Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1985, Side 32
32
DV. MIÐVIKUDAGUR 22. MAI1985.
Andlát
Minningarathöfn um Rannvelgu
Jónsdóttur, fyrrv. ljósmóður, fer fram
í Fossvogskapellu föstudaginn 24. maí
kl. 13.30. Utförin verður gerð frá Súða-
víkurkirkju miðvikudaginn 29. maí kl.
14.
Ásmundur B. Olsen, fyrrverandi kaup-
maður á Patreksfiröi, Þverbrekku 4
Kópavogi, andaðist i Borgarspítal-
anum aö morgni 21. maí.
Benedikt Kristinsson, Freyjugötu 38,
andaðist 18. maí í Borgarspítalanum.
Jarösett verður frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 23. maíkl. 13.30.
Magnús Sigurðsson garðyrkjubóndi,
Grafarbakka 2 Hrunamannahreppi, er
lést í Borgarspítalanum 18. maí sl.,
verður jarðsunginn frá Hrunakirkju
laugardaginn 25. maí kl. 14.
Bergþór Vigfússon, fyrrum til heimilis
á Þingholtsstræti 12, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju föstudaginn 24.
maíkl. 13.30.
Jórunn Jónsdóttir frá Smiöjuhóli,
Hverfisgötu 28 R., verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju 23. maíkl. 10.30.
Þórður Magnússon, Sólvallagötu 53
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 23. maí
kl. 13.30.
Tilkynningar
Lampar eftír heimskunna
hönnuði á sýningu í Epal
Epal hf., Síðumúla 20 Reykjavik, hefur nú
fengið einkaumboð hér á landi fyrir hið kunna
danska fyrirtæki Louis Poulsen & Co., as.
Þetta fyrirtæki hefur getið sér frægðarorð um
heim allan fyrir framleiðslu á lömpum og
ljósabúnaði þar sem saman fer gðð ljðstækni
og hönnun eins og hún gerist best á þessu
sviði. Louis Poulsen & Co., as., hefur jafnan
kostað kapps um að eiga samvinnu við hina
færustu hönnuði enda má að mörgu leyti
rekja velgengni fyrirtækisins og það orð sem
af því fer til þessarar stefnu.
Fyrir það hafa starfað ýmsir frægustu
hönnuðir Dana. Má þar nef na menn á borð viö
Poul Henningsen, Ame Jacobsen, Werner
Panton og Hans J. Wegner, sem allir eru
heimskunnir fyrir hönnun sína og eiga mikinn
þátt í þeim árangri sem Danir hafa náð í
framleiðslu og útflutningi margs konaF
iðnvamings, ekki síst húsbúnaðar. Þann 23.
maí nk. verður opnuð í húsakynnum Epal hf.,
sýning á mörgum gerðum inni- og útUjðsa frá
Louis Poulsen & Co., as. Þar verða m.a.
lampar eftir þessa þekktu hönnuði. Sýningin
verður opin á venjulegum verslunartíma og
stendur í þrjár vUtur.
E klúbbs félagar
Opið hús verður föstudaginn 24. mai kl. 20.30 í
Domus Medica. ÖUum frjálst aö koma. For-
maður feröa- og skemmtinefndar, Ida
Mikkelssen, verður á fpndinum.
Ég þakka af heilum hug öllum vinum minum,
konu minni, börnum, tengdafólki og barna-
börnum sem gerðu mér ógleymanlegan og
skemmtilegan 70 ára afmælisdaginn minn, með
heimsóknum, gjöfum og ástúð, dagana 21. og
22. apríl síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur bjarta framtíð.
Þorsteinn Sigmundsson,
Hjallabraut 9 Þorlákshöfn.
Dansleikir í Logalandi
um hvítasunnuna
Sumardansleikjahald í Borgarfirði hefst nú
með 2 dansleikjum um hvítasunnu. Föstu-
dagskvöld 24. mai verður hér hin gððkunna
Akraneshljðmsveit Tibrá og á hvitasunnu-
dagskvöld 26. maí hefur fengist leyfi fyrir
dansleik frá miðnætti til kl. 4. Mun þar hin
landsþekkta stuöhljðmsveit Goðgá skemmta.
Tjaldstæði hafa verið leyfð hér i nágrenn-
inu. Verður þar greiðasala og björgunar-
sveitin mun annast gæslu og hreinlætis-
aðstöðu. Sætaferðir verða með Sæmundi.
MS-félag íslands
Síðasti fundur fyrir sumarið verður
fimmtudaginn 23. maí kl. 20.00 að Skðgarhlið
8, Húsi Krabbameinsfélags Islands. Mætum
ÖU.
Stjómin.
Námskeiö fyrir
sjómenn
Slysavamafélag lslands mun, í samvinnu við
Landssamband slökkviliösmanna, gangast
fyrir námskeiði fyrir sjómenn dagana 29.—31.
mai nk.
A námskeiði þessu verður f jaUað um helstu
þætti öryggismála, svo sem notkun björgun-
artækja, skyndihjálp og eldvamir. Þetta
námskeið er haldið í samráði við hagsmuna-
aðUa sjávarútvegsins. AUar nánari upplýs-
ingar varðandi þetta námskeiö verða veittar í
síma 27000.
Opnunartimi sundstaða
1 sumar verða sundstaðimir opnir sem hér
segir:
SUNDHÖLLIN.
Mánudaga — föstudaga
(virkadaga) 7.00—20.30.
Laugardaga 7.30—17.30.
Sunnudaga 8.00—14.30.
Sumartimi frá 1. júní—1. september.
Morgunopnun tekur gUdi 2. maí.
SUNDLAUGARNAR
ILAUGARDAL
Mánudaga—föstudaga
(virkadaga) 7.00—20.30.
Laugardaga 7.30—17.30.
Sunnudaga 8.00—17.30.
Sumartimi frá 2. maí —15. september.
SUNDLAUG VESTURBÆJAR.
Mánudaga—föstudaga
(virkadaga) 7.00—20.30.
Laugardaga 7.30—17.30.
Sunnudaga 8.00—17.30.
SUNDLAUGFB
IBREIÐHOLTI.
Mánudaga—föstudaga
(virkadaga) 7.20—20.30.
Laugardaga 7.30—17.30.
Suimudaga 8.00—17.30.
Sumartimi frá 2. maí—31. ágúst.
Sérstök athygU er vakin á að opnað veröur kl.
7.00 á morgnana i Sundhöllinni, Sundlaug
vesturbæjar og i Sundlaugunum i Laugardal.
Sundlaugamar i Laugardal, Sundlaug vestur-
bæjar og Sundlaug FB i Breiðholti verða
opnar U1 kl. 17.30 á laugardögum og sunnu-
dögum. Sundhöllin verður opin tU kl. 17.30 á
laugardögum og kl. 14.30 á sunnudögum.
Lokunartími er miðaður við þegar sölu er
hætt en þá hafa gestir 30 minútur áður en
vísað er upp úr laug.
Hlýja skugganna
Mál og menning hefur sent frá sér ljóða-
bðkina Hlýja skugganna eftir Sigfús Bjart-
marsson. Er það önnur ljððabðk Sigfúsar,
en sú fyrri hét Ut um lensportiö og kom út árið
1979.
I bðk Sigfúsar skiptast á stuttar ljððmyndir
og lengri frásagnarljðð. Hann leitar viða
fanga og sum ljðð hans em eins konar skáld-
legur vitnisburður um ferðir hans tU
Rðmönsku Ameriku og fleiri framandi landa.
Hlýja skugganna skiptist í þrjá hluta með
eftirmála. Kápu hannaöi Hilmar Þ. Helgason
en Þórarinn Oskar Þðrarinsson tðk myndina
aftan á henni. Bðkin er 76 bls. að stærð og
unnin að öUu leyti í prentsmiðjunni Hðlum.
einskonar hofuð
lausn
gyrðir elíasson
MÁL & NÆ ■<
Einskonar höfuðlausn
Nýlega sendi Mál og menning frá sér ljóöa-
bðkina Einskonar höfuðlausn eftir Gyrði
Eliasson. Þetta er þriðja ljððabðk Gyrðis en
hann hefur áður sent frá sér bækumar
„Svarthvít axlabönd” (1983) og „Tvibreitt
(svig)rúm” (1984).
Gyrðir er tilraunamaður í skáldskap. Ljðð
hans segja ekki sögu heldur bregöa upp
leifturmyndum úr hugarheimi nútímans.
Einskonar höfuðlausn er 44 bls., unnin að
öUu leyti í Prentsmiðjunni Hðlum. Mynd á
kápu er eftir Sigurlaug Eliasson en Teikn
hannaðikápuna.
Út er komið tímaritið
Hór og fegurð, 5. árgangur.
Meðalefnis:
Hártiska frá Inter-coiffure og tiskufatnaöur
frá Eros og Pophúsinu.
SkemmtUegur sérsaumaður fatnaður frá
Oltíma.
Efni frá Vidal Sassoon.
GlæsUeg sýning á Hótel Sögu.
Matstaöur kynntur i Amsterdam.
Efni frá Pivot Point Interaational.
Efni Peter Kress frá Þýskalandi sem er
kunnur af að kynna Schwartzkopf á Islandi.
Efni the world hairdressing congress 1985,
London.
Alexandre de Paris heiðraður með æðsta
heiðursmerki franska lýðveldisins.
Hár og fegurð ræöir við Garöar Sigur-
geirsson.
Kynnt er efni frá snillingnum Alan Inter-
national.
Stórkostleg sýning í Eyjum.
Efni frá Jingles Intemational.
FurðufatabaU i Olduselssköla.
Cutrin kynning á Hðtel Loftleiðum.
Hafa vaxtarræktarmenn sterkari kynhvöt en
aðrir?
Efni frá BurUngtons.
Grein um æfingakerfi kvenna.
Ymsir smáþættir um það sem er að ske.
Við kynnum Leonard sem greiðir ýmsum
stðrstjömum.
Svo er efni frá opnun vinnu- og þjálfunar-
stúdiði hárskerameistara.
Forsíðan er frá Sanrizz.
Fólkið vill vinstri
flokkana
„Þessi niðurstaöa staðfestir þá
skoöun mina að stór hluti óákveðna
fylgisins hefur ákveðið að kjósa vinstri
Rokkana, þótt það hafi ekki ákveöiö
hvem þeirra það kýs,” sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir. „Hins vegar sýnist
mér ekki sjálfgefið að einn listi fengi
meira fylgi en flokkamir myndu fá
hverfyrirsig.”
„Þessi skoðanakönnun sýnir fyrst og
fremst afstöðu fólks til vinstri og hægri
aflanna,” sagði Ingibjörg Sólrún.
I DV í gær var haft eftir Ingibjörgu
Sólrúnu skoðun hennar á fylgi
flokkanna samkvæmt skoðanakönnun
DV. Þar sagði hún að skoðana-
könnunin sýndi að meirihluti óákveðna
fylgisins myndi fylkja sér um einn
sameiginlegan flokk vinstri aflanna.
Vildi hún koma á framfæri nánari út-
listun á skoðun sinni.
Vorhátíð í Varmárskóla
Vorhátíð verður haldin f Varmárskðla í Mos-
feUssveit kl. 13.00 á morgun.
Ymislegt veröur tU skemmtunar eins og t.d.
flóamarkaður, bögglauppboð, hjðlböruhlaup,
rððrarkeppni á bölum, koddaslagur, hesta-
lán, dýrasýning, tískusýning og margt fleira.
Seldar verða gðöar veitingar sem nemendur
sjálfir útbúa.
Tapað -fundið
Högni fannst í Breiðholti
Svartur vel upp aUnn högni með hvítt trýni,
blettur á nefi, fannst i Breiðholti. Eigandi
vinsamlegast hringi i síma 79192.
Ferðalög
ÚTIVIST
10 Á R A
Útivistarferðir
Miðvikud. 22.maí:
Kl. 20 EUiöakot-Selvatn. Létt ganga. Brottför
frá BSI, bensínsölu. Verð 250 kr., frítt f. böm
m. fuUorðnum. Sjáumst.
Hvítasunnuferðir Utivistar:
24.—27.maí: Eitthvaðfyriralla.
1. Snæfellsnes-SnæfellsjökuU. Gist að Lýsu-
hðU. Sundlaug, heitur pottur, ölkelda. Gengið
á Jökulinn. Göngu- og skoðunarferöir. Sigling
um Breiðafjarðareyjar. Fararstj. Ingibjöm
S. Asgeirsdðttir o.fl.
2. Króksfjörður-Reykhólar-Gufudalssveit. Ný
ferð. Fjölbreytt náttúrufar og sögufrægir
staðir. Fararstjóm: Kristinn Kristjánsson.
3. SkaftafeU-VatnajökuU (snjðbUaferð).
Gönguferðir um þjððgarðinn. Fararstjóri:
Kristján M. Baldursson.
4. SkaftafeU-öræfajökuU. Gengið á Hvanna-
dalshnúk. Fundur um útbúnað og ferðatU-
högun fimmtudagskvöldið 23. maí kl. 20 að
Lækjarg. 6a. Fararstjórar: EgUl og Reynir.
5. Þðrsmörk. Frábær gistaðstaða í Utivistar-
skálanum Básum. Gönguferðir við allra hæfi.
Fararstjðrar: OU og Lovísa.
6. Purkey-Breiðafjarðareyjar. Náttúrupara-
dis á Breiöafirði. Eggjaleit. Uppl. og far-
miðar á skrifst. Lækjarg. 6a, simar: 14606 og
23732 (opiö kl. 10—18 alla virka daga.
Sjáumst.
Dagsf erðir um hvítasunnu:
Hvítasunnudagur 26. mal:
Kl. 13. Austan Afstapahrauns-Sóleyjarkriki.
Gervigígamir Hvassahraunskatlar skoðaðir.
Létt ganga. Verð 350 kr.
Annar í hvítasunnu 27. maí.
Kl. 13. Esja-Vesturbrúnir. Gengið á Kerhóla-
kamb. Frábært útsýni yfir sundin blá. Verð
300 kr., frítt i ferðina fyrir böm m.
fuUorðnum. Brottför frá BSI, bensínsölu.
Miðvikud. 29. mai kl. 20. Kvöldganga um
' Amameslæk og Kaplakrika. Sjáumst.
Utivist.
Þú ættir að setja eyrnaskjólin á
þig áður en ég fer á vigtina.