Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1985, Síða 8
DV. MIÐVIKUDAGUR 26. JUNI1985.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
HEIMAGERD
JÓGÚRT
Jógúrt er eins og allir vita mjög
holl og góö fæfta en sumum finnst þó
heldur dýrt að kaupa hollustuna í
mannmargar fjölskyldur. Til þess aft
spara má gera sína eigin jógúrt úr
undanrennudufti og mjólk en bæta
meö hreinni jógúrt og ávaxtagraut-
um.
Undanrennuduftið fékk Neytenda-
síöan í Vörumarkaönum á Eiftis-
granda og kostafti hálft kíló 42,80
krónur. I hverja uppskrift þarf hálf-
an bolla af undanrennudufti þannig
aö sparnaöur er einhver og ekki má
gleyma því aö mörgum finnst heima-
gerfta jógúrtin mun bragftbetri.
Uppskriftin hljóðar svo:
1/2 bolli undanrennuduft
11 mjólk eöa léttmjólk
Þeytt saman, hitað upp en má þó
ekkisjóða.
Látiö kólna þar til nálgast likams-
hita en þó á aft finnast góftur hiti á
handarbaki.
1/2 dós efta þremur matskeiftum af
hreinni jógúrt er blandaö saman vift
og sett á flösku meft stóru opi.
Vefjiö í trefil og látiö standa á
heitum stað í um fimm klukku-
stundir. Setjiö síftan í ísskáp og þar
þarf krúsin efta flaskan aö standa í
sextíma.
Hafi allt tekist eins og best verður
á kosiö veröur jógúrtin svo þykk aft
hvolfa má krúsinni án þess aö mass-
inn haggist. Aft lokum má bragðbæta
meft ýmsu aft vild, svo sem ávaxta-
grautum eöa niöursneiddu grænmeti
og berjum. baj
Undanrennuduftið og mjólkin hitað upp, má ekki sjóða.
Vefjið trefli um krúsina. . .
. . .og breiðið yfir með til dœmis
pappir. DV-mynd Vilhjálmur.
Að láta umskrá bíl
með gluggakvöð
Reirsrgt grundlir
schonend zugiemi
olle fextilen Pobter
Hreinsiefni fyrir áklœði — ekki þarf að bleyta við notkun. Góð loftrœsting
er skilyrði þegar unnið er með efnið — allir gluggar upp á gáttl
DV-mynd GA.
Þurrhreinsun
áklæða
Héma á Neytendasíöu var sagt frá
aöferðum til þess aö ná kaffiblettum úr
teppi efta áklæði og af því tilefni kom
Kjartan frá Litalandi í Hólagarði vift
hjá okkur meö hreinsiefni undir hend-
inni.
„Þetta er mun betra til þess aö ná
blettum úr húsgögnum því ekki þarf að
bleyta. Mörg efni þola ekki aö blotna,
hlaupa þá og skemmast. Þessu er ein-
ungis dreift á blettinn og nuddað vel á
eftir. Fyrst þarf aft ryksuga rækilega,
síöan dreifa duftinu á og skrúbba vel
ogjvandlega meft svampinum. Síöan
þarf aft bífta í tvo tíma'og þaft er mjög
mikilvægt aft leyfa efninu aft þoma. Að
Iokum er ryksugað mjög vandlega og
hægt aft endurtaka meftferftina ef ekki
næst allt í fyrstu atrennu. Og til er
teppahreinsiefni meö sömu eiginleik-
um sem kemur þá í veg fyrir aft teppi
gliöni á samskeytum þegar þarf aft ná
úrþeimblettum.”
baj
Bileigandi hringdi:
Á dögunum keypti ég sendiferöabíl
sem á hvíldi svokölluð gluggakvöö.
Þaö þýöir aft bíllinn er fluttur til lands-
ins gluggalaus og bannað aö setja
glugga í hann. Fyrir bragöiö fer hann í
lægri tollflokk.
Eg þurfti aö láta umskrá bílinn og
þaö var nú meira heldur en rétt aö
segja þaft. Hjá Bifreiftaeftirlitinu fékk
ég þær upplýsingar að einkaritari toll-
stjóra væri hjálplegur viö útvegun
þeirra pappíra sem nauösynlegir
væru. Eg kom aö máli viö einkaritar-
ann sem var aölaðandi ung kona. Hún
visaði mér aö ég þyrfti veöbókarvott-
orð og einnig átti ég aft koma með yfir-
lýsingu um aö bílnum yrfti ekki breytt.
Þetta tók mig tvo til þrjá klukkutíma.
Þá þurfti aö senda bréf til fógetans
frá tollinum. Eg baft um að fá aö fara
með bréfiö sjálfur því annars hefði þaö
tekið tvo daga í póstinum. Þaft var auð-
sótt og fór ég meft bréfift til fógeta.
Þar átti að mata tölvu á upplýsing-
unum sem ég haffti aflaö og þær síftan
koma fram á tölvunni hjá Bifreiða-
eftirlitinu.
Og nú kemur rúsínan í pylsuendan-
um: Það varö aö bíöa heilan dag eftir
þessu! Þaft var ekki nokkur leiö aft fá
þetta gert samdægurs þannig aö ekki
var hægt að fá bílinn afgreiddan fyrr
en daginn eftir.
En ég vil taka fram aö alls staöar
var mér sýnd fyllsta lipurð og kurteisi,
m.a.s. í Bifreiöaeftirlitinu. En þaft
tekur 6—8 klst., sem verður að dreifast
yfir á tvo daga, aö fá umskráðan bíl
sem er með gluggakvöö.
Þarna má sjá sendibíla, bœði með og án glugga.
Raddir neytenda
Réttu merkin í garðinn?
Þaö hefur lengi viftgengist í fata-
iönaöinum að selja nafn og sama
gildir um allt sem snyrtivörum viö-
kemur. Merkjasnobbift getur gengiö
býsna langt en þegar ekki er unnt að
reyta arfann án þess aö hárétt nafn
fyrirfinnist á klórunni er tími til
kominn að fara aft hugsa sig vand-
lega um.
I Vörumarkaðnum vift Eiðistorg
eru á boðstólum myndarlegar garð-
klórur og kostar stykkift 310 krónur.
Sama dag og skoftaftar voru klórurn-
ar í Vörumarkaðnum urðu á vegin-
um sams konar verkfæri i Þór hf. viö
Ármúla — verðift hins vegar 155
krónur. Enginn munur á vörunni —
nema áprentað nafn á skaftinu var
ekki það sama i báðum tilvikum.
Sennilega framleitt í sömu verk-
smiftju sem síðan setur margs konar
nöfn á framleiösluna, allt eftir pönt-
unum viftskiptavinarins. I þessu til-
viki var unnt að fá tvær sams konar
klórur fyrir verft einnar ef menn
þora út í garft meft gripinn hverjum
sem hann er svo merktur.
Dior á skófluna?
Þetta er alþekkt bragö til þess að
blekkja neytendur og sem dæmi má
nefna aft litblýantar í snyrtivörulín-
um eru yfirleitt framleiddir í einu og
sömu verksmiöjunni. Síftan eru sett
mismunandi nöfn á sams konar blý-
anta — svo sem Yves Saint Laurent,
Dior, Lancome, Helena Rubinstein
efta eitthvaft mun minna þekkt. Síöan
er verðið á blýöntunum nákvæmlega
í takt vift verö nafnsins á markaftn-
um, þannig aft eins blýantar eru fá-
anlegir í hinum ýmsu verftútgáfum.
Framleiftendur græfta þarna á
óöryggi neytenda og þekkingarleysi
gagnvart raunverulegum vöru-
gæðum.
baj
Tómathlaupið
vinsæla
Fyrir nokkrum vikum birtum við
uppskrift aft tómathlaupi. Margir hafa
hringt og spurt eftir uppskriftinni,
hafa týnt henni. Þess vegna birtum vift
hana aftur. Nú er einmitt í gangi útsala
á tómötum og hægt aft gera hagstæð
kaup.
5 dl. saxaftir tómatar (ca 500 gr.)
4 dl sykur
2 msk. sítrónusafi
1 pk Royal raspberryhlaup (hind-
berja)
Dýfiö tómötunum í sjóðandi vatn til
þess að losa hýftið og fjarlægið þaö.
Tómatamir skornir smátt í höndunum
efta í vél. Tómatar, sykur og sítrónu-
safi soðift í potti vift vægan hita í ca 20
mín. þá er potturinn tekinn af og hlaup-
duftinu bætt út í. Hlaupift er látift á
hreinar krukkur, látiö kólna og þeim
lokaö.
A.Bj.