Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Síða 14
DV. MÁNUDAGUR1. APRIL1985. Það er ekkert gamanmál ef hemlabúnaður bílsins svíkur þegar á reynir. Gegn slíkri skelfingu, er aðeins ein vörn: Láta yfirfara hemlakerfl bílsins reglulega, svo það sé ávallt í fullkomnu lagi. Hj á okkur fást original hemlahlutir í allar tegundir bifreiða á ótrúlega lágu verði. Við hjá Stillingu höfum aldarfjórðungs reynslu í þjónustu og viðhaldi allskyns hemlakerfa. Áralöng reynsla okkar, tryggir öryggi þitt. v Menning Musica Nova Tónleikar Musica Nova á Kjarvalsstööum 27. mars. Flytjendur: Hóskólakórinn, stjórnandi Ámi Harðarson; Blásarakvintett Reykjavlkur; Szymon Kuran, Robert Gibbons, Carmel Russil, Páll Hannesson, Hólmfrfður Siguröar- dóttir; Martin Berkofsky. Efnisskrá: Arni Harðarson: Is There; Aubert Lemeland: Blásarakvintett nr. 3; Szymon Kuran: Per Violino; Jónas Tómasson: Nœtur- Ijóö 2; Alan Hovhaness: Dawn on the Mountain of Initiation; Lárus Halldór Grímsson: I Sing the Body Electric. Innan um textíl í vestursal Kjar- valsstaöa hélt Musica Nova tónleika sína á miövikudagskvöld. Fjöl- breytilegir voru þeir, þessir tónleikar, og hófust meö verki frá í fyrra, Is There, eftir Árna Harðarson. I stykkinu leikur Arni og þreifar fyrir sér meö kórinn sem söng af meiri festu en samt léttilegar en þegar hann frum- fluttiþaðífyrravor. Þriðji blásarakvintett Lemelands er sama marki brenndur og fleiri hans verk að hafi menn ekki fullt vald á músíkinni og séu sívakandi er næsta auðvelt að missa leikinn niður í alg jöra lognmollu. Lemeland er ekki maður sem herðir á lykkjunni þegar hann prjónar músíkstykki. Ég segi kannski ekki að þeir séu búnir aö slípa það allra finasta í verkinu en mikið óskaplega blésu þeir nú samt vel þessir heiðurs- menn sem skipa mína uppáhalds- kammersveit. Þeir halda brátt til keppni i Frakklandi og vil ég nota tækifærið að óska þeim góðs gengis. Szymon Kuran konsertmeistari er Tónlist Eyjólfur Melsted ekki aðeins snjall fiöluleikari heldur semur hann líka mjög áheyrilega músík. Per Violino er hlaðið erfiðum ferlum en verkar næsta átakalítiö á yfirborðinu, einkum ef sá sem leikur :fer jafnléttilega meö þaö og höfundur- inn. Szymon Kuran leiddi einnig kvint- ettinn í Næturljóði 2 eftir Jónas Tómasson. Stykkiö er eins konar „músíkölsk meditation” og margt geta menn hugsaö fallegt þegar þannig stendur á. Leikur kvintettsins var kannski heldur hlutlaus en nákvæmur og vandaöur. Hlutleysi var ekki fyrir að fara í meðferö Martins Berkofskys á Dögun Vígslufjalli eftir Alan Hovhaness. Það var mögnuö spenna í hinum ermsku minnum sem sett eru f ram í svo dæma- lausum einfaldleika en kalla í þess stað f ram í huganum ímyndað tónaflóð. I byrjun mánaöarins flutti Háskóla- kórinn I Sing the Body Electric eftir Lárus Halldór Grímsson, með sérstöku leyfi Musica Nova. Reyndist sú ráðstöfun heppileg því að í millitíðinni sniðu menn vankanta þá af flutn- ingnum sem í ljós komu. Uppstilling hátalaranna sem flytja allan undirtón verksins er mikilvæg og hér reyndist hún öll hugvitssamlegri en vestur í Félagsstofnun. Fyrir bragðið naut kórinn sín miklu betur og nú fékk maður loks botn í tilganginn með þri- skiptingu hans sem ekki lá í augum uppi við leyniflutninginn. Aðstæður skipta miklu máli og gaman væri að fá að heyra, ekki bara þetta eina stykki, heldur allan konsertinn við betri aöstæður en bjóöast á Kjarvalsstöðum. Kannski þaö gerist þegar honum verður útvarpað. -EM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.