Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Blaðsíða 11
DV. FIMMTUDAGUR 27. JUNI1985. 11 Varar við alvar- legum af leiðingum Ekkert klóakí Elliðaárnar Samkvæmt úttekt sem gerö hefur verið á Elliöaáasvæðinu er ekki um aö ræöa aö skolp renni út í árnar. En sum- staðar hafa eigendur vanrækt aö láta hreinsa þræmar reglulega. Á öörum stööum þarf að endumýja þær vegna skorts á viðhaldi. Þetta kemur m.a. fram í athuga- semd sem Ingi U. Magnússon gatna- málastjóri hefur sent DV vegna grein- ar í blaðinu undir heitinu „Klóakið flæöir í Elliðaámar.” Kveöst gatnamálastjóri hafa lagt til aö heilbrigðiseftirlitinu yrði falið að fylgja því eftir að húseigendur gerðu viðeigandi ráöstafanir til úrbóta. Gatna- og holræsadeild væm til ráðu- neytis um hina tæknilegu hlið málsins. EFTA ritar EB um saltfisktollinn: Formaður ráðherraráðs EFTA, fríverslunarbandalags Evrópu, hef- ur ritað formanni framkvæmda- stjómar EB, Efnahagsbandalagsins, og varað við afleiðingum þess að tek- inn var upp tollur á saltfisk i EB- löndunum 1. júlí. Bréfið er skrifað sérstaklega með hagsmuni Is- lendinga í huga. Tollurinn snertir þriöjung af öllum útflutningi héðan á markaðiEB. Minnt er á að EB hafi fellt niður tolla á söltuðum þorski, skreið og söltuðum þorskflökum snemma á áttunda áratugnum, þá einhliöa en um leið og EFTA og EB gerðu með sér friverslunarsamning. Akvöröun EB nú umað taka þessa tolla upp aft- ur sé augljóslega andstæö þróun til viðskiptafrelsis milli aöila og sem nýlega var áréttuð i yfirlýsingu svo- kallaðs Lúxemborgarfundar. „Aögerðir af þessu tagi munu hafa slæm áhrif á efnahagslíf Islands og breyta mjög verulega þeim forsend- um sem fríverslunarsamningur Is- lands hvílir á. Með hliðsjón af því hve mikla áherslu EFTA-ríkin sex leggja á að samskipti þeirra við Efnahagsbandalagið haldi áfram að þróast á svo hagstæðan hátt sem unnt er telja þau mjög mikilvægt að þetta vandamál fái viðunandi lausn,” segir orðrétt i bréf inu. Bréfið er skrifaðí framhaldi af við- ræðum Matthíasar A. Mathiesen við- skiptaráðherra við fulltrúa EB í Brussel siðast í maí. Hann fól þá Hannesi Hafstein sendiiierra að fylgja málinu eftir innan EFTA og leita stuðnings þar við málstað Is- lendinga. EFTA-ráðið samþykkti að leggja fram sérstakt erindi til EB. T ryggingabætur hækka um 7,5% HERB Fyrirliggjandi í birgðastöð KALDVALSAÐ PJ Stál SPO 10.03-12.03 — og f rítek jumarkið hækkar um 30% frá 1. júlí Allar bætur almannatrygginga hækka 1. júlí um 7,5%. Þá hækkar um leið svokallað frítekjumark um 30%. Einstaklingur má þá hafa 54.170 krón- ur í árstekjur án þess að til komi skerð- ing tekjutryggingar á lífeyri og hjón 75.830 krónur. Bætur verða þannig: Elli- og örorkulífeyrir 5.003 krónur, hjónalífeyrir 9.005 krónur, full tekjutrygging einstaklinga 7.331 króna en hjóna 12.393 krónur, heimilisuppbót verður 2.205 krónur,bamalífeyrir vegna eins barns 1.920, vegna tveggja 5.030 og þriggja 8.922 krónur, ekkjubætur 6 mánaða og 8 ára 6.269 krónur, 12 mánaða 4.701 króna, fæðingarorlof 22.369 krónur, vasa- peningur samkvæmt 19. grein 3.084 krónur og samkvæmt 51. grein 2.592 krónur. HERB Plötiiþykktir Plötustærðir og frá 0.8 - 2 mm 1000 x 2000 mm 1250 x 2500 mm SINDRA STÁLHF Borgartúni 31 sími 27222 STEIIMVARI 2000 er terpentínuþynnanleg akrýlmálning. Hún er gædd þeim einstöku eiginleikum að vera þétt gegn vatni og slagregni, en hleyþajafnframt loftkenndum raka auðveldlega í gegnum sig, rúmlega tvöfalt betur en heföbundj] plastmálning. Þessir eiginleikar gera STEINVARA 2000 að óviðjafnanlegri málningu utan á steinsteypt mannvirki við íslenskar aðstæður. STEINVARI2000 hefur gengist undir umfangsmikla nýnæmis- rannsókn á erlendri tæknistofn- un. Niðurstaða hennarersú að STEINVARI 2000 er nýjung sem Málning hf. getur fengið einkarétt til framleiðslu á. Þetta eru góðar fréttir fyrir starfsfólk Málningar hf„ íslenskan iðnað og alla sem þurfa að mála steinsteyþt hús að utan. PC fe 2 Q lu Q Fyrir veðrun Eftir veðrun m mm, málninghlf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.