Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Qupperneq 9
DV. FIMMTUDAGUR 27. JUNI1985.
Útlönd
9
Utlönd
Bretland:
Atlaga
gegnlRA
—16 manns verið handteknir í
tengslum við fyrirhugaða
sprengiherferð á ferðamannastöðum
Lögregla í Bretlandi hefur hand-
tekiö fjóra menn til viðbótar grunaða
um þátttöku í áætlun Irska lýðveldis-
hersins (IRA) að hefja sprengiherferð
á vinsælum ferðamannastöðum á
austurströnd Bretlands.
Þá hefur lögregla alls handtekið 16
manns í tengslum við hina fyrirhuguöu
sprengiherferð. Lögregla leitaði að
tímasprengjum í hótelum í 12 bæjum
viö sjávarsíöuna en þó er ekki búist við
að IRA hafi plantað neinum sprengjum
enn. Gert er ráð fyrir að ætlunin hafi
verið að hefja sprengiherferðina í júli.
Lögregluaðgerðimar hófust á
laugardag með árás á íbúöabyggingu í
Glasgow. Þar segist lögregla hafa
fundið lista yfir skotmörk. Daginn eftir
fannst sprengja í hóteli nálægt
Buckingham Palace.
1 handtökum undanfarinna daga
telur lögregla að hún hafi náð í skæru-
liða IRA sem tóku þátt í sprengingunni
í Brighton, þar sem reynt var að ráða
Margaret Thatcher af dögum í október
ífyrra.
Lögregla heldur einnig aö hún hafi
náö að brjóta upp hóp sem stóð aö
sprengingu i Harrods stórversluninni í
London í desember 1983. Sex manns
dóu í þeirri sprengingu og 94 særðust.
Myong-dong?
Myong-dong hverfið í miðborg
Seoul, höfuðborgar Suður-Kóreu, er
þekktast fyrir glæsilegar verslanir og
ilmandi veitingastaði. Myong-dong er
á sama hátt og Ginza hverfið í Tokýo
sá borgarhluti sem ferðamenn sækja
hvað helst til og eru mest áberandi.
Eitt er það þó sem ruglar margan
feröamanninn á ferð um Myong-dong
hverfið. Borgarhlutinn á sér margar
útgáfur í framburði þeirra Kóreu-
manna og þar af leiðandi mismunandi
stafsetningu líka. Á myndinni kemur
þetta hvergi betur í ljós, glæsihverfið í
mörgum stafsetningar- og fram-
burðarútgáfum. öll segja skiltin það
sama, hér er Myong-dong hverfið.
m úom Ihowng
MPVHMA nON8 BHOPPINQ CENTEP
10 farast í
Suður-Afríku
Tíu manns fórust í ofbeldi í Suður-
Afríku í gær. Aukning á ofbeldinu þar í
landi kom skyndilega, eftir nokkurt hlé
á fréttum af bardögum.
Lögregla sagði að átta hefðu farist
og sjö særst alvarlega í röð sjö
sprengjuárása nálægt Jóhannesar-
borg. Lögregla sagöi að hægri hönd
vantaði á sex fórnarlambanna sem
gæfi til kynna að þau hefðu látist á
meðan þau voru að fikta viö
sprengjurnar.
Flestar sprengjuárásirnar voru
gerðar rétt eftir miðnætti. Lögregla
segist vera að rannsaka þann mögu-
leika að samhæfð hafi verið sprengju-
herferö gegn opinberum byggingum og
svörtum lögreglumönnum sem margir
svertingjar sjá sem samstarfsmenn
hinnar hvítu minnihlutastjómar.
Lögregla sagði að hinir tveir sem
hefðu farist hefðu verið skomir niður í
Port Alfred bænum þar sem óeirðir
hafa verið undanfarið.
Ofbeldi magnaðist skyndilega í
Suður-Afriku i gær.
adid;r,,
SPARTA
LAUGAVEGI49 SÍMI23610 SÍM112024
Fyrir sumarleyfið. Glæsilegt gallaúrval.
Henson Le Bon bómullargallar,
gulir og bleikir,
nr. 32 - 34 - 36- 38, kr. 1.998.
Hummel glansgallar I mildum past-
ellitum,
nr. 38-46, kr. 2.853.
H20 gallar, 100% bómull, I frábær-
um litasamsetningum,
nr. XS-XL, frá kr. 2.385.
Henson glanshettugallar,
nr. 22 — 36, margir litir,
kr. 2.747 - 2.999.
, Markmannstreyjur,
(markmannsbuxur,
i stuttar og síðar,
I markmannshanskar, öll númer.
VISA
Opið laugardaga.
Póstsendum.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
Laugavegi 49, sími 23610.
Don Cano glansgallar,
nr.6-8, kr. 3.315,
nr. 10-12, kr. 3.520,
Inr. XS-XL, kr. 3.720.
Nýtt, nýtt,
Don Cano bómullarhettugallar,
nr. 6-8, kr. 2.112,
nr. 10-12, kr. 2.412,
nr. XS-XL, kr. 2.822.
þessir gallar eru með upphleyptu
prentl.
Adidas Mississippi, 3 litir,
(franskur).
nr. 102-156, kr. 1.523,
nr. 162-192, kr. 1.792.
Adidas New York,
nr. 34 — 52, dökkblár, og Ijósblár,
kr. 3.734.
Adidas Wembley (franskur),
j nr. 126-156, kr. 1.637,
j.nr. 162-192, kr. 1.907.
i ,