Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Blaðsíða 26
26
DV. LAUGARDAGUR 4. MAI1985.
DV kynnir FH — DV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH —DV kynnir FH
Mario Krajaziz, málari fró Júgó-
slavíu:
„Eg þekki ekki það mál. Eg
fylgist meira með ensku knatt-
spyrnunni og held þar með Man-
chesterUnited.”
Aðaisteinn Ásgrímsson verka-
.maöur:
„FH-ingar eru glataöir í knatt-
spyrnu en góðir í handboltanum.
Eg spái því að Vikingar veröi Is-
landsmeistarar.”
fi
Björn Magnússon kennari:
„FH-ingar veröa neöarlega í 1.
deildinni. Eg er hins vegar viss
um að Fram verður Islands-
meistari og það með glæsibrag.”
Sigurjón Friðriksson neml:
„FH-ingar hafa lítinn mann-
skap og því tel ég möguleika
þeirra vera mjög litla. Valsmenn
veröa meistarar og Víðir og KR
falla.”
Ingvar Bjamason nemi:
„Eg held að FH-ingar eigi
enga möguleika á að verða meist-
arar. Eg tippa á Valsmenn sem
verðandi meistara.”
Ævar Óskarsson, lagermaður hjá
Kristni Guðnasyni:
„Eg fylgist ekkert með knatt-
spymu og get því ekki svarað
þessari spumingu. Ég fylgist
meira með handknattleiknum.”
„FH er með gamla jaxla
og efnilega stráka”
— segir Framarinn Þorsteinn i. Vilhjálmsson og telur að FH-liðið
geti komið á óvart í sumar
„FH-lngar gætu komið á óvart i
sumar. Með Uðinu leika gamlir jaxlar
Þorsteinn J. Vilhjálmsson, Fram.
sem erfitt er að elga við. Þar má nefna
nöfn eins og Inga Bjöm Albertsson
þjálfara, Viðar Halldórsson og Gunnar
Bjamason. Þelr eiga mlkið af ungum
og efnilegum leikmönnum, FH-ingar,
og næglr þar að nefna þá Jón Erling
Ragnarsson og Guðmund Hilmarsson.
Báðir em þeir fljótir og útsjónarsamir
lelkmenn. Jón er líklega með efnilegri
sóknarleikmönnum sem leika hér á
landi í dag,” sagði Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson, leikmaður með meistara-
flokki Fram.
„Auðvitað er erfitt að spá fyrir um
Enginn sigur
í 1. deild
FH-ingar hafa aldrei sigrað f 1. deild
FH-ingar hafa aldrei borið sigur úr
býtum í 1. deild Islandsmótsins í knatt-
spyrnu. Þeir geta hins vegar státað af
tveimur sigrum í 2. deild, í fyrra og ár-
ið 1974. Iþróttabandalag Hafnarfjarð-
ar varð Islandsmeistari í 2. deild árið
1956 og 1960.
Arið 1967 sigraði Fimleikafélag
Hafnarfjarðar (FH) í Islandsmótinu í
3. deild.
Það er því kominn tími tii að FH-
ingar geri stóra hluti í 1. deildinn' Lið-
ið hefur verið á flækingi milli 1. og 2.
deildar og áhangendur liðsins er fariö
að lengja eftir velgengni í 1. deild. Það
gseti allt eins komið að því í sumar.
-SK.
LEIKMENN FH1985
Eftirtaldir leikmenn munu leika með FH í 1. deildinni í sumar:
Halldór Halldórsson, 24 ára, laganemi og markvörður.
Úlfar Danielsson, 25 ára, íþróttakennari.
Viðar Halldórsson, 31 árs, viðskiptafræðingur og bróðir Halldórs
markvarðar.
Guðmundur Hilmarsson, 23 ára, lögreglumaður.
Þórður Sveinsson, 21 árs, laganemi.
Sigurþór Þórólfsson, 24 ára, verslunarmaður.
Dýri Guðmundsson, 33 ára, endurskoðandi. Lék áður með Val og
landsliðinu.
Ingi Björn Albertsson, þjálfari og leikmaður. 32 ára, skrifstofu-
maður og fræg markamaskína.
Ölafur Danivalsson, 31 árs, kerfisfræðingur. Einn af leikreynd-
ustu leikmönnum liðsins og hefur staðið í eldlínunni um árabil.
Jón Erling Ragnarsson, 21 árs, nemi. Einn efnilegasti leikmaður
liðsins og mikill markaskorari.
Hörður Magnússon, 19 ára, nemi.
Magnús Pálsson, 20 ára, íþróttakennaranemi.
Kristján Hilmarsson, 18 ára, nemi.
Kristján Gíslason, 18 ára, nemi.
Henning Henningsson, 19 ára, nemi.
Úlafur Kristjánsson, 16 ára, nemi.
Leifur Garðarsson, 16 ára, nemi.
Sigurfinnur Sigurjónsson, 24 ára, trésmiður. Lék áður með Tinda-
stóli frá Sauðárkróki.
Sigfús Halldórsson, 21 árs, nemi.
Páii Björnsson, 24 ára, múrari.
Kristján Guðnason, 20 ára, nemi.
Björn Ágúst Björnsson, 17 ára, nemi.
Sveinbjörn Sigurðsson, 20 ára, nemi.
Steindór Erlingsson, 19 ára, nemi.
Ingi Björn Albertsson þjálfar liðið en aðstoðarmaður hans er
Logi Ölafsson íþróttakennari. Eins og sést á upptalningunni hér
að ofan er FH-liðið m jög ungt að árum en innan um eru þekktir og
gamalreyndir leikmenn.
Samúel örn Erlingsson.
„Spái Val eða
ÍAtitlinum"
— segir Samúel Örn
Erlingsson,
íþ róttaf rétta rita r i NT
„Ég verð að viðurkenna að ég þekki
lítið til FH-llðsins en veit þó að innan
liðsins eru margir frískir, ungir og
efnilegir leikmenn,” sagði Samúel örn
Erlingsson, íþróttafréttarltari NT, I
samtali við DV þegar hann var spurð-
ur um horfuraar hjó FH í sumar.
„Það á eftir að koma sér vel fyrir
FH í sumar að leikmenn þekkja hver
annan mjög vel. Þá veit ég að Ingi
Björn á eftir að gera góða hluti meö lið-
ið og FH-ingar eiga eftir að spjara sig í
neðri hluta 1. deildarinnar.”
Vilt þú spá um röðina eftir Islands-
mótið?
„Eg segi að Valur og Akranes berj-
ist um titilinn. Þór Akureyri, KR,
Þróttur og Fram verða um miðbik
deildarinnar og ef eitthvert þessara
liða kemur til með að blanda sér í bar-
áttuna um titilinn verður það KR. Vík-
ingur, FH, Víðir og Keflavík koma til
með að berjast um fallið. Eg á helst
von ó því að Víðir og IBK falli í 2.
deild,” sagði Samúel örn Erlingsson.
-SK.
gengi liðanna áður en mótið hefst en ég
á von á því aö FH-ingar veröi um miðja'
deild. Þeir gætu þó komið á óvart og
orðið ofar. Eg hef ekki trú á að þeir
falli beint niður í 2. deild aftur. Leik-
menn liðsins eru of góðir til þess.
Valur, Fram
og Skaginn
Eins og staðan er í dag á ég von á að
Valur og Skaginn veri i efstu sætum.
Við Framarar gefum þó ekkert eftir og
gætum tekið þátt í toppbaráttunni.
Einnig Þór frá Akureyri sem hefur
skemmtilegu liði á að skipa.
Eg vil engu liði svo illt að falla i 2.
deild. FH-ingar, KR-ingar, Víkingar,
Keflvíkingar og Víðismenn verða í
neðri kantinum ef ekkert mjög óvænt
kemur upp á. Eg á von á því að þetta
verði erfitt sumar fyrir nýUöana í Víði.
Marteinn Geirsson á þó örugglega
eftir að gera góða hluti með llðið en ég
hef trú á því aö liðinu eigi eftir að
ganga iUa í sumar, sérstaklega á úti-
völhim. Þeir gætu hins vegar krækt í
stig á heimaveUi sínum suður með
sjó,” sagði Þorsteinn J. Vilhjálmsson.
•SK.
■FKgegnVíði'
■ PvrcH lAÍknr FH-im/n i 1 •
Fyrsti leikur FH-inga í 1.
I deildinai veröur mikilvægur en B
_ þá leika þeir gegn nýliðutn Viðis i _
B Garði. Leikið verður á helmaveUi |
IVíðis. FH og Víðir komu upp í 1. _
deUd úr 2. deUdinni si. sumar.fl
IReiknað er með þvi að leikurinn ■
fari fram 19. maí.
Við höldum nú af stað einn
ganginn enn með kynningu á
liðunum sem í sumar leika i
1. deildinni í knattspyrnu.
Kynningin verður með nokk-
uð öðru sniði að þessu sinni.
Rætt verður við fyrirliða eða
þjálfara þess liðs sem kynnt
er og fenginn verður þjálfari
eða leikmaður úr öðru félagi
til að segja álit sitt á kynning-
arliðinu. Þá verður einum
íþróttafréttaritara gefinn
kostur á að segja álit sitt á
liðinu og spá um röð liðanna.
Nýllðar FH eru fyrsta liðið
sem við kynnum en þeir sigr-
uðu í 2. deild í fyrra. Liðinu
hefur gengið vel í æfinga-
leikjum í vor og líka i litlu
bikarkeppninni. FH-ingar
eru því til alls vísir í sumar
og gætu komið virkilega á
óvart.
Að viku liðinni kynnum við
lið Víðis í Garði.
-SK.
Umsjón: Stefán Kristjánsson
DV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH—DV kynnir FH -