl-
kynnt að félagi hans, Kristján Hálf-
dánarson, væri ómeiddur niðri í
sprungunni. Þetta væri mikilvægt
því fyrstu fréttir af atburðinum voru
á þá leið að Kristjón hefði slasast.
Auk þess vildi Rúnar geta þess að
þeir félagar væru óhressir með að
björgunarsveitin á Egilsstöðum
skyldi ekki hafa veriö kölluð strax út.
I henni væru menn sem þekktu best
þaösvæði þar sem óhappiö henti.
Með þessu erum við alls ekki að
kasta rýrð á neina því svo sannar-
mjög varasöm og gat gefið sig hvenær sem var. lega þökkum við öllum þeim sem
hlut áttu að máli og veittu okkur
þessa ómetanlegu hjálp. -JGH
Þeir félagar á góðri stundu eftir ótrúlega helgi. Talið frá vinstri: Friðrik
Sigurðsson, Rúnar Jónsson og Kristján Hálfdánarson.
Skyndilega opnaðist þessi sprunga og Kristján hvarf niður. Giskað
hefur verið á að sprungan hafi verið um 30 metra djúp. Svarti bletturinn
er hyldýpið. Þegar þessi mynd er tekin er Kristján niðri í sprungunni.
Lina liggur til hans.
DV-mynd Rúnar Jónsson.
Vel búnir
ítveim
stökkum
ogþrennum
buxum
Frá Hannesi Heimissyni, frétta-
manni DV á Egilsstöðum:
Utbúnaður þeirra Kristjáns, Rún-
ars og Friðriks var eins og best verö-
ur á kosið. Þeir voru í tveim stökkum
og þrennum buxum. Nægan mat
höfðu þeir einnig. Það eina sem þeir
telja sig hafa vantað var 45 metra
lína og 2 til 3 ísskrúfur. Að sögn
Kristjáns hefði hann hugsanlega
komist upp af sjálfsdáðum ef hann
heföihaftísskrúfurmeöferðis. -JGH
Skýlið sem þeir Rúnar og Friðrik hirðust í á meðan þeir blðu eftir hjálparmönnum. Og sannarlega var hún
köld, vistin, hvorki meira né minna en 20 gráða frost, og rok.
Búnaðurinn skoðaður I slysavarnahúsinu á Egilsstöðum