Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1985, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1985, Page 9
DV. MIÐVIKUD AGUR 26. JUNI1985. 9 Neytendur Neytendur Neytendur BAKAÐ UNDIR BERUM HIMNI Heitt hverabrauð að norðan selt í Reykjavík Mikill fjöldi brauögerðarhúsa fyrir- finnst úti um allt land og eru þau bæöi misstór og mismunandi geröar þrátt fyrir sama viðfangsefnið — bakstur. Eitt þaö sérkennilegasta er án efa útibú frá Brauðgerð KÞ á Hveravöll- um því þar er ofninn úti í guðsgrænni náttúrunni. Ur ofninum, sem hitaður er með hveraorku, koma síðan iimandi seydd rúgbrauð sem smellt er í einangrunarkassa og flutt suður flug- leiðis beint á borð neytenda á Reykja- víkursvæðinu. Þetta er nýjung sem verið er að reyna og hafa viðskiptavinir Vöru- markaöarins, Víöis og Miklagarös, þar sem brauöin eru seld, tekið hvera- brauðinu mjög vel að sögn umboðs- mannsins, Gríms Leifssonar. Verði viðtökur jafngóðar í framtíðinni má reikna með að framhald verði á þess- um viðskiptum. Bakarameistarinn, Helgi Sigurðsson, tekur brauðformið út úr ofninum á Hveravöllum i Reykjahverfi. Gufan sem kemur úr ofninum er ósvikinn hverahiti og gefur brauðinu hið Brauðin hlutuð í sundur og síðan eina sanna bragð. liggur leiðin suður í verslanir. Áttatíu afsláttar- kort til ágústloka „Eg fagna því ef möguleikar fyrir neytendur til að gera góð kaup eru auknir en hins vegar er á þessum af- sláttarmiðum verulegur annmarki. I heftinu eru eingöngu sérverslanir, ekki verslanir sem selja daglegar nauð- þurftir,” sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, er DV spuröi hann álits á afsláttarmiðum sem okkur bárust nýlega. Um er að ræða hefti með áttatíu af- sláttarmiðum sem gilda í tæplega fjörutíu fyrirtækjum. Afslóttarhefti þetta er selt á kr. 200. „Mér sýnist þetta vera dæmigerð afleiðing kreditkortaviðskipta þar sem þama fær fólk afslátt við staðgreiðslu- kaup sem ekki var áður. En ég á dálítið erfitt með að koma auga á að almenningur geti notfært sér þetta afsláttarkort til fulls því ég fæ ekki séð að fólk geti farið áttatíu sinn- um í sérverslun á þessu tímabiii sem kortin í heftinu gilda,” sagði Jóhannes. I afsláttarheftinu er hægt að fá frá 5 og upp í 30% afslátt á vörum og þjón- ustu. Kortin gilda til 31. ágúst. Fyrir- tækið Afsláttarkaup sf. gefur þessi kort út og er ábyrgðarmaður þess Elías Sigurðsson. A.Bj. Afsláttarmiðarnir eru í handhægu hefti eins og ávisanahefti. DV-mynd Vilhjálmur. Umbúðirnar vigtaðar með innihaldinu ,JMig langar til þess að fá upplýsingar um pökkun á ávöxt- umoggrænmetii verslunum er ávextir og grænmeti selt í grænum pappabökkum. Ég fékk þær upplýsingar að bakkarnir væru vigtaðir með. Þetta getur verið 2—3 kr. fyrir minni gerðina og 5—6 kr. fyrir stærri eða eitt- hvaðumþaðbil. Eg spyr, er þetta heimilt? Ég hélt að umbúöakostnaður væri innifalinn í álagningu vörunnar. Eg hef spurt um þetta en svarað var með hálfgerðum skætingi. 4439-9563.’,’ Frjáls álagning Við höföum samband við Guð- mund Sigurðsson hjá Verðlags- stofnun. Hann sagði aö almennt væri litiö svo á að umbúðakostn- aður væri inni í álagningunni. Þegar álagning er frjáis, eins og hún er á öllum matvörum nú, virðist ekki skipta svo miklu máli hvorum megin verð bakkanna liggur, í hærri eða lægri álagn- ingu. Það er fyrst ef umbúðirnar geta talist veruiegur hiuti af þvi sem í þeim er sem það gæti verið óeðlilegt að vigta þær með inni- haldinu. Annars má benda bréfritara á að mun hentugra er að kaupa ávexti og grænmeti „i lausri vigt”, eins og það er kallaö, þeg- ar neytandinn velur sjáifur vör- una. Þá er maöur líka aiveg viss um að ekki er veríö aö selja manniskemmdavöru. A.BJ. Svæðisstjórn Vesturlands auglýsir lausa til umsóknar stöðu þroskaþjálfa í sambýli fjölfatlaðra á Akranesi. Laun samkvæmt samningi BSRB. Nánari upplýsingar veita þroskaþjálfar í síma 93-2869. Umsóknir skal senda til Sambýlis fjölfatlaðra, Vesturgötu 102, 300 Akranesi. Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla Stundakennara vantar við bókfærslu. Nánari upplýsingar í skólanum milli kl. 10og 12 næstu daga. Skólameistari. Mercedes Benz 280 SE árg. 1984 Litur grár, ekinn 12.000 km, nær allir fáanlegir aukahlutir eru í bifreiðinni. Upplýsingar í síma 81430 og 71083. Sumarferð Varðar 29.júníl985 Ekið verður um Borg- arfjörð og áð á fögrum Sumargleðin skemmtir í Borg- arnesi Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishúsinu Valhöll kl. 8.00. Ekið verður fyrir Hvalfjörð, yfir Geldingadraga og niður að Skorradalsvatni. Morgunkaffi verður drukkið á bökkum Skorradalsvatns. Ekið niður Andakílshrepp — Fossaveg og Vatnshamraveg niður að Hvítá og sem leið liggur að Brekku- áreyrum vestan Grábrókar við Bifröst. Þar verður hádegis- verður snæddur í fögru umhverfi. Á heimleið verður staldrað við í Borgarnesi þar sem Sumargleðin skemmtir Varðarfé- lögum í Hótel Borgarnesi. Áætluð koma til Reykjavíkur er kl. 19.30. Ávörp flytja: Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Valdimar Indriðason al- þingismaður og Jónas Bjarnason, formaður Varðar. Verð aðeins kr. 950,- fyrir fullorðna, kr. 400,- fyrir börn 4—12 ára og frítt fyrir börn yngri en 4 ára. Innifalið í verði: Ferðir, hádegisverður frá Veitingahöllinni og skemmtun Sumargleðinnar. Komið til Reykjavíkur um kl. 19.30. Pantanir í síma 82900. Miðasala í Valhöll kl. 9—21 frá miðvikudeginum 26. júní. Fjölmennum i Varðarferð! Ódýr og góð skemmt- un fyrir alla fjölskylduna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.