Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Blaðsíða 8
8 DV. FIMMTUDAGUR 27. JUNI1985. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd PanAmafturtil Grikklands Bandaríska flugfélagið Pan American hætti sem kunnugt er að fljúga til Grikklands eftir að upp- víst varð um slælegar öryggisráð- stafanir á flugvellinum í Aþenu. Flugvallaryfirvöld virðast nú eitthvað hafa gert í öryggismálum því forráðamenn Pan Am tilkynntu í gær aö brátt myndi áætlunarflug til Aþenu hefjast á ný. „Við teljum að öryggiseftirliti á flugvellinum hafi nú verið kippt í lag og erum ánægðir með að geta aftur hafið áætlunarflug til grísku höfuöborg- arinnar,” var haft eftir forráða- mönnumPan Am. 231 árí fangelsi Tveir spænskir stórbófar voru í gær dæmdir í 231 árs fangelsi hvor fyrir margskonar afbrot. Voru tví- menningamir dæmdir fyrir tvær meintar morðtilraunir og fjölmörg meiri háttar af brot önnur. Sakbomingar em úr flokki spænskra hægri öfgamanna er leit- aö hafa hefnda gegn aðskilnaöar- samtökum Baska, ETA. Aðskiln- aðarsamtök Baska hafa að undan- förnu lýst sig ábyrg fyrir mörgum hermdarverkum á Spáni. Hægri öfgamennirnir settu baráttuna gegn ETA í öndvegi, hétu því meðal annars að myrða fjóra meðlimi aö- skilnaðarsamtakanna fyrir hvern lögregluþjón semETAmyrti. Hættirsvelti Pólverjinn Waldemar Knihinicki hefur aflýst hungurverkfalli sínu í Osló. Hann fór í hungurverkfall til að þrýsta á pólsku stjórnina að gefa konu sinni í PóUandi farar- leyfi tU Noregs. Hann hætti viö hungurverkfalUð eftir að kona hans grátbað hann um að gera það. Þau töluðust við í gegnum síma. Nú lítur út fyrir aö konan muni brátt fá fararleyfi og málið leysist þar meö. íhaldá Norður-Kýpur Ihaldsmenn sigruðu í kosningum á Norður-Kýpur, þar sem er lýð- veldi Kýpur-Tyrkja. Þjóðareining- arflokkurinn fékk 36,7 prósent at- kvæða, sem er minna en síðast, en gefur flokknum 24 þingmenn af 50 á hinu nýja þjóðþingi lýðveldisins. Lýðveldið, sem var formlega stofnað haustið 1983, er alþjóðlega ólöglegt. Aðeins Tyrkland viður- kennir þaö. Kýpur-Tyrkir vUja þó heldur vera ólöglegir en þurfa að reiða sig á náð Kýpur-Grikkja sem mynda meirihluta á eynni. Lausn? Nabih Berri, leiötogi shíta, lagði í gær til að shítar létu gíslana 40 í hendur einhvers sendiráðs í Beirút þangaö tU búið væri að leysa hina 700 shíta-fanga í Israel úr haldi. Það gæti verið lausn á málinu. Morö, váááá Japanskar sjónvarpsstöðvar hafa lengi verið iUræmdar fyrir smekkleysi, með nauðgunaratriði á besta kvöld- tíma og keppnir þar sem keppendur éta kakkalakka. Þó þykja þær hafa slegiö ÖU met með því að mynda raun- verulegt morð og sýna það í frétta- tíma. Um 40 fréttamenn og sjónvarps- menn höfðu komið sér fyrir gegnt húsi forstjóra fyrirtækis sem var í fréttunum vegna meints svindls þess. Þá komu að tveir menn og sögðust ætla að drepa forstjórann. Það tók þá 10 mínútur að komast inn. Þegar þeir komu út aftur, allir blóðugir, gáfu þeir sjónvarpsmönnum viðtal. Þetta var síðan sýnt í fréttatíma. Áhorfendur voru svo æfir aö síma- línur til sjónvarpsstöðvanna voru tepptar í f jóra tíma eftir sýninguna. Í stórsókn sinni i Helmandhéraði hafa Sovétmenn beitt miklum fjölda skriðdreka og brynvarinna farartækja. Stórsókn Sovétmanna í Afganistan: Mikið mannfall í röðum óbreyttra Þaö er taliö aö yfir 700 óbreyttir borgarar í Afganistan hafi látið lífið í mestu sókn sameinaðra herja Sovét- manna og afganska stjómarhersins gegn skæruliðum í þrjú ár. Aöal- áhersla var lögð á hemað gegn aðsetri skæmliða Helmandhéraös í suðvest- urhluta Afganistan. I frétt frá Afganistan segir að skæruliöar í suðvesturhlutanum hafi fram að þessu barist meira innbyrðis en gegn stjóm kommúnista í Kabúl. Afganski stjómarherinn hefur fram að þessu lagt Útla áherslu á hemað í suð- vesturhlutanum. Að sögn skæruliða í Helmandhéraði beitti stjórnarherinn mörg þúsund manna herliði í sókninni studdu af þúsund skriðdrekum og öðrum brynvörðum farartækjum auk þess sem tugir þyrlna og ormstuvéla herjuöuúrlofti. Skæruliðar telja sig hafa fellt að minnsta kosti 300 sovéska- og afganska stjómarhermenn í áhlaupinu. Stjórnarhernum tókst aö umkringja vígi skæmliöa í borginni Musa Gala. Taliö er að yfir 100 óbreyttir borgarar hafi f allið í umsátrinu auk 60 skæruliða áður en stjómarandstæðingar náðu að brjótast út. I Musa Gala segjast skæm- liöar hafa skotið niður eina brynvaröa þyrlu " Sovétmanna auk þess sem nokkrir skríðdrekar voru eyðUagðir. I fréttum frá Helmandhéraði segir að mjög fáir óbreyttir borgarar hafi yfirgefið heimUi sín í héraðinu frá því að innrás Sovétmanna hófst fyrir sex ámm og skýri það hinn mikla fjölda óbreyttra borgara sem faUið hafa í bardögum. Ástvinir farþega streyma til írlands HÖRÐ GAGNRÝNI A COMECON Georgy Lazar, forsætisráðherra Ungverjalands, gagnrýndi í gær Comecon, efnahagsbandalag Austur- Evrópu, harðlega í ræðu er hann hélt á fundi ráðherra Comecon ríkja í Var- sjá. Lazar gagnrýndi Comecon fyrir að hafa ekki tekist að hækka verö á ung- verskum landbúnaðarafurðum sem fluttar hafa verið út tU annarra ríkja í efnahagsbandalaginu, nokkuð sem var ákveðið að gert yrði á síðasta fundi Comecon í Moskvu á síðasta ári. Að auki gagnrýndi Lazar lélega og seinvirka áætlanagerð og ákvarðana- töku innan efnahagsbandalagsins sem yki á kostnaðarUði og seinkaði efna- hagsframförum bandalagsríkja. Aö sögn vestrænna stjórnarerind- reka í Búdapest ber æ meir á óánægju Ungverja með samstarfið í Comecon við önnur kommúnistaríki Austur- Evrópu, ekki síst þar sem Ungverjar hafa riðið á vaðið með auknu frjáls- ræði í viðskiptum samhUða auknum hagvexti innanlands og betri lifsaf- komu fólks en þekkist í öðrum kommún- istaríkjum. Umsjón: Þórir Guðmundsson og Hannes Heimisson Töluvert brak úr júmboþotu ind- verska flugfélagsins, er fórst á sunnu- dag, hefur rekið á landi á Irlandi. Ekki hafa þó fleiri lík rekið á land. Þrátt fyrir viðvaranir yfirvalda um að ættingjum flugfarþega væri enn ekki heimilt að koma til Irlands tU að bera kennsl á ástvini sína hefur veriö stöðugur straumur ættingja til Irlands, bæði frá Kanada og Indlandi. Svæðissjúkrahúsinu í borginni Cork hefur að hluta til verið breytt í líkhús fyrir 131 lík sem tekist hefur að finna við slysstaðinn eða rekið hefur á land. Læknar eru enn að framkvæma ná- kvæma skoðun á Ukum þeim er fundist hafa og hafa spítalayfirvöld sagt að enn sé nokkur tími áður en ættingjum verður leyft að bera kennsl á sína nánustu. Heilbrigðisyfirvöld í Cork, stjórnar- erindrekar og talsmenn indverska flugfélagsins hafa brýnt fyrir ætt- ingjum að vera ekki að koma til York fyrr en frumrannsókn á orsökum slyss- inshefuráttsérstað. Fulltrúar Air India kanna hluta braksins úr vélinni sem fórst undan ströndum irlands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.