Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1985, Qupperneq 12
J2
DV. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER1985.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á Hverfis-
götu 70A, þingl. eign Ingibjargar Ingvarsdóttur, fer fram eftir kröfu
Baldurs Guðlaugssonar hrl. á eigninni sjálfri þriöjudaginn 24.
september 1985 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 10. og 13. tbl. þess
1985 á hluta I Hraunbæ 152, þingl. eign Kristjönu Valgeirsdóttur, fer
fram eftir kröfu Guðjóns Á. Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðju-
daginn24. september 1985 kl. 15.45.
Borgarfógetaembættiö i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
annaö og síöasta á hluta í Stelkshólum 2, þingl. eign Gunnars Sigurjóns
Hrólfssonar og Sandrine Jansz, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í
Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. september 1985 kl. 14.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og slöasta á hluta i Krummahólum 81, þingl. eign Ingimundar
Magnússonar og Rósu G. Svavarsdóttur, fer fram eftir kröfu Ásgeirs
Thoroddsen hdl. og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni sjálfri þriðju-
daginn 24. september 1985 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á hluta í
Dúfnahólum 2, þingl. eign Gunnlaugs Sigurmundssonar, fer fram eftir
kröfu Veödeildar Landsbankans og Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eign-
inni sjálfri þriöjudaginn 24. september 1985 kl. 13.45.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta í
Fýlshólum 5, þingl. eign Ingva Theodórs Agnarssonar, fer fram eftir
kröfu Tryggingastofnunar ríkisins og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á
eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. september 1985 kl. 15.00.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaös 1985 á hluta í
Klapparstíg 17, þingl. eign Rafns Reynis Bjarnasonar, fer fram eftir
kröfu Þorvalds Lúðvíkssonar hrl. og Skúla J. Pálmasonar hrl. á eigninni
sjálfri þriöjudaginn 24. september 1985 kl. 10.45.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og slöasta á hluta í Valshólum 6, þingl. eign Guömundar Birgis-
sonar og Grétu Vigfúsdóttur, fer fram eftir kröfu lönaöarbanka Islands
hf., Landsbanka islands, Gjaldheimtunnar í Reykjavík og Guðjóns Á.
Jónssonar hdl. á eigninni sjálfri þriöjudaginn 24. september 1985 kl.
16.30.
Borgarfógetaembættið I Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53., 60. og 62. tbl. Lögbirtingablaðs 1985 á Hverfis-
götu 82, þingl. eign Jóns Guövarðssonar, fer fram eftir kröfu lönaöar-
banka Islands hf. og Ara isberg hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24.
september 1985 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið i Reykjavík.
Nauðungaruppboð
annaö og slöasta á hluta í Hverfisgötu 82, þingl. eign Jóns Guövarös-
sonar, fer fram eftir kröfu Þorvarðs Sæmundssonar hdl. og Landsbanka
Islands á eigninni sjálfri þriðjudaginn 24. september 1985 kl. 11.00.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 101. og 109. tbl. Lögbirtingablaðs 1984 og 3. tbl. þess
1985 á hluta f Laufásvegi 19, götuhæð, þingl. eign Matthiasar Einars-
sonar, Ingibjargar, Matthíasar og Ragnhildar Matthíasarbarna, fer fram
eftir kröfu Kristjáns Stefánssonar hdl., Þorvalds Lúövíkssonar hrl., Jóns
Þóroddssonar hdl., Sigurðar I. Halldórssonar hdl., Ólafs Thoroddsen
hdl., Róberts Árna Hreiðarssonar hdl., Gísla Baldurs Garöarssonar hdl.
og Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri miövikudaginn 25.
september 1985 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Veitingasalur Hótel Kea
Barokk
- matur
Aukin samkeppni frá nýjum
vínveitinga-matstofum hefur ekki
hleypt nýjum krafti í veitingasalinn
á annarri hæö Hótel Kea á Akureyri.
Hann hefur heldur daprazt síöan í
fyrra, einkum matreiöslan. Það er
eins og ráðamenn staðarins hafi end-
anlega gefizt upp á aö fá heimamenn
í mat og reki staðinn einkum fyrir
þann slæöing hótelgesta, sem ekki
nennir út fyrir dyr.
Beðið eftir
nýja salnum
Ytri umbúnaður borðhalds er
svipaður og verið hefur. Þetta er
dæmigerður gamaldags hótelsalur
án sérstakra, aðlaðandi einkenna.
Hann hefur líka slitnaö meira en svo,
að hægt sé að tala um þreytulegan
sjarma. Haldiö hefur verið áfram að
staga í borðdúkana. Hinir fáu gestir
sitja eins og krækiber í 120 sæta
ginnungagapi.
Þetta stafar sjálfsagt af því, að
von er á nýjum matsal á fyrstu
hæðinni. Hann er hluti af alhliða
endurnýjun hótelsins, sem satt að
segja er ekki seinna vænna. Vonandi
tekst nýi salurinn eins vel og nýju
herbergin, sem eru sérstaklega
indæl. Ef svo reynist, mega nýju
staðimir á Akureyri fara að vara sig
ágamla,góöa Kea.
Þjónustan var í sama, góða laginu
og lengi hefur verið. Til dæmis fá
gestir sjálfkrafa vatnskönnu á
borðið. Vínlistinn er eins frámuna-
lega lélegur og hann hefur alltaf
verið. Einkum er hvítvínslistinn
átakanlegur. Það kann að hafa verið
í lagi í gamla daga, þegar ekki var
boðið upp á fisk á Akureyri. En nú er
fullt af fiski á matseðlinum og þá
þarf stundum á hvítvíni aö halda.
Sjálf matreiðslan fylgir ná-
kvæmlega hinum hefðbundna
barokk-stíl, sem ekki hefur enn lagt
upp laupana hér á landi. Til dæmis
kemur maturinn fram á bökkum og
þjónninn færir hann upp á diska. Með
fylgja miklar sósukönnur með
margra sentílítra innihaldi af
Bearnaise-, Charon-, Andalouse- og
Madeirasósum. Meðlæti er töluvert
staðlaö, mikið að magni. Dósahnífur
er vinsælt verkfæri í eldhúsi.
Hið eina, sem hafði breytzttil
batnaðar frá í fyrra, er, að hver
gestur fékk sinn disk af hrásalati.
Það er raunar hinn eini þáttur
nútímamatreiðslu, sem hefur unnið
sér svo varanlegan þegnrétt hér á
landi, að jafnvel Hótel Kea er með á
nótunum. Hrásalatiö var gott í bæði
skiptin, sem það var prófað. I fyrra
sinnið fól það í sér ísberg, tómata,
hnetur og vínber meö rjómasósu í
eins konar Waldorf-stíl. I hið síðara
haföi það að geyma epli, vínber,
rauða papriku og blaðsalat, ekki í
neinum vökva eða sósu.
I fyrravetur vék um tíma langur
matseðill fyrir tveimur stuttum,
öörum á hádegi og hinum aö kvöldi. I
sumar var aftur kominn langur seðill
í hefðbundnum stíl, allt of langur
fyrir aðra staði en þá, sem byggja
matreiðsluna á dósahníf, frystikistu
og örbylgjuofni.
Daprar súpur
I annað skiptið voru bornar fram
sömu, vondu brauðkollurnar og voru
á morgunveröar-hlaðborðinu. I hitt
skiptið voru brauðkollurnar annarr-
ar og betri ættar. I kræklingasúpunni
var dósakræklingur og laukur. Hún
var vel heit og rjómuð, en lítt spenn-
andi. Prinsessusúpa var spergilsúpa
meö skinkubitum, hveitileg og frem-
ur fráhrindandi.
Þjónninn viöurkenndi í virðingar-
verðum heiðarleika, að fiskréttirnir
væru úr frysti. Við prófuðum þó gegn
betri vitund pönnusteiktan silung
með Andalouse-sósu.. Sem frystur
var hann frambærilegur. Sósan var
tómat-rjómasósa. Sérkennilegt var,
að með fylgdu bæði hvítar kartöflur
og bökuð kartafla. Ef til vill var
vélmenni í eldhúsinu, sem setti
bakaða kartöflu á hvern disk.
Pönnusteiktur smokkfiskur með
papriku og lauk var ágætur matur.
Smokkfiskhringirnir lágu á beði
lauks og papriku, sem var gegnsósa
af smjöri. Það hæfði í þessu tilviki.
Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og
blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en
krónupeningarnir tákna verðlagið.
Jónas Kristjánsson
skrifar tím
veitingahús
Með fylgdi ristað brauö og smjör.
Þetta var sannkölluö hitaeininga-
rispa.
Mikið steikt
og saltað
Með kjötréttum var staölaö
meölæti. Nautakjöti fylgdi bökuð
kartafla og brokkál, sem virtist
gífurlega vinsælt í eldhúsum
akureyrskra veitingastaða. Lamba-
kjöti fylgdi þurr spergill, blómkál og
stappa. Allt kjöt var mikið saltaö og í
sumum tilvikum ofsalega saltað.
Það var lika meira steikt en um var
beðið.
Tumbauti var frekar þurr, mikið
pipraður og ekki góður. Rauðvínið
hafði ekki verið sparað í sósuna, sem
hét Beamaise. Chateaubriand var
betra, þótt ofsaltað væri. Sama sósan
hét að þessu sinni Choron. Hún var á-
gæt.
Þjónninn fór faglega að eld-
steikingu piparsteikur, aö ööru leyti
en því, aö hún varð miölungi steikt,
en ekki lítiö steikt. Ef þið viljið geta
upp á, hvað fylgdi henni, þá hafið þiö
rétt fyrir ykkur. Þaö var bökuð
kartafla. Einnig sveppir, vínber,
maís og rauð papríka, svo og góð,
rjómuð pipar- og brandísósa.
Pönnusteikt lambabuff með
Madeira-sósu var rautt, en þurrt,
hreystilega saltað. Köld nautatunga
með Waldorf-salati var lítiifjörleg,
þurr tunga með blöndu epla, ísbergs,
blaðsalats og rauðrar papriku, sem
samtals gekk undir nafninu Waldorf
áHótelKea.
Barokk-stíllinn lýsir sér vel í
hinum fínu nöfnum á sósum og
meðlæti, Andalouise, Bearnaise,
Choron, Madeira, Waldorf. Þaö er
eins og maður sé kominn til
millistríðsáranna.
Heit eplakaka með jarðar-
berjum og þeyttum rjóma var fyrir-
taks matur. Konfekt var borið fram
með góðu kaffi.
Miðjuverð þriggja rétta máltíðar
með kaffi og hálfri flösku á mann af
frambærilegu víni var 1.260 krónur,
svipað og á hinum „fínu” stööum á
Akureyri.
Svo er bara að vona, að barokkiö í
matreiöslunni hverfi með gamla
matsalnum og að ný og betri mat-
reiðsla haldi innreið sína í nýjum og
notalegummatsal.
Jónas Kristjánsson.
350 Síldartríó og reyktur lax meÖ brauði og soðnum
kartöflum
295 InnbakaÖar rœkjur meÖAndalousesösu
320 Sex snig/ar íhvítlaukssmjöri
360 Grafinn laxmeÖsinnepssósu
325 Pönnusteiktur hörpuskelfiskur meÖristuÖu brauÖi
145 Gratineruð lauksúpa
120 Uxahalasúpa meÖ hleyptu eggi
150 Rcekjusúpa meökarrtbragði
135 Sérrílöguðsveppasúpa
445 Gufusoðnar rauÖspretturúllur með rækjum og
kræklingi í hvítvínssósu
395 Pönnusteikt rauðsprettuflök meÖ fersku grænmeti og
sítrónusmjöri
495 Grillsteiktur lax meÖ vínberjum og ristuÖum
humarhölum
510 Rjómasoðnar laxasneiðar meÖ Hollandaisesósu
485 Smjörsteiktur silungur meÖ hnetum og vínberjum
800 HvítlauksristaÖir humarhalar með ristuÖu brauði
675 Sjávargratín dagsins aÖ hætti kokksins
380 Fiskur dagsins aÖ hætti hússins
535 Ristaðar lambalundir með koníakssveppasðsu
515 Lambakótilettur meÖ Madeirasósu
855 Tumbauti meÖBéamaisesósu
815 Nautabryggjarsneið meÖ ristuÖum perlulauk, beikoni
og rauðvínssósu
875 Eldsteiktpiparsteik með rjómasósu
640 Heilsteikt svínalund meðpiparsósu
525 Pönnusteikt kjúklingabringa með GrandMamiersðsu
205 EplakakameðjarÖarberjum
205 ís með súkkulaðihjúpuðum vínberjum
205 ísfylltarpönnukökur meÖ bláberjasósu
210 Djúpsteiktur camembert ostur meÖ rifsberjahlaupi
215 Ávastasalat íappelsínulíkjör
350 Kalt hangikjöt meÖ kartöflum og grænum baunum
350 MarineruÖstld meÖlauk og rúgbrauði
235 íslenzkur kavtar meÖ eggjarauðu og ristuÖu brauði
155 SkyrmeÖrjóma