Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Side 3
DV. MIÐVKUDAGUR 22. MAI1985. 3 Sinfóníuhljómsveitin á föram til Frakklands — þar sem haldnir verða sex tónleikar í f imm borgum Sinfóníuhljómsveit Islands er á förum til Frakklands þar sem hljómsveitin mun halda sex tónleika í fimm borgum. Það var franska menntamálaróðuneytið sem bauö hljómsveitinni að koma til Frakklands og heldur Sinfóníuhljómsveitin til Frakklands 18. júní. Tónleikar hljómsveitarinnar veröa í Chalon, Grenoble, Lywi, Nimes og Toulon. Stjórnandi hljómsveitarinnar í ferðinni er aðalhljómsveitarstjóri Sl, Jean-Pierre Jacquillat, en einleikarar verða þrir: Einar Jóhannesson klarinettuleikari og fiðluleikaramir Jean-Pierre Wallez og R. Pasquier. Hljóöfæraleikarar 1 ferðinni verða 77 og aðrir starfsmenn fimm. Alls fara 82 þátttakendur á vegum hljómsveitar- innar til Frakklands. Efnisskrá tónleikanna verður breytileg, en flutt verða eftirtalin verk: Choralis eftir Jón Nordal, Mistur eftir Þorkel Sigurbjömsson, Klarinettukonsert í a-dúr eftir W.A. Mozart, Fiðlukonsert í d-dúr eftir L.V. Beethoven og Sinfónía í d-moll eftir CésarFrank. -sos. Jón Aðalgeir Logason grillar í góða veðrinu. DV-mynd Ingibj. Húsavík: Otigrillin f gagnið Frá Ingibjörgu Magnúsdóttur Húsa- vík: Fádæma veðurblíða hefur verið á Húsavík síöastliðna viku, miöaö við órstímá. Fólk notfærir sér góða veðrið til eins mikillar útiveru og framast er unnt. Fjöldi fólks vinnur við fegrun á lóðum sínum. Sumir eru jafnvel famir að slá grasbletti. Utigrillin hafa verið sótt í geymslumar og börnin fara í gönguferðir upp að Botnsvatni. Mikil vinna hefur verið undanf arið hjá Fiskiöjusamlagi Húsavíkur, en starfsfólkiö reynir að nota kaffitímana til að skreppa í sólbað. -EH — segir oddvitinn á Flúðum en þar hef ur verið borað eftir heitu vatni með góðum árangri „Þetta er eins og happdrættis- vinningur. Nú erum við hér í sveitinni birg af vatni í næstu framtíð og vel það ,” sagði Loftur Þorsteinsson, odd- viti og bóndi að Haukholtum í Hruna- mannahreppi, í samtali við DV. Undanfarið hefur verið borað eftir heitu vatni á Flúðum með góðum árangri. „Við fengum þama 50 sekúndulitra af tæplega 100 stiga heitu vatni. Viö höfum fyrir 35 sekúndulítra svo hér er um að ræða rúmlega helmingsaukningu,” sagði Loftur. Borað var á 365 metra dýpi, en dýpsta hola sem bomð hefur verið þarna óður er 320 metrar. Otgerð þessi kostaði sveitarfélagið um eina og hálfa milljón. En hvað þýðir þetta fyrir sveitarfélagið? „Þetta þýðir geysilega mikið öryggi í hitaveitumálum okkar. Það var orðin talsverð vatnsþurrð á Flúöasvæðinu. Svo höfum við möguleika á að leggja vatn út um sveitina. Það hefur verið rætt um að leggja þrjár veitur héöan og eina þeirra alla leið austur í Gnúpverjahrepp.” — Verður borunum haldið áfram þama? „Nei, ekki í bráðina að minnsta kosti. Þetta dugir okkur í þó nokkur ár,” sagði Loftur Þorsteinsson. -KÞ. Það var Dorothea Magnúsdóttir sem greiddi þessari konu og fókk Íslands- meistaratitilinn i verðlaun. Islandsmeistarakeppnin í hár- greiðslu og hárskurði fór fram um helgina í veitingahúsinu Broadway. Fóru Dorothea Magnúsdóttir og Eiríkur Þorsteinsson með sigur af hólmi. Keppendur voru 21 talsins, 13 i hár- greiöslu og 8 í hárskurði. Var keppnin mjög jöfn og tvísýn. Dómarar voru tveir í hvorri keppni, allir fengnir erlendis fró. Fimm þeir efstu í hvorri grein unnu sér rétt til þátttöku í Norðurlanda- keppninni í hárgreiöslu og hárskurði sem f ram fer í ágúst næstkomandi. -KÞ. „Eins og happ- drættisvinningur” ÍSLANDSMEISTARARN- IR í HÁRGREIÐSLU OG HÁRSKURÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.