Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Blaðsíða 9
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985.
9
Útlönd
Tre-
holt
með
nýja
bók
Frá Björgu Evu Erlendsdóttur, frétta-
ritaraDVíOsló:
Arne Treholt, sem situr nú í fangelsi
í Noregi fyrir njósnir í þágu Sovétríkj-
anna, er aö skrifa nýja bók. Aö þessu
sinni skrifar hann bókina meö föður
sínum, Thorstein Treholt. Bókin á að
fjalla um verkalýöshreyfinguna í
heimahéraði þeirra feðga.
Arne og faðir hans vinna sameigin-
lega að handriti bókarinnar í einn tíma
í viku þegar heimsóknartímar eru í
fangelsi Arnes. Þeir vonast til að bókin
komi út á næsta ári.
Arne Treholt skrifaði aðra bók sem
nýbúið er að gefa út. Það er bókin Al-
einn, sem er nú komin í íslenska búðar-
glugga.
Norsk stúlka
smyglgóss
frá Pakistan
Frá Björgu Evu Erlendsdóttur, frétta-
ritara DV í Osló:
Norskir sendiráðsmenn í Pakistan
hjálpuöu á mánudaginn 19 ára norskri
stúlku að flýja land. Hún var vega-
bréfslaus vegna þess að pakistönsk
yfirvöld vildu halda henni i landinu
vegna eiturlyfjamáls.
Stúlkan ætlaði frá Pakistan til
Noregs með 750 grömm af heróníni,
sem hún þvemeitar að hafa vitað um í
farangri sínum.
Upphaflegt erindi stúlkunnar til
Pakistan var að gifta sig. Hún og hinn
verðandi eiginmaður hennar, pakist-
anskur, fóru saman frá Noregi til
Pakistans til að láta pússa sig saman.
Eni Pakistan kom í ljós að hann var
giftur fyrir. Þá giftist stúlkan bara
bróöur hans í staðinn, eftir litla við-
kynningu.
Gagnrýnd hefur verið aðferðin sem
notuð var til að smygla stúlkunni frá
Pakistan. Hún var látin setjast í hjóla-
stól, eins og hún væri lömuö, og fólk úr
sendiráðinu með sendimannavegabréf
keyrði hana beint framhjá vörðum á
flugvellinum.
Nú óttast menn aö þetta mál geti
haft slæm áhrif á samstarf Norð-
manna og Pakistana í eiturlyfjamál-
um. Þó er mál manna í Noregi að rétt-
lætanlegt hafi verið að smygla norsku
stúlkunni úr landi vegna þess hvemig
fangelsi eru í Pakistan. Þau em varla
miklu betri en i Malaga.
Stúlkan situr nú i gæsluvarðhaldi og
trúlega verða fleiri handteknir vegna
málsins.
Leitahjálparfyrir
pólitíska fanga
Lech Walesa og neðanjarðarfor-
ingjar „Einingar” hafa skorað á fólk
að helga þessa viku aðgerðum til
hjálpar pólitískum föngum í Pól-
landi.
I tilkynningu til blaða er Pólverj-
um bent á að sækja tilteknar guðs-
þjónustur, undirskrifa bænarskjöl og
skjóta saman fé til handa pólitískum
föngum vikuna sem byrjar 3.
nóvember.
Samkvæmt tölum þess opinbera
eru um 360 pólitískir fangar í
fangelsum í Póllandi eins og stendur.
YELENA BONNER
TIL VÍNAR í DAG
Yelena Bonnerr mun að öllum líkind-
um koma til Vínarborgar í dag, en hún
hefur fengið leyfi til að ferðast til
Vesturlanda til læknismeðferðar.
Ekkert hefur veriö sagt opinberlega
um hvenær hún muni fara frá Moskvu
eða hvort hún mun yfirleitt koma til
Vínar. En talsmaður Amnesty
International, sem hyggst taka á móti
Bonner í Vín, sagðist hafa það eftir
heimildarmönnum í Moskvu og í lög-
regluliði í Austurríki að hún myndi
koma til - Vínar í beinu flugi frá
Moskvu.
Flugvélin sem Yelena Bonner á að
vera í átti að lenda rétt fyrir kl. 11 í
morgun.
Ovíst er hvert andófskonan og eigin-
kona Andreis Sakharov mun fara að
lokum. En gert er ráð fyrir að hún
muni dvelja eina nótt í Vín og fara svo
til Mílano eða Israels. Hún hefur
tvisvar áður farið til augnaðgerða á
Italíu.
Veistþú
HVAÐ REYKELSI ER?
Það rekur burt illa anda og færir frið og ró inn á heimilið.
Muniðaðþað erí
Gjafahúsinu
sem þið fáið rétta reykelsið og það ódýrasta í bænum.
Yfir 50 ilmtegundir, bæði stangir og toppar.
Hjá okkur eruð þið alltaf velkomin
I
I
X Sendum ipóstkröfu
um land allt.
Skólavörðustíg 8, sími 18525
Ókeypis Ijósastilling
Eigendur Nissan, Datsun, Subaru, Trabant
og Wartburg bíla fá ókeypis
Ijósastillingu í umboðinu við
Melavelli í
Rauðagerði til
nóvember.
HB INGVAR HELGASON HF.
Rnuðagerði, simi 33560.
M /4USTURBAKKI HF
Borgartúni 20 — Sími
ÞETTA ERU FRABÆRIR
GERVIGRAS-^^
SKOR FRA
Skórnir eru topp gervigrasskór með sérstak-
lega hönnuðum sóla fyrir gervigras og hart
undirlag.
f Litur:
+ grár/svartur
Stœrðir:
5-12
ÚTSÖLUSTAÐIR
Sportbúð
Ómars
Iþróttabúðin
Borgartúni 20
t Boltamaðurinn