Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1985, Síða 46
46
DV. MÁNUDAGUR1. APRIL1985.
Skagaströnd
Til sölu er húseignin nr. 3 við Ægisgrund, Skagaströnd.
Húsið er einbýlishús, byggt 1978 og 79, 156 ferm. að
grunnstærð. Auk þess er 30 ferm. bílskúr og 200 ferm,
bílastæði á lóðinni lagt olíumöl. Lóðin er að öðru leyti
ræktuð, 900 fermetrar. Ægisgrund er lokuð gata mið-
svæðis í kauptúninu. Skammt er í allar helstu þjónustu-
stofnanir staðarins.
Hér með er auglýst eftir tilboðum í ofangreinda eign, sem
er til sýnis eftir samkomulagi. Tilboð skilist til undirritaðs
eða póstleggist fyrir 10. april nk. Réttur er áskilinn til að
taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Eignin er laus
til afnota 1. júní nk.
Skipti á íbúð á höfuðborgarsvæðinu kæmi til greina.
Upplýsingar eru gefnar í síma 95-4710.
Björgvin Brynjólfsson,
545 Skagaströnd.
• Innbyggt eililðarílass, sem geíur merki sé notkun
þess þörf.
• Raíhlöður endast á u.þ.b. 250 ílassmyndir.
• Engar stillingar
MYNDARLEG GJÖF
HflNS PETERSEN HF
HallgrímurT. Ragnarsson, markaðsstjóri
verksmiðjunnar Víf ilfells:
„Menn verða að
halda áfram
að þroska sig”
I marsmánuði tók við starfi
markaðsstjóra hjá verksmiðjunni
Vífilfelli ungur viöskiptafræöingur,
Hallgrímur T. Ragnarsson. Hallgrím-
ur hefur nýlega lokið prófi úr
viðskiptadeild Háskóla íslans. Hann
starfaöi áður hjá auglýsingastofunni
Octavo sem framkvæmdastjóri og þar
áður sem kerfisfræðingur hjá Kerfi hf.
sem er f yrirtæki á tölvusviöi.
„I þeim fyrirtækjum sem ég starfaði
hjá áður var maður svona í ráðgjafa-
hlutverki, þetta eru þjónustufyrirtæki
fyrir önnur fyrirtæki og maöur horfir á
í fjarlægð hvernig önnur fyrirtæki
vinna. Þannig að maður var farinn að
brenna í skinninu að reyna sig í þessu
sjálfur.
Ég hef haft gott af þessari reynslu
sem ég hlaut í Octavo og Kerfi og hún
kemur mér tvímælalaust til góöa í
þessu starfi. Ég held að ungir
viðskiptafræðingar hafi mjög gott af
því að fara svolítiö á milli, reyna að
kynnast mörgu, ekki bara hér innan-
lands heldur einnig eriendis. Ég var
einmitt formaöur AIESEC í Háskól-
anum sem eru stúdentaskiptasamtök
og þar sem viöskiptafræðingum og
nemum gefst tækifæri til að vinna í
yfir 50 löndum og það er því um margt
að velja. Ég held að það sé mjög hollt
Islendingum og komi þeim til góða
varöandi markaðsmál. Við höfum
góðar vörur að selja og gott fólk en
markaöshliðin er mjög bágborin og
mikill skortur á fólki sem sinnt getur
þeirri hlið. Þetta helgast af því að
menn koma út úr skóla og labba inn í
fyrirtæki og staöna smám saman í því
sem þeir eru að gera.”
— Hvaðerhægtaögeraíþessu?
„Ég held að þegar vinna manna er
oröin að rútínu þá megi þeir fara að
skoða sinn hug og athuga hvort þeir
geti ekki gert meira gagn annars
staðar. Þetta gildir ekki aðeins um
viðskiptafræðinga heldur alla í þjóð-
félaginu og það aö fá nýtt blóö inn í
fyrirtæki getur gerbreytt vinnu-
brögðum.”
— Hverjar voru ástæðurnar fyrir
því aö þú skiptir um starf?
„Númer eitt, tvö og þrjú að Coca
Cola er frægasta vörumerki í heimi og
ég hef mikinn áhuga á alþjóðasam-
böndum og sé maöur í markaösmálum
er gaman að vinna fyrir útbreiddasta
vörumerki allra tíma. Starfið er mjög
spennandi og menn standa frammi
fyrir markaði sem er að breytast mjög
mikið, neysluvenjur fólks eru að ger-
breytast og menn verða að laga sig að
því. Þetta er því mikið starf og krefst
mikils.”
— Svo komið sé meira að þér, hver
eru áhugamál þín?
„Starfiö er áhugavert og er mitt
áhugamál númer eitt. Annars hef ég
áhuga bæði á íþróttum og tónlist.
Þegar ég útskrifaðist úr viöskipta-
deildinni var ég búinn að vera í skóla í
17 ár og mér fannst hálf-tómlegt að
vera ekki lengur í skóla, þannig að ég
lét gamlan draum rætast, fór til
London í síðasta mánuöi og keypti mér
saxófón. Byrjaði að læra að spila, sem
alger nýgræðingur náttúrlega, og
byrjaði að læra nóturnar. Menn verða
jú að halda áfram aö þroska sig
einhvern veginn.”
— Þekkir þú uppskriftina á bak við
Coke-drykkinn?
„Ég er ekki einn að þeim örfáu sem
þekkja efnaformúluna en ég er að
reyna að læra uppskriftina að vel-
gengni Coca Cola á markaðinum.”
-JÞ.
Breytttilhögun
ímenntun
ökukennara:
Þann 10. apríl hefst námskeið á
vegum Bifreiöaeftirlits ríkisins fyrir
verðandi ökukennara. Þetta er fyrsta
námskeiö sinnar tegundar, sem haldið
er, en áður hefur mönnum einungis
verið gert að þreyta próf. 34 hafa skráö
sig í námskeiöið og má búast við að
fleiri ökukennarar bætist í hóp þeirra
sem fyrir eru en undanfarin ár.
Að sögn Hauks Bogasonar hjá Bif-
reiöaeftirlitinu hefur fyrirkomulagið á
þessum málum veriö út í loftið.
Tvisvar á ári hafa farið fram próf fyrir
ökukennaraefni og hefur fyrirgjöf á
þessum prófum verið það ströng að
einungis um 10% hafa staðist þau, eða
um 4—6 á ári. I fyrra var svo gefin út
reglugerð um ökukennslu og þaö er í
framhaldi af henni sem Bifreiðaeftir-
litiö f er af staö meö þetta námskeið.
Námskeiðið er um 80 kennslustundir
og tekur um 2 vikur. Þátttökugjald er
15.000 krónur. Guöni Karlsson,
formaður prófnefndar, sagði að tii-
gangurinn með námskeiöshaldinu væri
aö sjálfsögðu að fá betri ökukennara.
Ýmsar nýjar greinar eru teknar inn í
námið, s.s. umferðar- og kennslusál-
Sálfræði meðal
kennslugreina
fræði og góöaksturshættir en hvergi
yrði þó slakaö á fyrri prófkröfum.
„Lögð verður áhersla á faglega
kennslu.” Guðni sagðist ekki þora að
spá hve margir kennarar útskrifuðust
að námi loknu en mjög eðlilegt væri að
ætla að þeir yrðu fleiri en síðastliðin
ár. I framtíðinni væri æskilegt að þetta
yrði lengra nám. I nágrannalöndum
okkar er t.d. ekki óalgengt að
ökukennaraefni sitji hátt í ár á skóla-
bekk áður en þeir öðlast réttindi.
Nú eru um 200 ökukennarar starf-
andi á landinu. Margir hafa þetta sem
hlutastarf og aðeins örfáir menn hafa
framfæri sitt eingöngu af ökukennslu.
„Þama er stórkostleg og skyndileg
breyting á ferðinni,” sagði Sigurður
Gíslason ökukennari um námskeiðiö
en hann er einn þeirra sem vinna ein-
göngu viðkennslu. „Ég ersmeykurvið
þessa byltingu, því ef að líkum lætur
munu útskrifast margfalt f leiri en áður
hefur þekkst. Ég tel að það sé farið of
geyst af stað. Þaö hefði veriö nær aö
undirbúa þetta betur og hafa námið
lengra en ætlunin er nú. Mér þykir ekki
óeðlilegt að takmarka fjölda þeirra
sem fá ökukennararéttindi og tel að
þessi mál komist ekki í fastan farveg
nema að menn stundi þetta af krafti en
séu ekki að hlaupa í ökukennsluna sem
aukastarf.”
Guðbrandur Bogason, formaöur
Ökukennarafélags Islands, sagði að ef
prófkröfur yrðu þær sömu og áður
hefði hann ekki trú á að námskeiðið y lli
óeðlilegri fjölgun í stéttinni. „Hins
vegar er þaö engum til góðs ef farið
verður að brautskrá ómældan fjölda
ökukennara. Það þarf að halda vel
utan um þessi mál og ég tel að náms-
tíminn ætti að vera lengri en hann er.”
Guðbrandur gat þess að lokum að í
undirbúningi væri að reyna aö sam-
ræma kröfur til menntunar ökukenn-
ara á Norðurlöndunum á grundvelli
norrænnar samvinnu. „Þeir bílstjórar
sem við hleypum út í umferðina ár
hvert hafa réttindi til þess aö aka svo
til hvar sem er í heiminum svo við
verðum að vanda til kennslu þeirra.
Tryggasta leiðin til þess er að sjálf-
sögðu að hafa menntun ökukennara
eins góða og unnt er.”
-JKH