Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1985, Blaðsíða 3
DV. LAUGARDAGUR 4. MAI1985.
3
Helgi P. næsti ritstjóri NT?
FLEIRIHÆTTA
„Nei, ég hef ekki verið ráðinn rit-
stjóri NT,” sagði Helgi Pétursson,
fréttamaður útvarpsins , í gær er DV
innti hann eftir orðrómi þar að lútandi.
— En hefur þú verið beðinn um að
taka blaöið að þér, gerast ritstjóri NT?
„Eg vil einfaldlega ekkert um málið
ræða, þetta eru allt sögusagnir úti í
bæ,” svaraði Helgi Pétursson.
Enn f jölgar þeim fréttamönnum sem
hafa sagt upp á NT. Þeir Jón Guðni
Kristjánsson og Baldur Kristjánsson
sögöu báðir upp í gær.
„Jú, viö sögðum báðir upp í dag,
vissum þó ekki hvor af öðrum,” sagði
Jón Guðni í gær. Hann sagöi að þaö
hefði aldrei verið spuming um það
hvort hann segði upp eða ekki.
„Ástæðan fyrir því að ég sagði ekki
strax upp er sú að ég er trúnaðar-
maður og vildi sjá hver framvinda
mála yrði hér eftir þau ósköp sem
gengiðhafaá.”
-JGH
Stúlkumar I Iðnó I gærkvöldi. DV-mynd GVA
Keppni sjö stúlkna í Iðnó
Sjö stúlkur háðu eitilharða keppni í
gærdag umhið eftirsótta hlutverk sem
Leikfélag Reykjavíkur auglýsti á
dögunum.
sem þær sátu og biðu eftir því að verða
kallaðar fyrir nefndina. „Auðvitað er
maður kvíðinn,” sagði ein þeirra, „en
þetta er eins og happdrætti, maöur er
bara að freista gæfunnar.”
Hlutverk það, sem hér um ræöir, er
eitt það stærsta í nýju verki eftir
Kjartan Ragnarsson.
Hleypur undir skreiðarbagga
litvarpslagafrumvarpið:
Nefskatturinn felldur niður
Skreiöarlán, sem Seðlabankinn
hefur endurkeypt, verða nú sett á sér-
stakan fjögurra ára biöreikning til allt
að fjögurra ára. Þaö munu vera 500—
600 milljónir sem þannig verða saltað-
ar í Seölabankanum í íslenskum
krónum og með sparisjóðsvöxtum.
Heildarverðmæti skreiðar, sem
bíður óseld, er mun hærra en það sem
Seðlabankinn tekur í salt. Söluverð-
mætið getur verið 1.500 milljónir,
jafnvel 2.500 milljónir, allt eftir því
hver metur birgðimar og hvað er tekið
með í reikninginn. HERB
Eins og kunnugt er sóttust 130
stelpur eftir hlutverkinu og af þeim
voru sjö valdar til frekari þrófunar.
Fór sú prófun fram í gær. Voru
stelpurnar látnar syngja og dansa
fyrir framan gagnrýna dómnefnd sem
í sátu Stefán Baldursson, Kjartan
Ragnarsson og Atli Heimir Sveinsson.
Þaö var ekki laust við að þær væru
örlítið taugaspenntar stúlkurnar þar
„Þaö liggur nú fyrir aö við höfum
gengið frá breytingartillögu við út-
vaipslagafrumvarpið og vonumst nú
til að málið verði tekið fyrir á mánu-
dag,” sagði Halldór Blöndal, formaður
menntamálanefndar neðri deildar, í
viðtali við DV í gær. Hann og Olafur Þ.
Þórðarson gengu frá tillögu í gær um
áð ekki yrði tekinn upp svokallaður
nefskattur eins og áður voru uppi
hugmyndir um.
DASAMLEQ BORG
SEMÞUATTHB
EKKIAUDVELT MEÐ
■ADYFIRGEFAH
Þegartil Salzburgar er komiö, og bílaleigubíllinn
hefur veriö afhentur, þá bíða þín óteljandi
ferðamöguleikar. Þér kann að reynast erfitt að slíta
þig frá Salzburg, sem er ein fegursta borg Evrópu.
En takist það, þá er aðeins fárra klukkustunda
akstur til Vínar, Innsbruck, Mílanó og Feneyja.
Fljúgðu með Flugleiðum til Salzburgar
og aktu á bílaleigubíl um Austurríki og Ítalíu
Viókomustaóurá suóurleió
SALZBURG
LEITIÐ FREKARI UPPLÝSINGA
A SÖLUSKRIFSTOFUM FLUGLEIÐA,
HJÁ UMBOÐSMÖNNUM OG FERÐA-
SKRIFSTOFUM.