Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Side 17
DV. MÁNUDAGUR1. APRlL 1985.
17
Lesendur
Hrein
borg,
hreint
land
Vesturbæingurhringdi:
Mig langar aö koma á framfæri sér-
stöku þakklæti til TBR vegna sérstak-
lega góðrar framkomu þeirra sem sjá
um starfsemi þess félags. Snyrti-
mennska og hreinlæti er í fyrirrúmi á
félagssvæði þeirra, úti jafnt sem inni
og í sál þeirra og sinni. Mættu önnur
íþróttafélög vera eins að hrósinu
komin. Því miður er því ekki aö fagna.
Við Laugardalshöllina og nágrenni
sjást glerbrot og ýmislegt dót og sömu
sögu er að segja víöar þar sem
sambærileg starfsemi fer fram hér í
borg.
Það er leiöinlegt að við skulum vera
svo andlega sljó að taka ekki eftir
áberandi sóðaskap á borgarsvæðinu.
Margir henda frá sér ýmiss konar rusli
hér og þar. Nú er ekkert Hallærisplan
til að skella skuldinni á. Borgarstjórn
ætti vinsamlegast að sjá sóma sinn í að
líta betur eftir ýmsu hér innan borgar-
markanna, nú á ári æskunnar og tón-
listarinnar.
Guðmundur Ólafsson og Rúrik Har-
aldsson í hlutverkum sínum ■
Draugasögu.
Ekkert morð í
Draugasögu
Oddur Björnsson handritshöfundur
hafði samband:
Ég hringi vegna lesendabréfs sem
birtist í DV 22. mars. I því var sagt að
tvö morð hefðu verið framin í Drauga-
sögu sem sýnd var í sjónvarpi og einar
samfarir. Hafa ber það sem sannara
reynist. I leikritinu var ekkert morö og
engar samfarir. Það dó þama einn
maður úr hjartaslagi. Það er ómögu-
legt aö flokka það sem morð, hvað þá
tvö.
MEÐ
færðu SKODA fyrir kr.
110.800.-
Áríðandi orðsending!
-Eins og alltaf býður SKODA bestu kaupin, einnig fyrir þá sem hafa fengið tollaeftirgjöf.
Handhafar slíkra leyfa geta fengið harðsnúinn og sparneytinn SKODA á hreint frábæru veröi:
SKODA105S kr. 110.800.-
SKODA 120 L kr. 121.600.-
SKODA120LS kr. 135.400,-
SKODA130L kr. 146.800.-
SKODA RAPID kr. 161.200,-
Fyrsta flokks þjónusta
Allir vilja geta treyst bílnum sínum. Vilja að hann sé sterkur og vel smíðaður
og varahluta- og viögerðarþjónustan sé í lagi ef eitthvað kemur fyrir. í könnun Verðlagsstofnunar
fyrir skömmu kom fram að SKODA gat boðið alla varahluti sem um var spurt
á mjög góöu verði. Þjónusta sem þú getur treyst.
U
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600
TILBOÐ
óskast í eftirtaldar bifreiðar er skemmst hafa í umferðar-
óhöppum: Mercedes Benz 220 D árg.1976
Daihatsu Charade Runabout árg.1983
Skoda árg.1983
Skoda árg.1979
Suzuki Van árg. 1983
VW Golf árg. 1976
Vauxhall Viva árg.1974
Austin Allegro st. árg.1978
Lada 2101 árg.1976
Mercedes Benz árg. 1970
Bifreiðarnar verða til sýnis að Hamarshöfða 2, sími
685332, mánudaginn 1. april frá kl 12.30 til 17.00.
Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora eigi síðar en
þriðjudaginn 2. apríl kl. 17.00.
íj£) TRYGGINGAMIÐSTOÐIN P
T V AÐALSTRÆTI 6 - 101 RE YKJAVÍK - SlMj 26466
ERT4-
ÞU
ÚTI-
VERA
Við bjóðum öllu útivistarfólki:
Stil-Longs ullarnærföt.
Vinnufatnað — samfestinga,
einnig loðfóðraða.
Hlifðar og kuldafatnað.
Skó og hlýja sokka.
Áttavita, penna-neyðarmerkja-
byssur, ólpoka og fjölmargt
fleira.
Ánanaustum
Siml 28855