Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Side 8
8
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
Útgafufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaðurog útgáfustjóri: SVEjNN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdarstjóriogútgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÓSSON
Auglýsingasjórar: PALLSTEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn: SÍÐUMÓLA12-14, SlMI 686611
Auglýsingar: SIÐUMULA33, SlMI: 27022
Afgreiðsía.áskriftir.smáauglýsingarogskrifstofa: ÞVERHOLT111 ,SlMI: 27022
Sími ritstjórnar: 686611
Setning.umbrot.mynda- og plötugerð: HILMIR HF., SlÐUMULA 12
Prentun: ÁRVAKU R H F. - Askriftarverð á mánuði 400 kr.
Verð i lausasölu virka daga 40 kr. - Helgarblað 45 kr.
„Markviss nýsköpun "
Julius Nyerere, forseti Tanzaníu, var ekki dæmigerð-
ur leiðtogi í þriðja heiminum. Hann safnaði ekki auði
handa sjálfum sér. Hann lét með góðu af völdum í síð-
asta mánuði eftir 30 ára einræði. Að vísu valdi hann
eftirmanninn sjálfur.
Nyerere hefur notið meiri virðingar út um heim en
flestir aðrir einræðisherrar. Þetta hefur meðal annars
leitt til, að land hans hefur fengið mun meiri þróunarað-
stoð en önnur lönd þriðja heimsins. Hún nemur hærri
fjárhæðum en öll útflutningsverðmæti landsins.
Norðurlönd hafa verið mikilvirkust í aðstoðinni við
Nyerere og Tanzaníu. Landið hefur komizt í landafræði-
kennslubækur Norðurlanda, þar á meðal íslands. Er þar
fjallað um Tanzaníu eins og nokkurs konar fyrirmyndar-
ríki. Stjórnarstefna Nyereres hefur líka geðjast þessum
skipulagssinnuðu ríkisdýrkunarþj óðum.
Nyerere er sósíalisti og hefur trúað á slagorð á borð
við markvissar aðgerðir, markvissa atvinnustefnu,
markvissa nýsköpun. Þessi stefna hans hefur gert
Tanzaníu að gjaldþrota ómaga á framfæri Norðurlanda.
Þegar Bretar gáfu Kenya og Tanzaníu frelsi fyrir
þremur áratugum, var Kenya mun hrjóstrugra og fátæk-
ara land en Tanzanía eða Tanganyika eins og landið hét
þá. Nú er Tanzanía hins vegar fátækara landið og er
raunar fátækara en það var fyrir 30 árum.
Það er hin markvissa nýsköpun Nyereres, sem hefur
brotið niður efnahag Tanzaníu. Að sovézkri fyrirmynd
kom hann upp samyrkjubúum í landbúnaði. Hann kom
upp miðstýrðu, opinberu verðlagskerfi. Þettá eru bara
tvö dæmi af mörgum.
Nyerere vissi ekki frekar en margir enn þann dag í
dag, að markið, sem stefnt er að, reynist jafnan að meira
eða minna leyti rangt. Enginn forseti eða hagfræðingur
getur spáð fram í tímann og séð, hvaða svokallaða mark-
vissa stefna er bezt. Aðstæður breytast stöðugt og gera
það fáránlegt, sem áður virtist sjálfsagt.
í Bandaríkjunum hefur komið í ljós, að tveir þriðju
hlutar nýrra atvinnutækifæra myndast í greinum, sem
ekki voru til fyrir fimm árum. Sá vitringur, sem hefði
fyrir fimm árum skipulagt markvissa atvinnustefnu þar
í landi, hefði reynzt vera falsspámaður. Hann hefði spillt
fyrir eðlilegri og sjálfvirkri þróun, því að forgangsverk-
efnin eða gæluverkefnin hefðu verið önnur en þau, sem
síðan urðu þjóðinni til framdráttar.
Fiskeldi þróaðist ekki á íslandi fyrir stuðning ríkis-
ins, heldur þrátt fyrir andstöðu embættismanna. Það er
fyrst nú, þegar greinin er viðurkennd, að farið er að lána
til hennar. Tölvuiðnaður hefur skotið rótum án mark-
vissra aðgerða hins opinbera. Hann hefur fyrst og fremst
verið látinn í friði. Núna fyrst á að fara að byrja að lána
til hans smávegis af peningum, þegar hann hefur öðlazt
viðurkenningu.
Nyerere var góðviljaður forseti. En hann gerði þau
mistök að halda, að hann og hans menn gætu skipulagt
framtíðina. Við skulum læra af mistökum hans og gjalda
varhug við kenningum stjórnmála- og embættismanna
um að koma á fót markvissum aðgerðum, markvissri
atvinnustefnu, markvissri nýsköpun.
Það, sem nú sýnist tilvalið að beztu manna yfirsýn,
kann ekki aðeins að reynast, heldur mun sennilega reyn-
ast úrelt að fimm árum liðnum.
Jónas Kristjánsson
GERSIGRAÐ-
UR,RÉTT
EINU SINNI
— Viltu skrifa nafniö þitt aftaná.
Hún sat bak viö boröiö, dálítið
þreytuleg á svipinn, beiö eftir því aö
ég krotaði nafn, nafnnúmer og heim-
ilisfang aftan á ávísunina, tók svo viö
henni aftur, stimplaði pappírana og
rétti þá yfir borðiö. Ég þakkaði fyrir
mig og fór út.
Þiö tókuö auövitað eftir því hvaö
var athugavert viö þessa frásögn,
ekki satt? Ég þurfti ekki aö sýna
nafnskírteini. Þar með gat konukind-
in handan viö afgreiösluboröið engan
veginn vitaö hvort ég heföi skrifaö
mitt rétta nafn aftan á ávísunina,
eða ekki. Reyndar gat hún ekki vitað
hvort ég hefði skrifað mitt rétta nafn
framan á ávisunina heldur því ég gaf
hana út sjálfur.
Enn einu sinni staönæmist ég við
bankakerfið. Ég hef veriö spurður aö
því hvers vegna ég sé svona hugfang-
inn af bönkum en ég hef eiginlega
ekkert gott svar viö því, nema svariö
sem hinn frægi bankaræningi Willie
Sutton gaf: „Þar eru peningarnir. ”
Eftir aö ég fullorðnaðist hef ég
verið á eilífum þeytingi um banka-
kerfið, ýmist til þess að leggja inn
peninga (sjaldan), taka út peninga
(oft), fá lán (oft) og borga lán (alltof
oft). En aldrei hef ég svo gengiö út úr
banka aö ég hafi ekki einhvern veg-
inn haft þaö á tilfinningunni aö ég
hafi verið plataöur.
Ég vil auðvitað gera kerfisbreyt-
ingu. Mér finnst bankakerfiö í sjálfu
sér nokkuð gott og þær breytingar
sem ég vildi gera eru einfaldar. Ég
vildi snúa vaxtakerfinu viö. Ég vildi
aö bankarnir borguöu okkur hærri
vexti fyrír peningana sem við lánum
þeim en þeir taka af okkur fyrir pen-
ingana sem þeir lána okkur. Einhver
kann aö benda á að meö þessu kæmu
bankarnir óhjákvæmilega út í tapi.
En ég hef mikið álit á íslenskum hag-
spekingum. Or því þeir geta samið
fjárlög íslenska ríkisins á ári hverju
ætti þeim ekki að verða skotaskuld
úr því að finna einhverjar reiknings-
aðferðir sem geröu þess háttar
bankakerfi gróöavænlegt.
Ólafur B. Guðnason
En þaö sem ég ekki þoli við banka-
kerfið er þessi eiginhandaráritana-
söfnun á ávísunum. Hafandi skrifaöi
undir ávísunina er mér ráögáta hverju
bankinn er bættari meö því aö fá undir-
skrift mina á bakhliöinni lika. Ég hef
staðiö í skæruhemaði viö starfsfólk
bankanna lengi út af þessu. Skærumar
eru hver annarri líkar og hér er lýsing á
dæmigerðri orrustu.
Ég geng, ákveðinn og rólegur, til
gjaldkerans, dreg upp þrjá reikn-
inga og rétti henni. Meðan hún legg-
ur saman upphæðirnar dreg ég ávís-
anaheftið upp og byrja aö skrifa.
— Þetta veröa sexþúsundsjöhundruð
og áttatíuogfimmogáttatíu, segir hún,
greinilega hissa á mér aö koma með
svoddan smáreikninga þar inn fyrir
dyr.
Ég fylli ávísunina samviskusam-
lega út, spyr hvaöa mánaöardagur
sé og skrái dagsetninguna og skrifa
síðan nafnið mitt skilmerkilega und-
ir. Ég rétti henni ávísunina. Hún lit;
ur varla á hana, en ýtir henni til baka
og biður mig aö skrifa nafniö mitt
aftan á.
— Af hverju? Ég var aö skrifa
þessa ávísun, þú horföir á mig gera
þaö!
— Viltu skrifa aftan á ávísunina?
— Ef ég væri að falsa undirskrift-
ina myndi ég bara falsa hana aftur, á
bakhliöinni! Hvaða tilgangi þjónar
þetta?
— Ég get ekki tekið viö ávísuninni
nema þú skrifir aftan á hana.
— Má ég skrifa eitthvaö annað
nafn, bara til tilbreytingar? Eöa
kannski vísukom. Af hverju þarf
maður alltaf aö leggja fram nafn sitt
í tvíriti?
— Viltu vera svo vænn aö skrifa
nafnið þitt aftan á ávísunina svo ég
geti afgreitt næsta mann?
Ég gefst upp, skrifa nafnið mitt
aftan á. Konan tekur viö ávísuninni,
stimplar reikningana og réttir mér.
Ég bendi henni á aö hún hafi ekki
beðið mig um nafnskírteini og hafi ég
falsað tékkann sé hann jafnfalsaður
þó ég hafi skrifað aftan á hann. Hún
lítur þreytulega fram hjá mér á
næsta mann og spyr: Hvað var það?
Og ég geng út, gersigraður, rétt
einu sinni.
Svona hefur þetta gengiö, lengi.
En um daginn vildi svo til að ég fór
inn í banka til þess aö borga einhvem
reikning og haföi þá gleymt
ávisanaheftinu heima.
Eg panikeraði tæpa sekúndu eöa
þangaö til það rif jaöist upp fyrir mér
að ég hafði reiðufé í vasanum, aldrei
slíku vant.
Ég gekk til gjaldkera og lagði
reikningana á boröiö. Hún lagði
saman og sagöi: — Þetta veröa tvöþús-
undáttatíuogsjö.
Eg dró fram budduna og taldi upp
úr henni þessa upphæð og lagði á
boröið. Um leið og konan lagöi hönd-
ina ofan á seölana og klinkið, stöðv-
aöiéghana og spurði:
— Viltu ekki aö ég skrifi aftan á
seðlana?
Hún leit upp og bar kennsl á mig.
— Nei, góöi. Þar sem Jóhannes
hefur skrifað framaná þarf ekki
þína áritun aftaná.
Ég gekk út, gersigraður, rétt einu
sinni.