Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Page 19
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985. 19 Fær lýðveldið ítök í stjórnun norðurhlutans? Um fátt er meira talað í Dyflinni en möguleikana á samkomulagi við Bret- land um einhvers konar sameiginleg yfirráð yfir Norður-Irlandi. Margt bendir til að slíkur samningur sé skammt undan, eða að minnsta kosti í deiglunni. Stjórnir landanna tveggja vilja þó sem minnst segja um málið, nema að of snemmt sé að láta nokkuö uppi. Heimildir fréttamanna innan írsku stjórnarinnar segja að um sé að ræða samkomulag sem eigi að geta gert írsku stjórninni kleift að verja hagsmuni írskra kaþólikka á Norður- Irlandi. Það eigi líka aö vera þannig að meirihluti mótmælendatrúarmanna í norðurhlutanum geti látiö sér það vel líka. Og auk þess verði samningurinn aö vera þannig að stjómir landanna tveggja geti skrifað undir hann. Þetta á greinilega ekki að verða neinn smá- samningur. Einangra IRA Tilgangurinn með slíkri íhlutun lýðveldisins í málefni norðurhlutans er að einangra hryðjuverkamenn Irska lýðveldishersins, IRA. Hugmyndin er að ef hægt yrði að tryggja betur öryggi minnihluta kaþólikka þar þá muni þeir snúa baki við öfgamönnum eins og IRA-skæruliðunum. Stjóm lýöveldisins í suðri er mjög óánægð með löggæslu í breska norður- hlutanum. Stöðugar kvartanir berast um að lögreglulið stjórnvalda þar sé nær allt mótmælendatrúar og mjög hliðhollt Bretasinnum. Enginn kaþólikki á Norður-Irlandi treystir lög- reglunni. Sumir treysta miklu betur á IRA-unglinga sem sums staöar hafa tekiö að sér hálfgert lögregluhlutverk. Sérstaklega em kaþólikkar óánægðir með varnarlið Ulsters. Það er hersveit sem notuð er til að berjast gegn IRA-skæruliðum. Nær allir hermennimir, sem í þessu liöi eru, teljast til meirihluta mótmælenda- trúarmanna. Æ ofan í æ er búið að sanna á liðsmenn þessarar stormsveitar ofsóknir gegn kaþólikkum. Nú síðast var einn meðlimur sveitarinnar hand- tekinn fyrir morö á kaþólikka um páskana. .JFrelsisher Ulsters” tók á sig ábyrgðina á morðinu og sagði hinn myrta hafa verið IRA-mann. Lögregla segir ekkert benda til þess að maðurinn hafi tengst IRA. I varnarliði Ulsters era 7.500 manns, flestir í hlutastarfi. Áttunda stórátakið Ef eitthvað verður úr sam- komulaginu verður það í áttunda skipti síðan 1972 sem Bretar gera stór- átak til að leysa vandamál noröurhlut- ans. En þaö yrði í fyrsta sinn sem samvinna er höfð viö stjórn Irska lýðveldisins. Stjómir beggja landanna gera lítið úr samningaviðræðunum. Heimildar- maður innan írsku stjórnarinnar segir að þegar séu stjórnimar sammála um „nokkuð margt” en ennþá eigi eftir aö semja um margt. Háttsettur breskur embættismaöur sagði fréttir breskra blaða af málinu „stóryrtar” og að málið væri ekki komiö nærri því eins langt áleiðis og þær gæfu til kynna. Reglulegir fundir Samningurinn er þríhliða. Reglu- legir fundir eiga að vera milli emb- ættismanna landanna um öryggis-, laga- og lögreglumáL Einhvers konar kerfi yrði komið á fót þar sem þing- menn Breta og Ira gætu hist reglulega og talað saman. Þetta myndi koma til móts viö kröfur kaþólikka á Noröur- Irlandi um einhver stjórnarfarsleg tengsl við Irska lýðveldið. Þriðja grein samningsins yrði nýtt norður- írskt þing þar sem valdskipting yrði milli mótmælenda og kaþóÚkka. Það þing myndi koma í staöinn fyrir þingiö sem var sett á laggirnar 1982 en kaþólikkar hundsuöu vegna þess að það tengdist ekki lýðveldinu á neinn hátt. Mótmælendur á móti En þó stjórnir landanna tveggja nái Aldrað strjálbýlisfólk á norðvesturströndinni: Lif ir í stöðugum ótta við árásir glæpaf lokka Nóttin var hræðileg fyrir Michael og Kathleen Carroll, systkini á áttræðis- aldri sem bjuggu í County Mayo, fögru sveitahéraði í norðvesturhluta Irlands. Fimm manna glæpaflokkur — allir með hettur fyrir andlitum, einn með handbyssu, hinir með hnífa eða fiöskur — réðst inn í hús þeirra og reyndi að fá þau til að segja sér hvar þau geymdu peninga sína. Til aö neyða þau til þess ýttu árásarmennirnir eitt sinn höndum Kathleenar inn í opinn eld. Eftir að systkinin höföu sagt árásar- mönnunum frá peningunum tókst þeitn að flýja. Hús þeirra var brennt til granna. Þessa sömu helgi í mars voru gerðar átta árásir á gamalt fólk sem bjó eitt í húsum við vesturströnd Irlands, á stað sem er heimsfrægur fyrir fegurð og vinalegt fólk. 200 tilfelli Fyrst fór að bóla á árásum sem þessum fyrir ári. Árásimar náðu há- marki í desember þegar gömul kona dó eftir hrikalega barsmíð. Eftir það virt- ist sem árásaöiduna ætlaöi að lægja. En síðan í janúar hefur verið til- kynnt um 60 slík tilfelli frá norðvestur- hluta Irlands, samtals 200 tilfelli und- anfama 12mánuöi. Þann 1. apríl var ráðist á tvo gamla bræður sem bjuggu saman. Fimm manna glæpaflokkur rændi þá um 300.000 krónum. Þetta var í County Kerry, héraði í suðvesturhluta Irlands sem ekki hafði orðið fyrir baröinu á slíkum árásarmönnum áður. Glæpa- mennirnir vora með kvensokka yfir höfðinu og hanska á höndunum. Sveitalögreglan hafði hingað til ekki þurft að leysa alvarlegri mál en ólög- lega vínandaframleiðslu og bar- drykkju utan lögbundins tíma. Hún var ekki í stakk búin að kljást við þessa nýju glæpamenn. Glæpaalda í Dyflinni Senda varð liðsauka frá Dyflinni þó að lögregluyfirvöldum í höfuöborginni þætti sárt aö missa menn úr liði sínu. I Dublin hefur einnig gengið yfir glæpa- alda. Unglingar stunda í miklum mæli þá íþrótt að stela bilum og aka þeim á ofsahraða þar til áfengisvíman rennur af þeim. Arásir á lögreglumenn hafa einnig færst í aukana. Islenskir ferðamenn, sem fara til Veggspjald mótmælenda heimtar að heimamenn á Norður-irlandi fði að ráða sinum málum sjálfir, sem þýðir áframhaldandi drottnun mót- mælenda yfir kaþólikkum. borgarinnar, era áminntir sérstaklega um aö passa upp á veskin sín og aðrar eigur. Vasaþjófnaðir eru algengir. Fimm hópar Um fimm mismunandi glæpahópar eru taldir standa að árásunum á norð- vesturströndinni. Hugsanlega sam- ræma þeir vinnubrögð sín og árásir og hugsanlega koma einhverjir þeirra frá Norður-Irlandi. Sumir telja að þarna séu að verki „tinkarar”, flækingar sem ferðast í hópum um landið og hafa ofan af fyrir sér með sölu ýmiss varnings. Tinkarar þessir eru algeng sjón fyrir utan bæi þar sem þeir háfast við í húsvögnum, oft 20 til 40 fjölskyldur. Börn þeirra eru algeng sjón á götum Dyflinnar þar sem þau betla peninga. En aðrir segja að það sé fólk sem býr í þessum sömu landshlutum sem stundiárásimar. Geymir heima Höfuðvandamál lögreglunnar er að strjálbýlisfólk er gjarnt á að geyma fé sitt heima fyrir frekar en leggja það í banka. Og þegar bændur versla mikið með dýr, sem geta kostaö upp í 50.000 krónur hvert, er oft nóg af peningum heima fyrir. John McMahon varalögreglustjóri, sem sér um rannsókn þessara mála, segir að ef hægt væri að fá strjálbýlis- fólkið til að leggja fé sitt í banka myndu árásir þessar sennilega bara deyja út. Stjómarandstöðuflokkurinn Fianna Fail hefur Iagt til að fyrstu 400.000 krónurnar, sem gamalt fólk leggur inn á sparisjóðsbók, verði undanskildar skatti til að hvetja það til að koma fé sínu í banka. Flokkurinn leggur einnig til að ríkið niðurgreiði þjófavamar- kerfi. Varðliðasveitir Sum hérað hafa komið sér upp varð- liðasveitum til að líta eftir gömlu fólki og fylgjast með ókunnugum og gran- samlegum bílum. Einnig berast fréttir af því að mikið hafi verið keypt af haglabyssum und- anfarið. Og þeir sem eiga vopn frá því á dögum sjálfstæöisbaráttunnar gegn Bretum era farnir að ná í þau upp á loft eöa taka þau niður af veggjum til að smyrja þau og hafa tilbúin ef á þyrfti að halda. Umsjón Þórir Guðmundsson IRA-krotá vegg I útbæ Belfastborgar. samkomulagi sem þessu er ekki þar með sagt að allir muni kyngja því. Mótmælendatrúarmenn í norðrinu hafa sumir sagt að þeir muni aldrei sætta sig við neitt annað en að þeirra partur af eyjunni verði fullkomlega breskur um aldur og ævi. Þaö er ekki bara að þeir telji hag sínum betur komið með Bretum heldur telja þeir sig breska í húð og hár. Harðlínumótmælendapresturinn Ian Paisley hefur varað við haröri and- stöðu sinna manna ef samið yrði án síns samþykkis. Hann kallaði ferð Howe utanríkisráöherra til Dyflinnar „svik”. Hannsagði: „Viðmunumekki leyfa að framtíð Ulsters (Norður- Irlands) verði ákveðin í Dyflinni: Við munum ákveða framtíð Ulsters sjálfir.” Stjómin í Dublin þarf Hka að geta selt hugsanlegt samkomulag heima fyrir. Nú um páskana setti Charles Haughy, formaður stjórnarandstöðuflokksins, sig upp á móti öllu öðra en algjöram yfirráðum. Fitzgerald forsætis- ráðherra benti samstundis á að ekki væri neinn fræðilegur möguleiki á aö þaö gæti gerst í náinni framtíð. Og á meðan yrði að gera eitthvað sem gagnaðist kaþólikkunum í norðrinu. Stjómin í Dyflinni gerir sér ljósa grein fyrir því að það er ekki hægt að lifa á óljósum draumum um það sem kannski gerist einhvem tíma. Til að draumarnir rætist verði að slá af og semja í dag. Ef allir hugsuöu þannig væri ekkert Irlandsvandamál. Ungir hermenn írska lýflveldishersins, IRA, með ungum aðdóendum. Blóðug saga eyj- unnar grænu Saga Irlands er samofin sögu Bretlands undanfarin nokkur hundr- uð ár. En saga kelta á Irlandi hefst þegar keltneskir ættbálkar ráðast á eyjuna um fjórum öldum fyrir Krist. Níu hundrað árum síðar sneri heilag- ur Patrekur Irum til kristinnar trúar. A áttundu öld hófu svo víkingar ránsferðir til Irlands og þeim lauk ekki fyrr en írski konung- urinn frægi, Brian Boru, sigraöi Dani áriö 1014. Tveim öldum síðar tók svo ekki betra við þegar Englendingar hófu árásir sínar á Irland. ' I meira en 700 ár hafa Englendingar og Irar háö margar skærurnar og ekki er séð fyrir endann á þeim enn. Árið 1916 reyndu nokkrir bjartsýn- ir þjóðemissinnar að gera uppreisn gegn yfirráðum Breta. Þessi upp- reisn er nú þekkt sem páskaupp- reisnin — og þegar blaðamaður DV var í Dyflinni var einmitt verið að halda upp á hana. Páskauppreisnin skipar stóran sess í hugum Ira. Það kemur enn blóði góðra Ira til að vella og krauma þegar minnst er á uppreisn- ina og hvemig Bretar refsuðu upp- reisnarmönnum: meðhengingu. Eftir fyrri heimsstyrjöldina skiptu Bretar Irlandi í suður- og norður- hluta. I suðrinu vora 26 sýslur, þar sem kaþólikkar voru í meirihluta, en í norðrinu vora 6 sýslur þar sem mót- mælendatrúarmenn vora fleiri. I norðrinu eru því um tveir þriðju hlut- ar fólks mótmælendatrúar en einn þriðji kaþólskur. Kannanir sýna þó að vegna bameigna kaþólskra muni þeir líklega verða fleiri en mótmæl- endur eftir hálfa öld. Lýðveldi Það var svo eftir síðari heimssty rj- öldina, árið 1948, að írska þingið lýsti yfir stofnun lýðveldis. Breska þingið staðfesti það en ítrekaði ætlun sína að innlima hinar sex sýslur Norður- Irlands í Sameinaða konungsrikið, Bretland. Síðan þá hefur Norður-Irlandi verið stjómað annaðhvort beint frá Bretlandi eða af norður-írsku þingi. Bretar hafa leyst upp þingið þegar deilur hafa magnast og þá stjórnað beint. Ógnaröld Nú hefur ógnaröld ráðið ríkjum í 14 ár. Meira en 2000 manns hafa látist í bardögum og sprengingum á þessum árum í þessu fallega landi. Arið 1981 létust 10 fangar í Mazer-fangabúðun- um eftir langt hungurverkfall. Fang- arnir, sem vora meölimir IRA, vildu fá viðurkenningu sem stjórnmála- fangar en stjórn Margaretar Thatchers neitaði því og lét sig ekki. Undanfarna mánuöi hafa komið upp hugmyndir um að stjóm lýð- veldisins fái einhverja aðild að stjómun norðursins gegn því að aðstoöa Breta enn frekar í barátt- unni gegn hryðjuverkamönnum IRA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.