Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Blaðsíða 35
DV. FIMMTUDAGUR 27. JtJNl 1985.
35
V
Tíðarandinn Tíðarandinn Tíðarandinn Tfðarandinn Tíðarandinn
Hvað verður um
okkur þegar við
deyjum? Þegar
stórt er spurt er
fátt um svör. En
það er á hreinu
að öll erum við
einhverntíma
grafin i jörðu og
það verk hafa
grafarar með
höndum.
„Þaö kemur fyrir að fólk hefur ekki
fengiö jarðsett á þeim tíma sem það
hefur viljað en slíkt er ekki algengt. I
slíkum tilfellum hefur þá verið mjög
mikið að gera hjá okkur. Það er t.d.
stutt síðan að við sáum um 6 jarðarfar-
ir sama daginn. En að meðaltali eru 2
útfarir hjá okkur á dag, alla daga árs-
ins.”
„Stundum átakanlegt
starf”
— Hvað vinna margir hérna?
„Það eru 3—4 sem vinna við akstur á
bílunum. Aksturinn er nú orðinn tíma-
frekari en áður síðan kirkjugarðurinn í
Gufunesi kom til sögunnar. Síðan eru
4—5 sem vinna við það sem fram fer í
kirkjunni.”
— Er þetta nægur mannafli?
„Já.hann ernægur.”
Þetta eru sem sagt þau atriði sem
lúta að útförinni sjálfri. En af hverju
velja menn sér starf sem þetta? Einar
Jónsson var fyrst spurður að því.
Texti:
Þorsteinn Vilhjáimsson
Myndir:
Kristján Ari
„Eg veit ekki hvað skal segja. Eg
ætlaði mér aldrei að ílengjast í þessu.
En svona er þetta nú, ég byrjaði 1948
og starfa hér enn, þar af útfararstjóri
frá 1977.
Það var erfiðast að byrja. Þetta er
hins vegar eins og með alla aðra vinnu,
hún kemst upp í vana. Maður verður
samt alltaf að legg ja sig allan f ram. ”
— Hvemig líður þér viö jarðarfarir?
„Það er ákaflega misjafnt. Þegar
verið er aö jarða börn og ungt fólk get-
ur þetta tekið á mann. Það er ööruvísi
þegar eldra fólk er jarðsett. Þá veit
maður aö þetta er aðeins lífsins gang-
ur.”
— Hefur einhvemtíma hvarflað að
þér að hætta í þessu starfi?
„Já og nei. Manni hefur stundum
fundist eins og maöur sé búinn að fá
nóg, þó ekki hafi beinlínis hvarflað að
manniaðhætta.”
„Gerum okkar besta”
— Hvað finnst þér sjálfum um dauð-
ann?
„Eg held að ég skilji dauðann ekkert
betur en hver annar. Maður veit aö eitt
sinn skal hver deyja en hvenær það
verður veit enginn. Það er kannski
einna helst að viö sem gegnum þessu
starfi gerum okkur grein fyrir því
hversu nálægur dauðinn er. Annars má
maður ekki sökkva sér of mikið niður í
svona hugsanir. Aö vera grafari er
eins og hvert annaö starf og viö reyn-
um að gera okkar besta fyrir fólk,”
sagði Einar Jónsson útfararstjóri að
lokum.
■
Ukkistusmiðimir
að störfum. Þeir
smiða rúmlega
1200 kistur á ári,
auk þess að sjá
um viðhald á
staðnum.
Kistan:
BOLSTRAÐAR
SPðNA-
Dl ATIID”
iLV I
„Framleiðslanerþetta 1200kistur — Urhverjuerukistumar? fyrstur fyrir svörum. „Eg er búinn
á ári,” sögðu smiðirnir á trésmiöa- „Kassinn er gerður úr spóna- aö vinna við þetta í fjögur ár. Þetta
verkstæðinu, aðspurðir um afkasta- piötum og utan um hann em settir er vitaskuld eins og hvert annað
getu. „En fyrir utan að smíöa kistur listar. Síðan er sett yfirkista (skúr) starf, dálítið einhæft þó. En það
smíðum við líka krossa og sjáum um ofan á kassann. Þá er kistan að skapar fjölbreytni að sjá um viðhald
vifiiald á staðnum.” Á trésmíðaverk- mestu tilbúin, utan að eftir er að hér á staðnum auk þess að smiöa
stæðinu starfa 4 smiðír, tveir málahanaogbólstra." kistumar.”
málarar, sem sjá um aö mála kist- _ Eru menn sérmenntaðir í „Eg byrjaði hér 1976,” sagði
urnar, og einn bólstrari. likkistusmiði? AndrésBjamason.
— Erukisturnarsérpantaöar? „Nei, nei, aftur á móti erum viö „Þetta er einhæft starf, það er
„Nei, yfirleitt ekki. Það kemur þó allir læröir smiðir. Það er næg ekki hægt að neita því. En þegar
fyrir að fólk panti sér kistur fyrir menntun.” maöur er farinn að eldast þá verður
andlátið. Við smíðum ákveðnar — Hverniglikarykkurstarfið? maður að láta sig hafa þaö,” bætti
stærðir,alltfrá70cmuppí2.10.” Guðmundur Kristleifsson varö Andrés viðogdæsti.
„Líkbrennslan er hreinlegt verk”
. .......
„Það er ekki algengt að fólk láti
brenna sig”. Einar B. Olafsson hefur
séð um brennsluofnana í Fossvogi
seinustu 5 ár. Þeir em 2 og vom
settir upp 1948.
„Það tekur 4 tíma aö hita ofninn
upp fyrir líkbrennslu. Sjálf
brennslan tekur rúman klukkutíma,
í mesta lagi þrjá. öfugt við það sem
margir halda þá er þetta mjög hrein-
legt verk.”
— Hvernig stóð á því að þú valdir
þetta starf?
„Eg var aö vinna héma á sínum
tíma ásamt öörum við að gera viö
ofnana. Um svipaö leyti losnaði þetta
starf og ég var ráðinn í það. Byrjunin
var erfiðust en þetta hefur vanist
Einar B. Ólafsson stendur hér við
annan likbrennsluofninn. „Lik-
brennslan er mjög hreinlegt verk,
öfugt við það sem margir halda."
ágætlega. Þetta er ákaflega hrein-
legt starf og ég kann mjög vel við
mig hér,” sagði Einar.
Svona er umhorfs inni i lik-
brennsluofninum.