Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Side 8
8
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Bræðajökla?
Pakistanar íhuga nú að brœða
skrlðjöklana í Hlmalayaf jöllunum í
norðurhéruðum landslns. Það 6 að
blnda enda á ævarandi vatnsskort
og hjálpa tli við að veita vatni á
akra.
„Möguleikarnir eru fyrir hendi
en við þurfum að athuga áhrifin á
jafnvægi náttúrunnar,” sagði Khan
Tahirkehli, vararektor háskólans í
Pewshawar.
Frestuöu hýðingu
Mannfjöldi í Karachi í Pakistan
varð svo æstur að lögregla varð að
hendast á staðinn og hlndra að til
uppþots kæmi. Astæða reiði mann-
fjöldans var að fangelsisyfirvöld
frestuðu að hýða mann sem hafði
rænt og nauðgað 13 ára gamalli
stúlku.
Yfirvöld sögðust ekki hafa tima
til að gefa manninum 60 vandar-
högg í skemmtigarði í borginni, svo
að fresta varð hýðingunni fram yfir
Ramadan-helgimánuðinn sem
hófst í gær. Hýðingar eru bannaðar
á Ramadanföstunni.
Pekingbúar
hrækjaenn
Yfirvöld í Kína hafa enn hert her-
ferð sína gegn hrækingum á al-
mannafæri. Nú hafa þau komið upp
hrákadöllum um aila Pekingborg
og liðum barna sem elta uppi
hrækjandl syndara og segja við þá:
„Frændi (eða frænka), vinsamlega
hugsaðu um heilsu þína og ann-
arra.”
En ástæða þess að Pekingbúar
hrækja svona mikið er rykið sem
kemur frá norðvestri þegar ein-
hverjir vindar eru og fylla munn
manna.
Klámnefndí
gang
Bandarikjastjórn hefur tilnefnt
11 manna nefnd til að rannsaka
klámlðnaðinn i Bandaríkjunum.
Aðalstarf nefndarmanna verður þó
ekki að skoða klámblöð — eða kvik-
myndir — heldur að haida yfir-
heyrslur yfir þeim sem hafa eitt-
hvað til málanna að leggja.
Könnunln á að taka eitt ár og
nefndin hefur hálfa milljón dollara
eða 20 milljónir íslenskra króna til
umráða.
Gagnrýnendur segja að nefndin
sé enn ein visbendingin um að
Reagan-stjórnin hyggist skerða
prentfrelsi sem mest bún má.
Ruslakallarnsr
björguðu málinu
Frá Kristjáni Bemburg, fréttarit-
araDVíBelgíu:
1 Liege, þar sem knattspyrau-
kappinn Ásgelr Sigurvinsson hefur
gert garðinn frægan, varð uppi fót-
ur og fit þegar von var á páfanum i
heimsókn. Svo illa stóð á að sorp-
hrelnsunarmenn voru i verkfalli og
fóik hafði orðið að leggja frá sér
sorpið i plastpokum út á gangstétt-
ar. Var litil prýði að þvi. Rusia-
kallarnlr brugðust við neyðarkall-
inu til þess að snyrta ögn tO fyrir
komu páfans og var brelnsað til en
einungis á þeim götum sem leið
páfans lá um.
Fjöldadráp
Landamærasveitir Nígeríu skutu
í síðustu vlku til bana 25 Ghanabúa
við iandamærastöð hjá Benin, þar
sem þúsundlr útlendlnga streymdu
úr landi, brottreknar frá Nígeríu,
samkvæmt fréttum útvarpsins í
Accra, sem Nígería ber þó á móti..
— Um 300 þúsund þeirra 700
þúsunda, sem herforingjastjóra
Nigeriu hefur visað úr iandi, eru
Ghanamenn.
Slökkviliðsmenn hafa unnið dag og nótt að þvi að vinna bug á eldunum sem geisað hafa i Florida undanfarið. Það hefur nú að mestu tekist.
Eldamir í Florida að deyja út:
Skóglendi fuðraði upp
slökkviliðsmenn hefðu kranið þar við „Eldur hegðar sér alveg eins og
sögu. fólk,” sagði einn skógarvörðurinn sem
Þjóðverjar hafa vaknað upp við þann vonda draum að bjórinn þeirra
inniheldur alls kyns rotvarnarefni, líkt og bjór nágrannarfkjanna. Sá bjór
er hins vegar ekki leyfður í landinu, einmitt vegna allra aukaefnanna.
ÞÝSKIBJÓRINN
EKKI „HREINN”
EINS OG AF
VAR STÁTAÐ
örþreyttir slökkviliðsmenn hafa náð
aö mestu tökum á hinum miklu skógar-
eldum á Miami en þó ógna eldar enn
nokkrum kaupstöðum á suðvestur-
strönd Florida-fy Ikisins.
Embættismenn segja að þær 400
slökkviliösstöðvar sem berjast gegn
eldinum hafi náð að bæla hann niður
nema á fimm stöðum. Þeir voru 40 í
upphafi. Þetta eru verstu skógareldar í
sögu Forida.
Skemmdir vegna eldanna munu
nema um 150 milljónum doilara eða
sex milljörðum íslenskra króna. Tveir
slökkviliösmenn hafa látist í barátt-
unni við þá. Rúmur tugur slökkviliðs-
mannahefursærst.
Enn brenna stjómlaust nokkrir eld-
ar í Suðvestur-Florida. Þar hjálpa
þurrkar, vindar og steikjandi hiti eld-
inum að legg ja undir sig þurran runna-
gróöurogvotlendi.
I miklu kýprusviðarlandi ólguðu
mikiir eldar þangað til í gær þegar allt
í einu sljákkaði í þeim án þess að
Gorbatsjov
vill tala
um slökun
í Asíu
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, er nú i heimsókn í Moskvu. Gest-
gjafi hans, Mikhail Gorbatsjov, leið-
togi Sovétríkjanna, lagði i gær til aö
ríki þeirra tæk ju saman höndum um að
minnka spennu í Asíulöndum.
Gorbatsjov sagði að Indland gæti
haft stórt hlutverk í asískum viðræö-
um sem hann vill að verði hafnar til að
minnka spennuna. Þessar viðræður
myndu líkjast viðræðum Evrópuríkja i
Helsinki árið 1975 þegar slökunar-
stef nan var í hámarki.
Báðir leiðtogarnir virtust leggja sig
fram um að staðfesta hið sérstaka
samband sem rikir á milli Sovétríkj-
annaoglndlands.
Rajiv Gandhi mun heimsækja’
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta í
næsta mánuði. Gandhi hefur gefið i
skyn að hann muni breyta eitthvað
utanríkisstefnu lands síns frá þvi sem
varítíðmóðurhans.
Mikiö f jaðrafok hefur orðið í Vestur-
Þýskalandi út af bjórnum, sem þýsk-
um er mjög kær, þótt þeir séu svo
vandlátir að banna aö í bjórinn séu
notuð nokkur aukaefni og eiginlega
ekkert annað en vatn, sykur og malt.
— En einhver brugghús hafa orðið ber
aö þeim ósóma að nota fleiri efni, sem
þýskum þykir hneyksli, og kalla
raunar eyöileggingu á bjórnum.
Þjóðverjar hafa verið upp meö sér af
því að halda sínum bjór „hreinum” og
hafa i fullkominni óþökk viö samherj-
ana innan Efiiahagsbandalags Evrópu
bannað innflutning á bjór. Bjórfram-
leiðendur hinna EBE-landanna kalla
það brot á EBE-samningum um frjáls-
an innflutning innan EBE-landanna og
bera V-Þýskalandi á brýn að setja inn-
flutningshöftin til verndar þýskum
bjóriðnaði.
En þýskir hafa kallaö bjór hinna
óhoiian vegna allskonar snefÚefna sem
nú mun komið á daginn að nokkrir
þýskir bjórframleiðendur noti einnig.
var að hjálpa slökkviliðsmönnum.
„Hann sefur alla nóttina og um leiö og
hann er orðinn fuiiur af ediki þá vakn-
ar hann og byrjar að æfá sig. Þegar líð-
ur að kvöldi er hann reiöubúinn að fara
aðskemmtasér.”
I Norðaustur-Florida voru slökkvi-
liðsmenn í gær að hreinsa upp eftir
elda sem brenndu að minnsta kosti 200
hús til kaldra kola um helgina.
Skóglendi i Florida hefur legið sér-
staklega vel við eldum undanfarið. Þar
hafa ríkt þurrkar í sex mánuði. Eld-
arnir kviknuðu af mannavöldum og af
völdum eldinga í síðustu viku sem
kveiktu í fylkinu eins og púðurtunnu.
Kúrdar
í hung-
urverk-
falli
Frá Gunnlaugi A. Jónssyni, fréttarit-
ara DVíSviþjóð:
Um 100 kúrdar eru nú í hungurverk-
falli í Svíþjóð. Vilja þeir með því að
fasta mótmæla því hversu lengi hefur
dregist hjá sænskum yfirvöldum að
taka afstöðu til þess hvort þeir fái hæli
i landinu sem pólitískir flóttamenn.
I gær hófu 11 nýir kúrdar þátttöku í
hungurverkfallinu. En 28 félagar
þeirra hafa þegar fastað í rúmar þrjár
vikur. Er ástand margra þeirra, að
sögn, orðið mjög alvarlegt.
Anita Gradin innflytjendaráðherra
hefur lýst því yfir að hungurverkfallið
muni ekki leiða til þess að mál kúrd-
annafái forgang.
Ekki er óvenjulegt að flóttamenn er
koma til Svíþjóðar þurfi að bíða í heilt
ár í flóttamannabúðum áður en þeir fái
endanlegt svar og í mörgum tilvikum
er svarið neitandi þegar það loks kem-
ur.