Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1985, Page 36
36 DV. FIMMTUDAGUR 27. JUNI1985. Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið Pylsuveisla í porti slökkvistöðvarinnar Slökkviliðsmenn í Reykjavík efndu til mikillar pylsuveislu í porti slökkvi- stöövarinnar síðastliöið mánudags- kvöld. Hátt á annað hundrað manns tók þátt í gleðskapnum þegar mest var og var stemmingin eins og best veröurákosiö. Tilefni veislunnar var aö slökkvi- liðsmenn höfðu nýlokið við að smíða tvo sumarbústaði fyrir Starfsmanna- félag Reykjavíkurborgar. Þeir unnu viö smíöina í frístundum í vetur og ætla að nota ágóðann til að f jármagna samnorrænt brunavarðamót sem haidið verður í Reykjavík sumarið 1988. Þótti við hæfi að slá upp veislu áöur en bústaðirnir yrðu fluttir upp á Úlfljótsvatni þar sem þeim verður komið fyrir í landi borgarstarfs- manna. Sveinn ljósmyndari staldraði við í veislunni í góðviðrinu á mánudaginn var og tók þá meðfylg jandi myndir. Magnús Th. Magnússon, brunavörður, kokkur og sundgarpur, stjórnaði pyslumatreiðslunni eins og hershöfðingi. Þeir segja að pyslurnar brenni aldrei hjá Magnúsi. ii;SÍ! I . i ■ Sumarbústaðirnir tveir sem slökkviliðsmenn hafa unnið við að smiða i vetur — eldtraustir bústaðir segja þeir i slökkviliðinu. Vandamál með vangadansinn Chris Greener og Samantha Fox hafa líklega átt í erfiðleikum meö aö dansa vangadansinn góða þegar þau hittust á diskóteki í London fyrir skömmu. Hann er nefnilega 2,35 metrar á hæð og jafnframt hæsti maður í Englandi en hún er 1,45 metrar á hæð, líklega svolítið meira á pinnahælum. Þaö fylgir sögunni að það hafi ekki komið að sök þó dansinn hafi ekki gengið sem best hjá þeim því þau hittust bara af tilviljun og voru að spjalla saman eitt augnablik. Pylsusólgnir slökkviliðsmenn og fjölskyldur þeirra raða sér upp við langborðið i porti slökkvistöðvarinnar i Öskjuhiið. Mörg þúsund pylsum var sporðrennt þetta kvöld. Vel gekk að ráða niðurlögum svengdarinnar þetta kvöld og slökkva þorsta þeirra sem tóku þátt í veisl- unni. Hér gantast menn við langborðið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.