Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Síða 7
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985.
7
BUeytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Spamaðuríreynd:
24 MALTIÐIR A1800 KR
„Þið eruð alltaf að skrifa um sparn-
að á neytendasíðunni. Mér datt í hug
að segja ykkur frá hve vel slátrið
mitt kom út og hve það sparar mér
mikinn pening. Raunar er ég ekki
alveg viss um hvernig ég á að bók-
færa það.
Ég tók tíu slátur og með rúgmjöl-
inu og öðru sem til sláturgerðarinnar
þurfti var kostnaðurinn rétt rúmlega
1800 kr. Mér telst til að það sem ég
fékk út úr þessu, blóðmör, lifrar-
Metslátursala íhaust:
Meira en 40 þúsund seld
„Við seldum yfir 40 þúsund slátur
þannig að þetta var alveg metsala
hjá okkur,“ sagði Markús Sigurðs-
son sem sá um slátursöluna hjá Slát-
urfélagi Suðurlands í Iðufellinu nú í
haust. Slátursölunni lauk sl. laugar-
dag.
„Það var hringt alls staðar af
landinu, svo mikil var eftirspumin
eftir saumuðu vömbunum, en við
gátum ekki annað því. Fólk vildi fá
sent út um allt land,“ sagði Markús.
Margir komu úr nágrenni höfuð-
borgarinnar til þess að ná sér í þenn-
an holla og góða vetrarmat í Iðufell-
inu.
Algengt var að fólk keypti ö eða
10 slátur í kassa og sumir tóku allt
upp í 25 slátur. Viðskiptavinimir
voru á öllum aldri, ekki bara gamalt
fólk. Unga fólkið lét sig ekki vanta.
I stórmörkuðum mun enn vera á
boðstólum fryst slátur fyrir þá sem
misstu af sláturtíðinni sjálfri.
-A.Bj.
Upplýsingaseðill
til samanbunðar á heimiliskostnaði
Hvaö kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendiö okkur þennan svarseðil. Þannig eruö þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplVsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meöaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu staerð og yðar.
Nafn áskrifanda
Heimiii
Sími
Fjöldi heimilisfólks-----
Kostnaður í október 1985.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
pylsa, svið o.fl., dugi í 24 máltíðir
handa fjölskyldunni, sem erum við
hjónin og þrjú börn. Ef ég deili því
í kostnaðarupphæðina kemur hver
máltíð út að meðaltali á 75 kr. Þetta
er hollur og góður matur sem ég tel
þannig mjög ódýran. En hvernig á
ég að bókfæra þessi innkaup?
Með bestu kveðjum. H.“
Dreifa
kostnaðinum
Það verður að dreifa kostnaðinum
yfir lengra tímabil, t.d. á sex mánuði.
Þá mó reikna með að hafa þrjár
máltíðir á mánuði úr þessum haust-
mat. Þannig skaltu bókfæra 300 kr.
Það er mikil vinna sem liggur að baki því að taka tíu slátur og vinna
úr þeim mat til vetrarins fyrir fjölskyldu sína. En það borgar sig, það
er ekki nokkur vafi. Bréfritari fær máltíðina fyrir 75 kr.!
á hvern mánuð. Þannig kemur það
langréttast út.
Einnig er sjálfsagt að skipta kostn-
aðinum þegar stórinnkaup fara fram
á matvælum, eins og t.d. kjöti.
Reikna verður út svona nokkurn
veginn hve lengi má gera ráð fyrir
að kjötið dugi og dreifa kostnaðinum
á þá mánuði.
-A.Bj.
í
á topp
skíöavörum íiá--
A FISCHER DACHSTEIN
TYROLIA
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
W FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SIMI 91-84670
Utsölumarkaðuii
SKÚLAGÖTU 26 - SÍM111728
ULPUR, KR. 300,
ULPUR, KR. 495,
ULPUR, KR. 1490,
SKYRTUR, KR. 395,
GALLABUXUR, KR. 795,
SOKKAR, KR. 69,-
BLÚSSUR, KR. 595,
BARNABUXUR, KR. 395,
NÆRFÖT, KR. 65,
SAMFESTINGAR, KR. 795,
PEYSUR, KR. 395,
PEYSUR, KR. 595,
VINNUFATABÚÐIN