Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Side 9
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985. 9 Útlönd Tre- holt með nýja bók Frá Björgu Evu Erlendsdóttur, frétta- ritaraDVíOsló: Arne Treholt, sem situr nú í fangelsi í Noregi fyrir njósnir í þágu Sovétríkj- anna, er aö skrifa nýja bók. Aö þessu sinni skrifar hann bókina meö föður sínum, Thorstein Treholt. Bókin á að fjalla um verkalýöshreyfinguna í heimahéraði þeirra feðga. Arne og faðir hans vinna sameigin- lega að handriti bókarinnar í einn tíma í viku þegar heimsóknartímar eru í fangelsi Arnes. Þeir vonast til að bókin komi út á næsta ári. Arne Treholt skrifaði aðra bók sem nýbúið er að gefa út. Það er bókin Al- einn, sem er nú komin í íslenska búðar- glugga. Norsk stúlka smyglgóss frá Pakistan Frá Björgu Evu Erlendsdóttur, frétta- ritara DV í Osló: Norskir sendiráðsmenn í Pakistan hjálpuöu á mánudaginn 19 ára norskri stúlku að flýja land. Hún var vega- bréfslaus vegna þess að pakistönsk yfirvöld vildu halda henni i landinu vegna eiturlyfjamáls. Stúlkan ætlaði frá Pakistan til Noregs með 750 grömm af heróníni, sem hún þvemeitar að hafa vitað um í farangri sínum. Upphaflegt erindi stúlkunnar til Pakistan var að gifta sig. Hún og hinn verðandi eiginmaður hennar, pakist- anskur, fóru saman frá Noregi til Pakistans til að láta pússa sig saman. Eni Pakistan kom í ljós að hann var giftur fyrir. Þá giftist stúlkan bara bróöur hans í staðinn, eftir litla við- kynningu. Gagnrýnd hefur verið aðferðin sem notuð var til að smygla stúlkunni frá Pakistan. Hún var látin setjast í hjóla- stól, eins og hún væri lömuö, og fólk úr sendiráðinu með sendimannavegabréf keyrði hana beint framhjá vörðum á flugvellinum. Nú óttast menn aö þetta mál geti haft slæm áhrif á samstarf Norð- manna og Pakistana í eiturlyfjamál- um. Þó er mál manna í Noregi að rétt- lætanlegt hafi verið að smygla norsku stúlkunni úr landi vegna þess hvemig fangelsi eru í Pakistan. Þau em varla miklu betri en i Malaga. Stúlkan situr nú i gæsluvarðhaldi og trúlega verða fleiri handteknir vegna málsins. Leitahjálparfyrir pólitíska fanga Lech Walesa og neðanjarðarfor- ingjar „Einingar” hafa skorað á fólk að helga þessa viku aðgerðum til hjálpar pólitískum föngum í Pól- landi. I tilkynningu til blaða er Pólverj- um bent á að sækja tilteknar guðs- þjónustur, undirskrifa bænarskjöl og skjóta saman fé til handa pólitískum föngum vikuna sem byrjar 3. nóvember. Samkvæmt tölum þess opinbera eru um 360 pólitískir fangar í fangelsum í Póllandi eins og stendur. YELENA BONNER TIL VÍNAR í DAG Yelena Bonnerr mun að öllum líkind- um koma til Vínarborgar í dag, en hún hefur fengið leyfi til að ferðast til Vesturlanda til læknismeðferðar. Ekkert hefur veriö sagt opinberlega um hvenær hún muni fara frá Moskvu eða hvort hún mun yfirleitt koma til Vínar. En talsmaður Amnesty International, sem hyggst taka á móti Bonner í Vín, sagðist hafa það eftir heimildarmönnum í Moskvu og í lög- regluliði í Austurríki að hún myndi koma til - Vínar í beinu flugi frá Moskvu. Flugvélin sem Yelena Bonner á að vera í átti að lenda rétt fyrir kl. 11 í morgun. Ovíst er hvert andófskonan og eigin- kona Andreis Sakharov mun fara að lokum. En gert er ráð fyrir að hún muni dvelja eina nótt í Vín og fara svo til Mílano eða Israels. Hún hefur tvisvar áður farið til augnaðgerða á Italíu. Veistþú HVAÐ REYKELSI ER? Það rekur burt illa anda og færir frið og ró inn á heimilið. Muniðaðþað erí Gjafahúsinu sem þið fáið rétta reykelsið og það ódýrasta í bænum. Yfir 50 ilmtegundir, bæði stangir og toppar. Hjá okkur eruð þið alltaf velkomin I I X Sendum ipóstkröfu um land allt. Skólavörðustíg 8, sími 18525 Ókeypis Ijósastilling Eigendur Nissan, Datsun, Subaru, Trabant og Wartburg bíla fá ókeypis Ijósastillingu í umboðinu við Melavelli í Rauðagerði til nóvember. HB INGVAR HELGASON HF. Rnuðagerði, simi 33560. M /4USTURBAKKI HF Borgartúni 20 — Sími ÞETTA ERU FRABÆRIR GERVIGRAS-^^ SKOR FRA Skórnir eru topp gervigrasskór með sérstak- lega hönnuðum sóla fyrir gervigras og hart undirlag. f Litur: + grár/svartur Stœrðir: 5-12 ÚTSÖLUSTAÐIR Sportbúð Ómars Iþróttabúðin Borgartúni 20 t Boltamaðurinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.