Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Page 14
14 DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985. Menning Menning Menning Menning Lífshlaup Albjarts Siklingsburs Um ævisögu Jóhannesar S. Kjarval eftir Indriða G. Þorsteinsson Fyrir níu árum, þegar tilkynnt var aö Reykjavikurborg hefði ráöið Ind- riöa G. Þorsteinsson rithöfund til að skrifa ævisögu Jóhannesar S. Kjar- vals, urðu ýmsir, þ.á m. undirritað- ur, til að hreyfa mótbárum. Þótti mönnum sem því fé, sem Reykjavíkurborg virtist allt í einu hafa aflögu til þessa verkefnis, væri betur varið til skráningar verka Kjarvals og heimilda um þau, enda voru þá margir góðvinir listamanns- ins og heimildarmenn um list hans komnir til ára sin'na. Hugmyndin um heildarskráningu var svo sem ekki ný af nálinni þar eð Menntamálaráð hafði samþykkt tillögu þar að lútandi árið 1959, en aldrei hrint henni í framkvæmd. Ekki bættu úr skák ítrekaðar yfirlýsingar Indriða þess efnis að hann hygðist skrifa ævisögu „mannsins, ekki listamannsins”, en þeim fylgdu einatt lítt dulbúin skeyti til „fræðinga”. Sömu fræðingar töldu hins vegar að lif og list Kjarvals væri ein og órofa heild sem óráðlegt væri að hluta í sundur og kviðu þeirri skurðaðgerð sem rithöfundurinn hugöist gera á myndlistarmannin- um. Stoppað í götin Eins og alþjóð er kunnugt er rit- verk Indriða nú komiö á markað, 600 bls. í tveimur bindum, og höfundur er því „stórbrotnu viðfangsefni fá- tækari”, eins og segir í eftirmála. En hvað ber lesandinn úr býtum? Onóg og brotakennd heimildarsöfn- un höfundar, svo og of mikil og ógagnrýnin notkun hans á sömu heimildum, hlýtur að draga úr gildi bókarinnar sem „sögu manns” en vanþekking Indriða á myndlistum kemur óneitanlega niður á „sögu myndlistarmannsins” — þótt hann reyni að stoppa í götin með tilvitnun- umíBjöm Th. I stað þess að draga nauðsynlegar áiyktanir af þeim heimildum sem hann notar lætur höfundurinn sér oft- ast nægja að birta þær næstum óstyttar og ítreka efni þeirra síðan með nokkrum oröum frá eigin brjósti. Að því loknu vindur hann sér yfir í næstu blaðagrein, bréf eða vísu. Viröist þá einu gilda hvort um er að ræða þessar venjulegu lofrollur aödáenda Kjarvals, munnmæli, rugl úr Speglinum eða skynsamlega um- fjöllun kunnáttumanna á borð við Jó- hann Briem í Helgafelli 1942 — öllu er þessu efni gert jafnhátt undir höfði. Goðsögnin Hér er því fyrst og fremst um aö ræða „ævisögu goðsagnar”: Kjarval í augum samtímamanna sinna. En slíkar ævisögur þurfa einnig á áreið- anlegum og víðtækum heimildum að halda. Þótt gjaldgenga heimildaskrá sé ekki að finna í bókinni verður þess ekki vart að höfundur hafi rætt viö böm og barnaböm Kjarvals. Ekki virðist hann heldur hafa notað sér gífurlegt magn heimilda sem legið hafa í kössum að Kjarvalsstööum í meira en áratug, þ.á m. fjölda bréfa til Kjarvals og frá honum. I þessi níu ár, sem hann hefur haft til ráðstöfun- ar, virðist höfundur ekki hafa haft samband við heimildarmenn á borð við Ragnar í Smára, Kristján Jóns- son í Kiddabúð, Guðmund Sveinsson, sem sat fyrir er stórmyndin „Krítík” var máluö, Þorvald Guðmundsson, sem fylgdist náið með Kjarval í hart- nær 40 ár, Gunnar Hjaltason listmál- ara sem er hafsjór af fróðleik um málunartækni meistarans, svo ekki sé minnst á fjölda yngri myndlistar- manna sem áttu margháttuð sam- skiptiviðhann. Kjarval á eintali við mosann. lýsingar úr þeirri átt eru lítils virði. Þó má sennilega reiða sig á þaö að Kjarval hafi þótt sveskjugrautur með rjómablandi „algjört æði” (bls. 278,II). Ekki eru öll ártöl og myndatextar heldur í himnalagi. Vinnustofumynd- ir sínar sýndi Kjarval fyrst 1933, ekki 1934. Mynd af Kjarval, sem sögð er vera tekin við gamla Kennaraskól- ann (bls. 164—165, I), er samkvæmt mínum heimildum tekin að Laugar- vatni. Onnur ljósmynd í sömu syrpu er sögð tekin af Kjarval á yngri ár- um, en er í raun frá 1934, er listamað- urinn var 49 ára. Glöggir menn segja mér einnig að mynd, sem sögð er af Ragnari Ásgeirssyni ásamt Kjarval (bls. 24—25, n), sé af Ásgeir bróður hans. Tilgátur og nöfn En mest rennur manni til rifja Kjarval, ásamt fjölskyldu sinni eftir 1960. Kjarval um það leyti sem hann kynntist Tove. þeirri skoðun er enginn fótur. Seinna segir hann: „Áhrifin frá Turner vör- uðu enn hvað snerti allt að því sárs- aukafullt samband við náttúruna..” (bls. 147, I), en þá hafa þessi áhrif ekki verið skilgreind með sannfær- andi hætti. Skemmri skírn Annað mikilvægt tímabil, Frakk- landsdvölin árið 1928, fær sömuleiöis skemmri skírn í þessari bók, nema hvað impressjónismi er nefndur. Annars staöar eru myndir kallaðar „táknrænar” (bls. 196, I), en getum er ekki leitt að því hvað þær kunni að tákna. Við þennan lestur fær lesandinn á tilfinninguna að öll myndlist Kjar- vals hafi veriö sjálfvakin eða þá að hún hafi orðið til fyrir einhvern dul- arfullan samruna lands og lista- manns, symbíósis. Þótt höfundur segi margt skyn- samlegt um andlegan skyldleika Kjarvals og Einars Benediktssonar þá sakna ég nánari útlistana á sam- bandi hans við aðra listamenn, mál- ara, myndhöggvara og rithöfunda. Hann getur t.d. ekki um fund þeirra Kjarvals og Gísla Jónssonar frá Búr- fellskoti árið 1903 (?), er þeir flens- uðu báðir hval á Mjóafirði, en Gísli var sennilega fyrsti „alvörumálari” sem Kjaryal hitti. Reglulegt gilligogg Tengsl þeirra Kjarvais og Einars Jónssonar, tveggja mestu symból- ista okkar, eru ekki rakin að neinu, gagni. Hvernig var svo háttað sam- bandi þeirra Jóhanns Sigurjónssonar, Gunnars Gunnarssonar og Kjarvals í Danmörku árið 1912? Um þaö er höf- undur fámáll. Raunar er Gunnar ekki nefndur fyrr en löngu seinna í bókinni og þá í framhjáhlaupi. Þó hafði hann ýmis afskipti af Kjarval í Kaupmannahöfn og orti ljóð árið 1912, sem „gæti sem bezt verið end- urvarp af málverkum hins unga vin- ar hans”, svo notuð séu orð Bjöms Th. Bjömssonar í nýju litskyggnu- hefti frá Listasafni alþýðu. Hér hefur margt verið tíundað um vankanta á þessari ævisögu Kjar- vals og er þá ekki allt upp talið. En svo er frásagnargáfu höfundar fyrir að þakka að hún er sjaldan beinlinis leiðinleg. Þar sem fjallað er um æsku Kjarvals og uppvöxt, áður en mynd- listin kemur til sögunnar, verður úr fallega ljóðrænn texti sem er reglu- legt gilligogg. Enn er samt óskrifuð sú ævisaga sem þessi stórbrotni og mikilvirki listamaður á skilið. AI. Aðalsteinn Ingólfsson Varasamur vitnisburöur f I staðinn leggur höfundur talsvert upp úr vitnisburði ýmissa aukaper- sóna og viðhlæjenda í lífi Kjarvals, ónafngreindra bréfritara (sjá bls. 115—116, I), stúlkunnar sem seldi honum skótau eða tímabundinna ferðafélaga. Þessi vitnisburður er oftsinnis varasamur og sums staðar beinlínis rangur. Alfreð Guðmunds- son sat t.d. ekki einn með Kjarval og hélt í höndina á honum er hann gaf upp andann, heldur var fjöldi fólks við dánarbeö meistarans. Aðrar upp- flaustursleg umf jöllun um listsköpun Kjarvals. Oftast lætur höfundur sér nægja að birta ummæli misjafnlega vel upplýstra manna um einstakar myndir eða sýningar. Ef mikið ligg- ur við er vitnað í Bjöm Th. Bjömsson sem er víst eini listfræðingur lands- ins sem höfundur gjörir svo lítið aö taka nótís af („Listfræðingar voru engir komnir til starfa í landinu og em það varla enn...”, bls. 80, n). Sjálfur þykist höfundur ekki vilja hafa uppi miklar skoðanir á þróun í myndlist Kjarvals en er þó öðru hvoru að leggja fram tilgátur og nefna nöfn og stefnur án þess að fylgja þeim eftir. Turner er nefndur til sögunnar á réttum stöðum en svona frekar eins og til málamynda. Höfundur telur Ásgrím Jónsson hafa kynnt hinn enska meistara fyrir hin- um unga starfsbróöur sínum en fyrir Myndlist

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.