Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Side 9
Útlönd
DV. MIÐVHÍUDAGUR 22. MAI1985.
Útlönd Útlönd Útlönd
9
íkveikjur og mann-
dráp i Suður-A fríku
DÝR
VATNS
SOPI
Frá Kristjáni Bernburg, fréttarit-
araDVí Belgíu:
Spænskur sjóari, sem settist inn
á einn dýrasta snobbveitingastað-
inn í Antwerpen ó dögunum, gekk
,þar berserksgang og braut allt og
bramlaði svo að borðsalurinn fíni
varð sem rúst.
Þessi 28 ára gamli blóðheiti
Spánverji hafði notið veitinga fyrir
fjögur þúsund franka í góðu komp-
aníi við allífið þegar hann bað loks
einn þjóninn að færa sér kalt vatn
að drekka til að skola niður ljúf-
metinu.
Stóð ekki á því en þjónninn vildi
fó 300 franka (um 180 ísl. kr.) fyrir
þennanvatnssopa.
Það blöskraði sjómanninum svo
mjög að hann lét ill orð falla og
jókst svo orð af orði að hann lét
hendur skipta með ofangreindum
afleiðingum.
Mun sá vatnssopi þykja hvað
dýrastur sem sögur fara af hér í
Antwerpen, þegar skaðabæturnar
leggjast ofanó.
Stór-
tækir
bfí-
þjófar
Frá Kristjánl Bemburg, fréttaritara
DViBelgiu:
Tíu bílar sömu tengundar, alUr
Volkswagen Golf, hurfu ó skömmum
tíma aöfaranótt laugardags í Ostende.
Hefur ekki fundist tangur né tetur af
þeim síðan en lögreglan leitar þriggja
manna sem grunur hefur falUð ó.
Þessi bUahvörf og önnur valda yfir-
völdum í Belgíu töluverðum óhyggjum
því að svo virðist sem upp sé risinn nýr
atvinnuvegur í kringum bUþjófnaðina.
Þrjór bílategundir, allar þýskar, —
Mercedes Benz, Volkswagen Golf og
BMW — hverfa oftast og þá sporlaust,
en aörar bílategundir finnast eftir
lengst eina viku þegar þeim er stolið.
Enda mun þeim flestum stoUð i allt
öðru skyni.
Þeir haldast mjög vel í verði í endur-
sölu og gera þjófarnir sér mat úr því,
en einnig hluta þeir bilana í sundur og
senda úr landi til Englands og suður á
bóginn og selja stykkin í varahluti eða
til nýrrar samsetningar.
Sex fastirí
sokknuskipi
Kafarar náðu í gær fimm líkum úr
oUuborskipi sem hvolfdi á fljóti í
Louisiana en sex menn eru taldir lok-
aðir inni í skipsskrokknum undir yfir-
borðinu enn. — Björgunarsveitir
boruðu göt á skipsbotninn, sem snýr
upp, og dældu lofti inn í skipið. Vonir
eru daufar um að sexmenningunum
verði bjargað lifandi. Tveim mönnum
var bjargað i upphafi eftir imm stunda
dvöl i skipinu i kafi. 23ja manna áhöfn
var á borskipinu, sem hvolfdi í hvass-
viðri, en tfu komu sér af skipinu í tæka
tið.
Hjúkrunarkona í Suður-Afríku lést í
gærkvöldi eftir að hópar blökkumanna
drógu hana frá bíl sínum og grýttu
hana til dauöa.
Lögregla segir að mennimir hafi
velt bíl konunnar eftir að þeir grýttu
hana og síðan kveikt í bílnum. Hún er
önnur hvíta konan sem ferst í óeirð-
unum í Suður-Afriku á 16 mánuðum.
I gær var kveikt í svörtum manni, að
sögn lögreglu. Það vom ungmenni í
norðurhluta Höfðasýslu sem það
gerðu. Maðurinn dó. Talsmaöur lög-
reglu sagöi aö 68 manns heföu veriö
handteknir í uppþotum i gær.
Lögregla segir að mikið hafi verið
um íkveikjur í kringum Jóhannesar-
borg og Pretoríu. Hún segir að 23
manns hafi verið handteknir í einu
bæjarfélagi eftir að kveikt hafði verið í
sendibíl og 45 svertingjar handteknir
eftir ólöglega samkomu.
Umsjón: GuðmundurPéturssonog
Þórir Guðmundsson
r f
^ Opna .
Panasomc
golfkeppnin
fer fram á Hvaleyrarvelli 27. maí n.k., annan í Hvítasunnu
og hefst kl. 08:00.
Leiknar veröa 18 holur (STABLEFORD).
væntanlegir þátttkendur skrái sig fyrir kl. 18:00
sunnudaginn 26. maí hjá Golfklúbbnum Keili, síma 53360.
Glæsileg verölaun í boði:
1. Bíltæki ásamt hátölurum
2. RX-C39 ferðatæki
3. Bíltæki ásamt hátölurum
4. vasadiskó
5. Wet/Dry rakvél
6. Vasadiskó
7. vasa rakvél
RAFBORG SF
JAPIS hf
GOLFKLUBBURINN KEILIR