Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Side 28
28 DV. MÁNUDAGUR1. APRlL 1985. íþróttir íþróttir íþróttir fþróttir „FH-liðið alls ekki lélegt” — sagði Pavlovic, þjálfari Metaloplastica „Þetta var engan veginn góður leikur hjá okkur. Við getum leikið mun betur en þetta og gerðum þaö í fyrri leiknum gegn FH,” sagði Alexander Pavlovic, þjálfari Metalopiastica, í samtali við DV eftir leikinn gegn FH. „FH-ingar eru alls ekki með slakt lið og ég héld að liðið hafi átt skilið að komast í undanúrslitin. Eg reikna með því að við munum mæta Dukla Prag í úrslittaleiknum en vil engu spá um úrslit,” sagði Pavlovic. -fros. „Komnir niður á jörðina” — sagði Þorgils Óttar, FH „Við spiluðum illa, markvarslan var einn af fáu Ijósu punktunum í leik okkar,” sagði fyrirliði FH, Þorgils Ótt- ar Mathiesen. „Við höfum leikið illa í þrem síðustu ieikjum okkar, lægð er kemur ekki niður á okkur í úrslita- keppninni. Við erum komnir niður á jörðina eftir gott gengi lengst af vetrar og við munum mæta tvíefldir til ieiks þar.” • Kristján Arason var i strangri gæslu í leiknum gegn Metaloplastica eins og raunar einnig í leiknum i Júgóslaviu. DV-mynd S. Markvarslan var eini Ijósi punkturinn hjá FH-ingum Metaloplastica ekki í vandræðum með FH í síðari leik liðanna f Laugardalshöll. Úrslitin 30:21 Halilhodzic í Frakkaleikinn — þegar Júgóslavar mæta Frökkum í HM Markaskorarinn mikii, Vahid Halii- hodzic, sem leikur með franska liðinu Nantes mun leika með júgóslavneska landsiiðinu í knattspy rnu en það mætir Frökkum á miðvikudaginn í undan- keppni HM. Júgóslavar léku sem kunnugt er fyrir skömmu gegn Luxemburg og unnu aðeins 1—0 þrátt fyrir að margir af forráðamönnum landsliðsins hefðu lýst því yfir fyrir leikinn aö þeir myndu sigra með margra marka mun. Júgó- slavar tjalda öllu því besta sem þeir eiga á miövikudaginn. Auk Halilhodzic korna tveir júgóslavneskir landsliðs- menn sem leika með grískum liðum í leikinn gegn Frökkum. Þess má geta að Halilhodzic er markahæsti leik- maðurinn í frönsku knattspymunni og vonast Júgóslavar eftir því að hann skori mörk gegn Frökkum á miðviku- dag. -SK. „Ég átti ekki von á þessum úrslitum og hef engar haldbærar skýringar á þessari hneisu,” sagði Guðmundur Magnússon, þjálfari FH, eftir að lið hans hafði tapað með níu marka mun, 30—21, gegn júgóslavneska félaginu Metaloplastica Sabac í Laugardals- höllinni á föstudagskvöldið. „Leikmenn þurfa aö klára dæmi sem fyrir þá er lagt og hver og einn verður aö lita í eigin barm, þá eru þessi úrslit ekki til að auka möguleika okkar í úrslitakeppninni,” sagði Guðmundur. Orö Guðmundar eru orð að sönnu, FH-leikmennina virtist skorta allt þrek og einbeitingu til að veita Júgóslövunum einhverja keppnL Vöm liðsins var oft æriö götótt og sóknar- leikmennirnir áttu ekki léttan dag gegn sterkri vöm Júkkanna. Eini maður liðsins sem á hrós skiliö er markvörðurinn Sverrir Kristinsson er stóð sig mjög vel. Það segir kannski jafnmikið um sóknarleik Júgó- slavanna og vöm FH að þrátt fyrir snilldarmarkvörslu oft á tíðum fengu Hafnfirðingarnir 30 mörk á sig. Leikurinn á föstudagskvöldið var jafn lengst af í fyrri hálfleik, jafnt 10— 10, er Metaloplastica gerði þrjú síöustu mörk hálfleiksins og gestirnir því 13— 10 yfir í hálfleik. FH skoraöi tvö fyrstu mörkin eftir hlé en þá skiptu Júkkarnir um gír og leiöir liðanna skildi, Metalo- plastica komst í 19—13 og síðar í níu marka forskot, 25—16, munurinn varö sá sami í lokin. Lokatöhir 30—21 sem fyrr sagði og FH-banamir eiga því fyrir höndum úrslitaleik í Evrópu- keppni meistaraliða, líklega gegn tékkneska félaginu Dukla Prag. Mörk FH: Kristján og Hans 4, Þorgils Ottar og Jón Erling 3, Val- garður Valgarösson, Guðjón Arnason og Guöjón Guðmundsson 2, Sigþór Jóhannesson 1. Hjá Metaloplastica var Vujovic at- kvæðamestur, skoraði 8 mörk, Isakovic kom næstur með7. -fros r I I I I I I I I I I • Halilhodzic, markahæsti leik- maðurinn i frönsku 1. deildinni, leikur með Júgóslövum þegar þeir mæta Luxemburg á miðvikudag. • Johan Cruyff hefur ákveðið að fara ekki til hollenska liðsins Feyenoord. Cruyff fer ekki til Feyenoord Johan Cruyff, knattspyrnu- kappinn snjalli, tilkynnti á laugardaginn að hann myndi ekki taka tilboði frá Feyenoord um að gerast tæknilegur ráð- gjafi félagsins. Cruyff, sem verður 38 ára nú í apríl, hefur ekki hug á að vinna skrifstofu- starf hjá Feyenoord. Hann ætlar að snúa sér af fullum krafti að viðskiptum. -SOS. I I I I I I I I I I I I I I l| I I I I I I I I I (þróttir íþróttir íþróttir íþróttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.