Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1985, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ
Sími ritstjórnar: 68-66-11. Auglýsinqar, áskrift og dreifing, sími 27022.
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá í
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku,
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1985.
Ýsuflök og
farmgjöld
hækka líka
Bensín hækkaöi í morgun um 16,5
prósent. Utrinn fór úr 26,70 krón-
um upp í 31,10 krónur. Gasolía og
svartolía hækka hins vegar aöeins
um 10 aura hver lítri.
Fleira hækkar í dag. I fiskbúð-
inni hækka þorskur og ýsa um 7 til 8
prósent. Farmgjöld skipafélaga
hækka um 8 prósent og taxtar flutn-
ingabíla um 6 til 12 prósent.
-KMU.
Sólheimasöfnunin:
Stefnir í
4-5 milljomr
„Þaö stefnir allt í, aö söfnunin
fari í 4—5 milljónir króna,” sagöi
Halldór Kr. Júlíusson, forstöðu-
*-maður á Sólheimum, er DV spuröi
hann hversu mikið hefði safnast
vegna Islandsgöngu Reynis Péturs
Ingvarssonar.
Halidór sagöi aö erfitt væri aö
segja nákvæmlega tU um hversu
mikiö heföi safnast nú. I síöustu
viku heföu veriö komnar 350.000
krónur inn á gíróreikninginn í
Landsbankanum. Þá heföi Reynir
veriö búinn aö safna um 500.000 á
göngu sinni áöur en hann kom til
Reykjavíkur i fyrradag. Frá fyrir-
tækjum og stofnunum hefðu komiö
loforö um áheit og gjafir fyrir nær
eina miUjón króna. TU dæmis
mætti nef na aö Ispan gæfi aUt gler í
íþróttaleikhúsiö. Þá væru ótaldir
iáheitaseðlarnir sem lægju frammi
á bensínstöðvum en þar væru áheit
um umtalsverðar upphæðir.
Haildór sagöi aö seðlarnir yrðu
sendir til Sólheima þar sem séö
yrði um innheimtu á áheitunum.
Ekki væri fyrirséö hvemig sú inn-
heimta gengi.
-JSS
TALSTÖÐVARBÍLAR
UM ALLA BORGINA
SÍMI 68-50-60.
BÚASf
■«s> — ■
ÞRÖSTUR
SÍÐUMÚLA 10
Fasteignaverð mun
lægra en í fyrra
— munurinn um 150 þúsund á meðalíbúð, miðað við fast verðlag
A fyrsta f jóröungi þessa árs reynd-
ist meðalverö íbúöa í fjölbýli í
Reykjavík 7,6% lægra en á sama
tíma í fyrra, reiknað á föstu verö-
lagi. Þaö þýöir um 150 þúsund krónur
á meöalíbúð. Ibúðaverð hefur þó ekki
lækkaö í krónum talið, heldur hækk-
aö um 13,5%. Annaö verölag hefur
hins vegar hækkaö um 22,9%, mælt
með lánskjaravísitölu og svipað meö
byggingavísitölu.
Frá þessu er skýrt í Markaðsfrétt-
um Fasteignamats ríkisins. Þar seg-
ir aö þróun af þessu tagi hafi ekki
áöur átt sér stað síðustu 10 ár. Ætíð
hafi íbúöaverö hækkaö á fyrstu mán-
uðum árs. Þá er sagt frá því aö út-
borgunarhlutfall hafi lækkað um 4%
í 71,9% að meðaltali. Hlutfall verö-
tryggöra lána hækkaöi jafnframt um
4,4%, úr7,3% í ll,7%aömeöaltali.
Utborgunarhlutfall fór niður í 70%
á síðasta ársfjórðungi í fyrra en
haföi farið allt upp í 77% fyrr á árinu.
Samkvæmt upplýsingum Fasteigna-
matsins eru nú um 18% íbúöa í
Reykjavík seldar með fullverö-
tryggöum kjörum og 64—65% út-
borgun. Nokkru stærri hluti selst á
alveg óverötryggöum kjörum og þá
með um 75% útborgun. Aörar íbúðir
eru á blönduöum kjörum.
I könnun Fasteignamatsins á
íbúöasölum í Reykjavík fyrsta árs-
fjóröung í ár reyndist meöalstærö
íbúða í fjölbýli, sem seldar voru á
tímabilinu, 84,3 fermetrar og meðal-
verö 1.870 þúsund krónur. Meðal-
stærð 1—2ja herbergja íbúöa var 56,9
fermetrar og verðið 1.363 þúsund aö
meöaltali. 3ja herbergja íbúðir voru
75,2 fermetrar aö meðaltali og á 1.673
þúsund krónur. 4ra herbergja íbúöir
að meðaltali 94,1 fermetri og á 2.047
þúsund krónur aö meðalverði.
HERB
Bandariski forstjórínn, flugmaðurinn og húmoristinn Foster MacEdward hefur það áhugamál að fljúga
DC-3 flugvél um heiminn. Undanfarnar sex vikur hefur flugvól hans verið stopp vegna vélarbilunar í
Reykjavik. Flugvirkjar Flugleiða luku viðgerð i gœr. í dag flýgur „MacEagle" þvi þristinum sinum heim.
DV-menn heilsuðu upp á hann i gœr. Sjá blaðsiðu 5. DV-mynd S.
Indriðiog
magnus
hættir við NT
„Þetta er úr sögunni. Þaö gekk
einfaldlega ekki sarnan með okk-
ur,” sagði Magnús Bjarnfreðsson, f
samtali við DV.
Eins og kunnugt er hefur verið
um það talað og samningar staðið
yfir að undanförnu um að Magnús
Bjarnfreðsson og Indriði G. Þor-
steinsson kæmu til starfa á NT sem
rltstjórar við hlið Helga Pétursson-
ar. Það mun nú úr sögunni eftir að
upp úr samningaviöræðum slitnaði
milli útgáfustjórnar NT annars
vegar og Magnúsar og Indriða hins
vegar.
„Samningaviðræður á borð við
þessar eru trúnaðarmál svo ég get
ekki sagt hvað gerði það að verkum
að ekki gekk saman,” sagði Magn-
ús aðspurður um það mál. -KÞ
Gafvillandi
upplýsingar
Talið er aö sést hafi til belgíska
ferðamannsins, sem leitað var aö á
hálendinu um helgina, á tjaldstæð-
inu í Borgamesi í gær. Skipulagöri
leit að manninum var hætt eftir há-
degi á sunnudag eftir aö nafn hans
fannst ritað í gestabók göngu-
mannaskála á leiðinni milli Þórs-
merkur og Landmannalauga.
Lögreglan á Hvolsvelli hefur
samt ennþá áhuga á aö ná tali af
manninum þar sem hann hefur
ítrekað gefiö upp rangar og villandi
upplýsingar um ferðir sínar. EA
Sumir tannlæknar fá engin laun um mánaðamótin:
„Davíð hýrudregur okkur”
„Davíð borgarstjóri er að hýru-
draga okkur tannlækna. Hann ætlar
aö draga af launum skólatannlækna,
laun sem þeir hafa réttilega þegið og
mér er sagt aö sumir skólatannlækn-
ar fái engin laun um mánaöamótin
fyrir bragðið,” sagöi Birgir Jóhanns-
son, formaður Tannlæknafélagsins.í
morgun.
Tannlæknafélagiö fékk einn ar
starfsmönnum Hagvangs til að
reikna út hækkun á gjaldskrá sinni
og varð niðurstaðan sú að launaliöur
taxtans var hækkaöur um 43 prósent
1. mars síöastUðinn. I gær gerðist
það svo að borgarráð samþykkti
samhljóöa að taka ekki mark á þess-
ari hækkun og halda áfram að greiða
skólatannlæknum eftir þessari gjald-
skrá er var í gildi 1. febrúar. Þá
verður skólatannlæknum gert að
endurgreiöa þann mismun er komiö
hefur í vasa þeirra frá því hækkunin
tók gildi.
„Þetta er allt saman misskilning-
ur. Davíð Oddsson rýkur upp til
handa og fóta eftir að hafa heyrt
ávæning af þessu í sjónvaipsfrétt-
um. Hann þekkir ekki málið og þetta
minnir mig helst á atkvæðafiskirí,”
sagöi Birgir Jóhannsson tannlækna-
formaöur. „Þó launaUöur okkar hafi
hækkaö um 43 prósent þá hefur
gjaldskráin aðeins hækkað um 24
prósent frá áramótum. Þessir stjórn-
málamenn eru aö reyna að slá sér
upp með því að níðast á okkur enda
gengur þeim illa að hækka launin hjá
þeim lægstlaunuðu.”
TannlæknadeUan snýst eingöngu
um þaö fé sem ReykjavOturborg
greiöir fyrir skólatannlækningar.
Tryggingastofnun ríkisins, sveitar-
félög og einstakUngar greiða fuUt
gjald til tannlækna eftir sem áöur.
Tannlæknar hyggjast ganga á f und
borgarstjóra í dag.
-EIR.