Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Blaðsíða 16
16
DV. MANUDAGUR1. APRlL 1985.
Spurningin
Heldur þú að Víkingarn-
ir komist áfram í
Evrópukeppninni í
handknattleik?
(Spurt fyrir helgi).
Ölafur Már Ölafsson nemi: Já, ég hef
trú á þvi að þeir komist áfram. Eg
geri samt ráð fyrir því að þeir tapi
leiknum úti um helgina með svona
þriggja til fjögurra marka mun.
Sigfús Eiríksson múrari: Það er ekki
nokkur vafi á því. Eg hef stólpatrú á
því að þeir beri sigur úr býtum þarna
ytra.
Erla Haraldsdóttir hárgreiðslumær:
Eg fylgist mjög lítið með íþróttum en
ég vona að íslenska iiðiö nái eins
langt og mögulegt er.
Arni Kolbeinsson ríkisstarfsmaður:
Þaö finnst mér ákaflega líklegt. Eg
spái því að þeir vinni Spánverjana
með þriggja marka mun í Barcelona.
Kristín Albertsdóttir nemi: Ég hugsa
aö þeir tapi fyrir spánska liðinu með
sex marka mun en komist engu aö
síður í úrslitaleikinn.
Magnús Guðmundsson fiskvcrkunar-
maður: Eg veit sama og ekkert um
íþróttir svo ég treysti mér ekki til aö
spá nokkru um úrslitin.
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Fréttir af
AIDS eru
vandmeð-
famar
Einar Þorleif sson skrifar:
í kvöldfréttum útvarpsins þann 10.
febrúar sl. sendi fréttaritari þess í
Osló, Bjarni Sigtryggsson, frétt um
þróun AIDS-sjúkdómsins í Noregi.
Fréttin er, aö mínu áliti, skaðleg
fyrir sjálfstraust homma og lesbía.
Fram á síöustu ár hafa hommar og
lesbíur hér á landi átt fáa valkosti
aðra en eilíft þunglyndi og sjálfs-
hatur. Fyrir tilhlutan hóps af bar-
áttufólki hefur sjálfsímynd homma
orðið jákvæðari upp á síðkastið. Angi
alþjóðlegrar mannréttindabaráttu
homma hefur teygt sig til Islands.
AIDS-sjúkdómurinn, eöa öllu heldur
fjölmiölafáriö í kringum sjúkdóm-
inn, hefur hins vegar gert þessari
baráttu erfiðara fyrir.
Fréttasendingu þína, Bjarni, tel ég
vera dæmi um ófagleg vinnubrögð
fjölmiðla á þessu sviði. I framhaldi
af því langar mig til að gera nokkrar
athugasemdir við framsetningu þína
á fréttinni og notkun þína á orðinu
„kynvillingur”.
I fyrsta lagi setur þú homma á bás
með sprautueiturlyfjasjúklingum án
þess aö skýra fyrir hlustendum sam-
hengið þarna á milli. 1 hugum al-
mennings á að uppræta eiturlyfja-
neyslu og aö rugja hommum saman
við eiturlyfjaneytendur — ég tala nú
ekki um þá sem eru á sprautunni —
verður ekki baráttu homma til fram-
dráttar. Fréttin býður upp á slíkan
rugling þar sem innihald hennar er
ekki sett í sitt rétta samhengi.
1 öðru lagi er nauösynlegt í slíkri
frétt að gera grein fyrir hvernig hinn
alvarlegi vírussjúkdómur tengist
hommum sérstaklega. Nauösyn
slíkrar skýringar er tilkomin vegna
þess aö ekki er óalgengt að almenn-
ingur haldi að hómósexúalhneigö
beri í sér smit títtnefnds sjúkdóms.
En auðvitað er þetta hlægileg fá-
viska: AIDS-sjúkdómurinn er ekki í
neinu beinu sambandi viö
hómósexúalhneigö eöa kynlíf
homma. En ekki er við almenning að
sakast heldur hafa fjölmiðlar
brugðist upplýsingaskyldu sinni í
þessum efnum. Eftir því sem næst er
hægt að komast var það alger tilvilj-
un að AIDS veiran smitaði fyrst
homma í New York en ekki starfs-
fólk Hvíta hússins í Washington til
þess aðnefna dæmi af handahófi.
Um notkun þína á orðinu „kynvill-
ingur” er þetta aösegja: Samkvæmt
rökvísi íslensks máls er „kynvill-
ingur” sá maður sem villst hefur á
kyni, samanber orðið trúvillingur.
Orðið endurspeglar rótgróna for-
dóma sem koma fram í sjálfu mál-
inu. Ef þú, Bjami, álítur, að hommar
fari villir vegar viltu þá vera svo
elskulegur aö taka fram hver sé hin
rétta leið.
„AIDS-sjúkdómurinn er ekki i neinu beinu sambandi við hómósexúal-
hneigð," segir bréfritari.
Aðlokumþetta, Bjami:
Fréttir af AIDS eru vandmeð-
famar. Þær snerta undirokaðan hóp
ogþærfjalla umbanvænansjúkdóm.
Að mínu áliti má ekki kasta til þeirra
höndum. Árangurinn af réttindabar-
áttu homma og lesbía má ekki verða
að engu. Ríkisútvarpið á þar leik á
borði. Hvernig væri t.d. að gera
fréttaskýringaþátt um þau hrylli-
legu áhrif upplausnar og ótta sem
AIDS-sjúkdómurinn, og fyrst og
fremst fréttaflutningurinn um hann,
hefur haft á homma?
Verð fyrir þjónustu leigu-
bílstjóra verði lækkað
í heimi.
ión Páll landi og þjóð til sóma
Sigurður Gíslason hringdi:
Eg hef samband út af öllu þessu
leigubílstjórakarpi. Mig langar til að
leggja smávegis til málanna sem neyt-
andi.
Eg bý í Garöabæ og í þau fáu skipti
sem ég tek leigubíl þá er það þegar ég
fer út aö skemmta mér. Mér finnst
ákaflega ósanngjarnt að þegar maður
kemur að Kópavogsbrúnni þá er skipt
yfir á hærri taxta. Nú er ekki lengra í
Garðabæ en í Breiðholtiö en samt
Óþolandi
salt
Ökumaður hringdi:
Mér blöskrar saltaustur umferöar-
deildar borgarinnar. Þaö þarf ekki aö
falla nema snjókorn úr lofti og þá er
þegar dreift salti á allar strætisvagna-
leiðir. Ég hef nokkrar athugasemdir
fram að færa vegna þessa:
1. Þegar Saltið kemur í snjóinn eöa
frosna jörð þá myndar það krap
sem getur reynst bílstjórum hættu-
legt. Bílar láta illa að stjórn og göt-
urnar verða sleipar eftir sem áður.
2. Saltið leysir upp tjöruna í mal-
bikinu. Það er við þessar aðstæður
sem malbik og bílar liggja undir
skemmdum.
3. Kostnaðurinn sem af þessu hlýst er
mikill og óþarfur.
Eg legg til aö Umferöarráð geri
könnun á þessu, það er löngu orðið
tímabært.
þurfum við að greiöa hærra verð fyrir
akstur sem búum í Garðabænum. Ég
tel hyggilegt aö gera Stór-Reykja-
víkursvæöið að einu gjaldsvæöi svo
neytendum sé gert jafnhátt undir
höfði.
Fyrir nokkru tók ég leigubíl aö
heúnan á veitingastaðinn Naust og
síðar aftur til baka. Ég þurfti að greiða
um 700 krónur fyrir, eða 350 krónur
hvora leið. Til samanburðar má geta
þess að upphæð þessi samsvarar 17
dollurum, 14 pundum og 194 dönskum
krónum. Ég er hræddur um að
íbúunum í nágrannalöndum okkar
þætti þetta hátt verð fyrir ekki lengri
akstur.
I framhaldi af þessu hef ég veriö aö
velta fyrir mér hvort leigubílstjórar
gætu ekki lækkaö verðið á þjónustu
sinni um t.d. 30%. Við óbreytt ástand
hvarflar varla að manni að taka leigu-
bíl til almennra nota svona dags dag-
lega en ef veröið yrði lækkað fengju
leigubílstjórar fleiri viöskiptavini og
bæru eflaust meira úr býtum en ella.
Aödáandi skrifar:
Mér finnst alveg til skammar hvem-
ig komið er fram viö sterkasta mann í
heimi, Jón Pál, hér á landi. Við getum
verið stolt af Jóni, hann er landi og
þjóð til sóma í öllu því sem hann tekur
sér fyrir hendur. I staö þess að styðja
hann peningalega og á annan hátt
reyna þessir menn í ISI að gera honum
lífiö leitt með því að boöa hann í lyfja-
próf án þess aö hafa lengur lögsögu
yfir honum. Þetta er þokkaleg kynning
fyrir landiö að það sé komið svona
fram við hann. Þessir menn ættu aö sjá
sóma sinn í að biðja Jón Pál og fjöl-
skyldu hans afsökunar á þessari fram-
komu, það er búið að móðga þau gróf-
lega.
ÚM'Kik'.
Ý-v
« -.«4
..._ ....................
Félagarnir í Duran Duran ásamt þeldökkum aðdáendum.
Tónleika
mynd
með D.D.
Gunnar Reynir og Gunnar Reynir úr
Árbænum höfðu samband:
Við viljum mælast til þess að sjón-
varpið taki sig saman í andlitinu og
kaupi mynd frá tónleikum með
Duran Duran og sýni á skjánum.