Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Side 31
31
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985.
Peningamarkaður
Innlán með sórkjörum
Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru
fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri.
Innstæöur þeirra yngri eru bundnar þar til
þeir verða fullra 16 ára. 65—75 ára geta losað
innstæður með 6 mánaða fyrirvara. 75 ára og
eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikning-
arnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum.
Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert
innlegg bundið í tvö ár. Reikningarnir eru
verðtryggðir og með 9% vöxtum.
Lífeyrisbék er fyrir þá sem fá Ufeyri frá Uf-
eyrissjóðum eða almannatryggingum.
Innstæður eru óbundnar og óverðtryggðar.
Vextir eru 29% ogársvöxtum29%.
Sérbók fær strax 28% nafnvexti, 2% bætast
síðan við eftir hverja þrjá mánuði sem inn-
stæða er óhreyfð, upp í 34% eftir níu mánuði.
Arsávöxtun getur orðið 34,8%. Innstæður eru
óbundnar og óverðtryggðar.
Búnaðarbankinn: Sparibók með sérvöxtum
er óbundin 32,5% nafnvöxtun og 32,5% árs-
ávöxtun sé innstæða óhreyfð. Vextir eru
færðú- um áramót og þá bornir saman við
vexti af þriggja mánaða verðtryggðum reikn-
ingum. Reynist ávöxtun þar betri er mismun
bætt við.
Af hverri úttekt dragast 1,8% í svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Sparibókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði eða
lengur.
Iðnaðarbankinn: A tvo reikninga í bank-
anum fæst IB-bónus. Overðtryggðan 6
mánaða reikning sem ber þannig 31% nafn-
vexti og getur náð 33,4% ársávöxtun. Og verð-
tryggðan 6 mánaða reikning sem ber 3.5%
vexti. Vextir á reikningunum eru bornir
saman mánaðarlega og sú ávöxtun valin sem
reynist betri. Vextir eru færðir misserislega
30. júní og 31. desember.
Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með
32,5% nafnvöxtum. Vextir eru færðir um ára-
mót. Eftir hvem ársfjórðung eru þeir hins
vegar bornir saman við ávöxtun á 3ja mánaða
verðtryggðum reikningum. Reynist hún betri
gildir hún umræddan ársfjórðung.
Af hverri úttekt dragast 2,1% í svonefnda
vaxtaleiðréttingu. Kjörbókin skilar hærri
ávöxtun en almenn sparisjóðsbók á hverju
innleggi sem stendur óhreyft í tvo mánuði
eða lengur.
Samvinnubaukinn: Innlegg á Hávaxta-
reikning ber stighækkandi vexti. 22,0% fyrstu
2 mánuöina, 3. mánuðinn 23,5%, 4. mánuðinn
25%, 5. mánuðinn 26,5%, 6. mánuðinn 28%.
Eftir 6 mánuði 29,5% og eftir 12 mánuði 30,5%.
Sé tekið út standa vextir þess timabils það
næsta einnig. Hæsta ársávöxtun er 32,8%.
Vextiir eru bornir saman við vexti á 3ja og 6
mánaða verðtryggðum sparireikningum. Sé
ávöxtun þar betri er munurinn færður á
Hávaxtareikninginn. Vextir færast misseris-
lega.
Ctvegsbankinn: Vextir á reikningi með
Abót er annaðhvort 2,75% og full verðtrygg-
ing, eins og á 3ja mánaða verðtryggðum
sparireikningi, eða ná 32,8% ársávöxtun, án
verðtryggingar. Samanburður er gerður
mánaðarlega, en vextir færðir í árslok. Sé
tekið út af reikningnum gilda almennir spari-
sjóðsvextir, 24%, þann almanaksmánuð.
Verslunarbankinn: Kaskó-reikníngurínn er
óbundinn. Um hann gilda fjögur vaxtatímabil
á ári, janúar—mars, april—júní, júh'—
september, október—desember. I lok hvers
þeirra fær óhreyf öur Kaskó-reikningur vaxta-
uppbót sem miðast við mánaðarlegan út-
reikning á vaxtakjörum bankans og hagstæð-
asta ávöxtun látin gilda. Hún er nú ýmist á
óverðtryggðum 6 mán. reikningum með, 30%
nafnvöxtum og 33,5% áraávöxtúm eða á verð-
tryggð"m 6 mánaða reikningum með 2%
vöxtum.
Sé lagt inn á miöju tímabili og innstæða
látin óhreyfö næsta tímabil á eftir reiknast
uppbót allan spamaðartímann. Við úttekt
fellur vaxtauppbót niður það tímabil og vextir
reiknast þá 24%, án verðtryggingar.
tbúðalánarelkningur er óbundinn og með
kaskó-kjörum. Hann tengist rétti til lántöku.
Sparnaður er 2—5 ár, lánshlutfall 150—200%
miðað við sparnað með vöxtum og verðbót-
um. Endurgreiðslutimi 3—10 ár. Utlán eru
með hæstu vöxtum bankans á hverjum tíma.
Spamaður er ekki bundinn við fastar upp-
hæðir á mánuði. Bankinn ákveður hámarks-
lán eftir hvert sparnaðartímabil. Sú ákvörðun
er endurskoðuð tvisvar á ári.
Sparisjóðir. Trompreikningurinn er óbund-
inn, verðtryggður reikningur, sem einnig ber
3,5% grunnvexti. Verðbætur leggjast við
höfuðstól mánaðarlega en grunnvextir tvisv-
ar á ári. Á þriggja mánaða fresti er gerður
samanburður við sérstaka Trompvexti. Nýt-
ur reikningurinn þeirra kjara sem betri era.
Trompvextirnir eru nú 30,5% og gefa 32,8%
ársávöxtun.
Ríkissjóður: Spariskírteini, 1. flokkur A
1985, era bundin í 3 ár, til 10. janúar 1988. Þau
eru verðtryggð og með 7% vöxtum, óbreytan-
legum. Upphæðir era 5.000, 10.000 og 100.000
krónur.
Spariskírtelni með vaxtamtðum, 1. flokkur
B 1985, era bundin í 5 ár, til 10. janúar 1990.
Þau era verðtryggð og með 6,71% vöxtum.
Vextir greiðast misserislega á tímabilinu,
fyrst 10. júlí næstkomandi. Upphæðir era 5,10
og 100 þúsund krónur.
Spariskirteini með hreyfanlegum vöxtum
og vaxtaauka, 1. flokkur C1985, era bundin til
10. júlí 1986, í 18 mánuði. Vextir eru hreyfan-
legir, meðaltal vaxta af 6 mánaða verð-
tryggðum reikningum banka með 50% álagi,
vaxtaauka. Samtals 5,14% nú. Upphæðir eru
5, lOoglOOþúsundkrónur.
Gengistryggð spariskirteini, 1. flokkurSDR
1985, era bundin til 10. janúar eða 9. apríl 1990.
Gengistrygging miðast við SDR-reiknimynt.
Vextir eru 9% og óbrey tanlegir. Upphæðir era
5.000,10.000 og 100.000 krónur.
Spariskírteini ríkissjóðs fást í Seðlabank-
anum, hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og
verðbréfasölum.
Útlán lífeyrissjóða
Um 90 lifeyrissjððir era í landinu. Hver
sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lána-
upphæöir, vexti óg lánstíma. Stysti tími að
lánsrétti er 30—60 mánuðir. Sumir sjóðir
bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og
áunnin stig. Lán eru á bilinu 144.000—600.000
eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru
verðtryggö og með 5—8% vöxtum. Lánstími
er 15—35 ár eftir sjóðum og lánsrétti.
Biðtími eftir lánum er mjög misjafn, breyti-
legur milli sjóða og hjá hverjum sjóði eftir
aðstæðum.
Hægt er að færa iánsrétt þegar viðkomandi
skiptir um lífeyrissjóð eða safna lánsrétti frá
fyrri sjóðum.
Nafnvextir, ársávöxtun
Nafnvextir era vextir í eitt ár og reiknaðir í
einu lagi yfir þann tíma. Reiknist vextir oftar
á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin
verður þá hærri en nafnvextimir.
Ef 1.000 krónur liggja inni í 12 mánuöi á
24,0% nafnvöxtum verður innstæðan í lok þess
tíma 1.240 krónur og 24,0% ársávöxtun í því
tilviki.
Liggi 1.000 krónur inni í 6+6 mánuði á 24,0%
vöxtum reiknast fyrst 12% vextir eftir sex
mánuðina. Þá er innstæðan komin í 1.120
krónur og á þá upphæð reiknast 12% vextir
seinni sex mánuðina. Lokatalan verður
þannigkr. 1.254.40 og ársávöxtunin 25,4%.
Dráttarvextir
Dráttarvextir era 4% á mánuði eða 48% á
ári. Dagvextir reiknast samkvæmt þvi
0,1333%.
Vísitölur
Lánskjaravísitala í maí er 1119 stig en var
1106 stig í apríl. Miðað er við 100 í júní 1979.
Byggingarvísitaia á öörum ársfjóröungi
1985, apríl—júní, er 200 stig, miðað við 100 í
janúar 1983, en 2.963 stig, miðað við eldri
grunn. Á fyrsta ársfjórðungi í ár var nýrri
vísitalanl85stig.
VEXTIR BANKfl OG SPARISJÚDA (%)
INNLÁN MEÐ SÉRKJÚRUM SJA sérlista E il i íí II n II ll I 1 II II f! i\
innlAn úverðtryggð
SPARISJÖOSBÆKUR Úbundsi nratæða 22,0 22.0 22,0 22,0 22,0 22,0 22,0 22.0 22,0 22,0
SPARIREIKNINGAR 3ja mónaóa uppsögn 25.0 26.6 25.0 23,0 23.C 23,0 23,0 23,0 25,0 23,5
6 mónaóa uppsögn 29,5 31.7 28,0 26,5 29,0 29.0 29.0 29,5 27.0
12 mánaða uppsögn 30,7 33,0 30,0 26,5 30.7
18 minaða uppsögn 35.0 38,1 35,0
SPARNADUR lANSREITUR Sparað 3-5 mánuói 25,0 23.0 23,0 23.0 25,0 23,5
Sparað 6 min. og meia 29,0 23.0 23.0 29.0 27,0
innlAnsskIrteini Ti 6 mónaóa 29,5 31,7 28,0 26.0 29,5 29.0 28,0
TÉKKAREIKNINGAR Avisanaroikrángar 17.0 17.0 10,0 8.0 10,0 10.0 10,0 10.0 10,0
Hlaupareikningar 10,0 10,0 10.0 8.0 10,0 8.0 10.0 10.0 10,0
INNLÁN verðtryggð
SPARIREIKNINGAR 3ja mónaóa uppsögn
6 mónaóa uppsögn 3,5 3,5 3,5 3.5 3.0 3.0 3.0 3.5
innlAn gengistryggð
GJALDEYRISREIKNINGAR BandarjVjadoAarar 8.5 8.5 8.0 8.0 7,5 7,5 7,5 8.0
Storhngspund 12.0 9.5 12.0 11.0 11.5 11.5 11.5 12.0 11.5
Vestur þýsk mörk 5.0 4,0 5.0 5.0 4Æ 4.5 4.5 5.0 5.0
Derakar krónur 10,0 9.5 10,0 8,0 9.0 9.0 9.0 9.0
UtlAn óverðtryggð
ALMENNIR VlXLAR 29,5 29.0 28,0 28,0 28,0 29.5 28,0
VIOSKIPTAVlXLAR (forvextá) 31.0 31,0 30,5 29,0 31,0 30.5 30,5
ALMENN SKULDADHEF 32,0 31.5 30,5 30.5 30.5 32,0 31.0 31,5 32,0
VIÐSKIPTASKULDABRÉF 34,0 33.0 31.5 34,0 33.0 33,5 33.5
HLAUPAREIKNINGAR Yivdráttur 31,5 30,0 29,0 29,0 29.0 30,0 31,0 31,5 30.0
útlAn verðtryggð
SKULOABRÉF Að 2 1/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4,0 4.0
Lengri en 2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0
ÚTLAN TIL FRANILEIÐSLÚ
VEGNA INNANLANDSSOlU 26.25 26.25 26.25 26,25 26.25 26.25 26,25 26.25 26.25
VEGNA UTFLUTNINGS SDR reðcnimynt | 10.0 10,0 10.0 10,0 10,0 10.0 10,0 10,0 10.0
Sandkorn Sandkorn
Niður>
setningur
Nú standa yílr vorpróí í
grunnskólum borgarinnar.
Sveittir við prófborðin
reyna allir að gera sitt
besta, enda er að duga eða
drepast. Og þar sem
kunnóttuna þrýtur er
kannski gripið til hugar-
flugsins.
t móðurmólsprófi í einum
skólanna voru krakkarnir
beðnir um að útskýra hvað
orðið niðursetningur
merkti. Ein daman lagði
saman tvo og tvo og út-
koman varð eftirfarandi al-
þýðuskýring:
„Niðursetningur er kart-
afla sem sett er niður að
vori.”
Nr haida afl fférmAlaráðharra
myndi vara rýmiiagri vifl skóla-
kerflð, ef hundar vœru skóia-
skyldir.
Úldin önnur...
Mikið hefur verið rættum
fjórskort innan skólakerfis-
ins. Sjó menn ýmsar bliðar
ó þvi móli, eins og fram
kemur í eftirfarandl stöku
sem barst í Sandkorn:
Eitt hjó Berta aðelns gildir
eiginvilja að lótaíté.
Væru hundar skólaskyldir,
skorta tæpast myndi f é.
Sendlarn-
ir keyptu
Kaupfélag Suðurnesja
mun Iengi bafa haft hug ó
að kaupa bús eitt i Keflavik.
Að sögn Víkurfrétta
stendur húsið við Hafnar-
götuna og ber einkennis-
númerið 61. Hefur kaup-
f élagið haf t það ó leigu í ein-
hvern tima.
En svo var húsið selt um
daginn. Og kaupandinn var
ekki kaupfélagið heldur
þrir bræður sem allir hafa
verið sendlar hjó fyrir-
tækinu. Einn þeirra hefur
raunar starfið enn með
höndum.
Segir sagan að sendlarnlr
hafi yfirboðið kaupfélagið
en samt fengið búsið ó
þokkalegu verði. Og vita-
skuld var það þeirra fyrsta
verk að endurskoða og
hækka leiguna sem kaup-
f élagið greiðir.
Jó, félagshyggjan tekur ó
sig ýmsar myndir.
Vissu ekki
hvort af öðru
Svo bar til ó Aiþingi fyrir
Helgi Seljan.
skömmu að tveir þingmenn
iögðu fram, sama dag,
sömu fyrirspurnina um
fóstureyðingar. Virðast
þelr ekki hafa vitað hvor af
öðrum og þvi fór sem fór.
Þess vegna var það að
Helgi Seljan kom lafmóður
inn í herbergi skjalavarðar
Alþingis með fyrirspurnar-
blöðin tvö í hendinni. Vék
hann sér að skjalaverði og
var miklð niðri fyrir:
„Getur þú sagt mér hvers
vegna Kristin S. Kvaran og
Ami Johnsen leggja bæði
fram sama dag sömu fyrlr-
spurnina um fóstur-
eyðingar?”
Skjalavörðurinn, dæma-
laust ljúfur og geðugur
starfsmaður, sem heitir
Vigdís, svaraði þessu neit-
andi, en bætti síðan við:
„Þau hafa liklega ekki
vitað hvort af öðm. Þetta
hlýtur að vera tilviljun.”
Helgi var ekki alls kostar
ónægður með að Kristín og
Ami hefðu „ekki vitað
hvort af öðra”, en svaraðl
umhæl:
„Heyrðu, lóttu mig fó
lögin um rafmagns-
veitumar. Það gæti orðlð
spennufall.”
Davíðféll
Við ræddum litillega um
nýafstaðínn fund félags-
hyggjufólks í Sandkomi í
gær. A þinginu þvi arna var
fjallað um borgarstjórnar-
kosningar ó næsta órl. Só er
sfðastur tók tll móis var
Guðmundur Ölafsson,
menntaskólakennari ó
Laugarvatni.
Hann ræddi um Davið
Oddsson borgarstjóra og
kvaðst hafa verið honum
samtiða i hóskólanum.
„Viö vomm orðnir sér-
fróðir í Davíð,” sagði
Guðmundur, „og felldum
hann i f ernum kosningum.”
Setti nokkurt fliss að
þingheimi við þessi tiðindi.
Og ekki minnkaðí
fögnuðurinn þegar
Guðmundur hélt ófram:
„Davíð er vissulega
fyndinn maður, en það vora
bara miklu fleiri fyndnarl
enhann.”
Og þvi fór sem fór fyrir
Davið...
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsdóttir.
Um 800 íslendingar
til Rhodos í sumar
Einn fegursti staflurinn ó Rhodos er bærinn Lindos. Fyrir ofan gnæfir
Akropolis, virki umhverfis hof.
Fyrsta íslenska leiguflugið til
grísku eyjarinnar Rhodos var farið
14. maí síðastliðinn. Þó fóm um 130
Islendingar í sumarleyfi ó vegum
ferðaskrifstofunnar Samvinnuferðir-
Landsýn með Boeing 737 þcrtu Amar-
flugs.
Ohætt er að segja að þessi Miðjarð-
arhafseyja hafi þegar slegið í gegn
hjó Islendingum. Alis munu um 800
Islendingar ferðast til Rhodos í
sumar. Uppselt er í ferðir þangað.
Trúlega eru flestir að sækjast eftir
sól og hita. Á Rhodos er nóg af hvom
tveggja. I sjö mónuði ó óri kemur
ekki dropi úr lofti. Regntíminn er fró
því í nóvember og fram í mars. Fró
maí til september fer hitinn sjaldan
íslenskir fararstjórar ó Rhodos i
sumar. Edda Björgvinsdóttir, Laddi
og Sóley Jóhannsdóttir.
undir 30 gróður yfir daginn og oft
yfir 40 gróður.
Rhodos er þrótt fyrir hitann og
þurrkinn alls engin eyðimörk. Þar er
nóg af vatni í jörðu og eyjan þar af
leiðandi gróðursæL Lógt rakastig
loftsins og hægur andvari gera hit-
ann bærilegri.
Rhodos býður upp ó fleira en sól-
böð og busl í hlýjum óvenjutærum
sjó. Þar er fjölskrúðugt skemmtana-
líf, hægt að djamma ó diskótekum
fram ó nótt eða freista gæfunnar i
spilavíti. Golfmenn geta leigt kylfur
og leikið 18 holur fyrir svipaö verð og
í Grafarholti. En ekki síst er hægt aö
skoða sig um eða versla.
Eyjan er ó stærð við Snæfellsnes. A
gullöld grisku menningarinnar, þeg-
ar Aþena var nafli alheimsins, voru
þrjú sjólfstæð borgríki ó Rhodos.
Krossfarar, ó leið til og fró Jerúsa-
lem, notuðu Rhodos sem bækistöð.
Tyrkir nóöu eyjunni ó sitt vald órið
1522 og réðu yfir henni allt til órsins
1912 þegar Italir tóku hana. I síöari
heimsstyrjöldinni var þar einnig
þýskt herlið. Eftir stríð var ókveðið
að eyjan skyldi tilheyra Grikklandi,
enda flestir íbúarnir Grikkir.
Eyjan er þó næst Tyrklandi. Sést
yfir til Tyrklands, enda ekki nema 18
kílómetrar ó rnilii.
Ibúar eyjarinnar eru um 76 þúsund
talsins. Þar af búa um 46 þúsund í
bænum Rhodos. Fjöldi Grikkja kem-
ur auk þess fró meginlandinu ó
sumrin til að þjóna ferðamönnum,
sem órlega eru um 400 þúsund tals-
ins, aðallega fró Norður-Evrópu;
Skandinavíu, Vestur-Þýskalandi,
Bretlandseyjum og Hollandi.
Og nú bætast Islendingarnir við.
-KMU.