Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Side 18
18 DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985. íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Þrettán á sölulista Sunderland — McMenemy reiður eftir tapið á laugardag Frá Sigurbimi Aðalsteinssyni, fréttamanni DV á Englandi. Laurie McMenemy, fram- kvæmdastjóri Sunderland, er reið- ur þessa dagana og á mánudag setti hann 13 af leikmönnum liösins á sölulista. Þaö sem reiö bagga- muninn var slæmur leikur Sunder- land á heimavelii gegn Norwich á laugardag. Meðal þeirra sem stjór- inn vill selja eru nær allir þekkt- ustu leikmenn Sunderland eins og Barry Venison, Nick Pickering og Ian Wallace. Talið er aö mörg félög muni keppa um þá Venison og Pickering, sem hafa verið bestu leikmenn Sunderland mörg undanfarin ár. Stjóri Liverpool, Kenny Dalglish, hefur alltaf verið mikill aödáandi Venison og talið er Uklegt aö hann bjóöi í leikmanninn. Þaö er greinilegt að Laurie McMenemy ætlar sér að reyna aö byggja upp nýtt lið hjá Sunderland. Hann tók við liðinu í sumar eftir lit- ríkan feril hjá Southampton. En þó hann selji þessa 13 hefur hann enn níu leikmenn á samningi hjá Sunderland. -hsím. Laurie McMenemy, til vinstri, og Tom Cowie, formaður Snnder- land, kátir eftir að hafa gert samn- ing við Eric Gates, hinn kunna leik- mann, sem þeir fengu frá Ips'wich. Nú er öldin önnur. Kennsla í spjótkasti hjá Einari Helgina 9.—10. nóvember fer fram í íþróttamiðstöðinni í Laugar- dal leiðbeinandanámskeið í milli- vegalengdum og langhlaupum á vegum FRÍ. Kennarar verða Jón Diðriksson og Gunnar Páll Jóakimsson. Námskeiðið veitir A-stigs mönn- um B-stigs viðurkenningu í við- komandi greinum. Næstu helgi á eftir, dagana 16.— 17. nóvember, verður haldið í KR heimilinu námskeið i spjótkasti, einnig á vegum FRl. Kennari verður Einar Vilhjálmsson. Bæði námskeiðin hefjast kl. 10 á laugardegi og er þátttökugjald kr. 500 á hvort. Þátttökutilkynningar berist skrifstofu FRÍ í síma 91-83686 sem fyrst. Helgi Ragnarsson, þjálfari Stavanger IF, ásamt leikmönnum sínum. Sveinn Bragason beint fyrir aftan hann. Jakob Jónsson til vinstri, viö hliö Sveins. SIF LEIKUR BETUR EN ÖNNUR UÐ í NOREGI með Helga Ragnarsson sem þjálfara og Jakob Jónsson og Svein Bragason sem leikmenn „Tvær stærstu útflutningsgreinar tslands eru fiskur og handknattleiks- menn. 1 Stavanger er enginn áhugi á að flytja inn fisk en þar var not fyrir góð- an handknattieiksþjálfara. Þess vegna nældi Stavanger IF sér í Helga Ragnarsson. Það var í maí. Þegar þetta er skrifað í október leikur SIF „hand- knattleikur” betur en nokkurt annað lið hér í landi. Hver á heiöurinn af því? — Leikmenn, segir Helgi. En það er is- lendingurinn sem kennt hefur þeim að leika saman.” Þannig hefst grein í norska stór- blaöinu Aftenposten sl. laugardag, skrifuð af Arne Hole. Stavanger-liðið er efst í 1. deild í Noregi og Helgi er ekki eini Islendingurinn, sem kemur þar við sögu. Með liðinu leika tveir Is- lendingar, Jakob Jónsson (áöur KR og KA) og Sveinn Bragason (FH). En lítum betur á greinina í norska blað- inu. „Eftir síösta leiktímabil var SIF í fimmta sæti. Með marga góða leik- menn í liðinu en það gaf þó ekki ástæöu til hárra smella úr kampavínsflöskum. Nú gengur allt betur en hvers vegna, Helgi Ragnarsson? „Það er nauðsynlegt til að koma liði á toppinn aö hafa góöa aðstööu. Þaö höfum við og á vellinum er nauðsyn- legt að leika sem lið. Leikmenn leika hverfyrirannan.” Helgi er frá Hafnarfirði. Heldur sig við staðreyndir. Kann sitt fag og þarf ekki að skreyta mál sitt með lýsingar- orðum. Hann telur að norskir hand- knattleiksmenn geti lært mikið af Is- lendingum. Ekki minnst hvað hörku og vilja við kemur. Islendingar þurfa að hafa fyrir lífinu. Vinnudagurinn er tíu klukkustundir og síðan fara leikmenn beint á æfingu. Og þeir æfa átta sinn- um í viku! — Þá mundi það líka vera gott fyrir norskan handknattleik ef hann fengi inni í leikfimitímum skól- anna. A Islandi eru 10—15 mínútur í hverjum leikfimitíma nýttar fyrir handknattleik. Islenska landsliðið í handknattleik var of gott til þess að Helgi kæmist í það. Hins vegar lék hann unglinga- landsleik í knattspyrnu! — Hann hóf þjálfun 24 ára og á 10 ára ferli sem þjálfari hefur hann tvívegis komið liði upp milli deilda, auk þess hefur lið hans einn íslenskan meistaratitil og þátttöku í Evrópukeppni. Þá var hann um tima þjálfari færeyska landsliðs- ins. Hörku og aga hefur tslendingurinn þegar náð hér í Stavanger. Á æfingum í sumar fannst honum árangurinn léleg- ur. Þá sendi hann alla leikmennina heim! — Það hafði aldrei áður skeð hjá SIF. Nú lætur hann þá æfa 5—6 sinnum í viku. Og nú er SIF í efsta sæti í 1. deild og komiö í undanúrslit bikarsins. „Við leikum hraðan handknattleik. Látum knöttinn vinna fyrir okkur, — látum hann ganga hratt á milli. Þá höf- um við lagt áherslu á að styrkja vörn- ina. Sterk vörn gefur ýmsa möguleika og hraöaupphlaup er hættulegasta vopn handknattleiksins. Þau geta brotið mótherjana. Við skorum 5—6 mörk í leik úr hraðaupphlaupum,” segir Helgi. Leikkerfi? „Við erum með sex musmunandi af- brigði. Síðar munum við æfa fleiri, 12— 13. Og í hverju kerfi eru margir mögu- leikar. Það er ekki létt að stöðva okkur,” og Helgi er viss um að SIF verður í einu af þremur efstu sætunum í 1. deild. Telur að aðeins Fredensborg, Ski og Urædd geti veitt SIF keppni. „Toppliðin í Noregi eru góð en annars er deildin nokkuö ójöfn. Liðin hafa einn til tvo stjörnuleikmenn, — hinir flestir hálfgerðir statistar. Slík lið ná aldrei langt. Það veröa allir að vinna og það saman í liðunum,” og Helgi telur að norskir handknattleiks- menn hafi ekki jafngóða tækni og íslenskir. Þegar Helgi kom frá Islandi í vor voru tveir ísl. leikmenn meö honum, Jakob Jónsson og Sveinn Bragason. Þeir hafa án efa styrkt liö SIF en Helgi leggur það ekki í vana sinn að ræða um einstaka leikmenn. Hinn eini sem hann vill ræða um er markvörðurinn, Espen Karlsen. Hann er besti markvörður Noregs, þó aðeins tvítugur. hsím. Tony Knapp fær liðsstyrk: Brann keypti Erik Soler f rá Hamborg Tony Knapp, sem nú er orðinn þjálf- ari hjá Brann í Bergen, hefur fengið góðan liðsstyrk. Norski landsliðs- maðurinn Erik Soler, sem lék eitt ár með Hamburger SV í Þýskalandi, skrifaði nýlega undir samning við Brann. Með aðstoð tveggja fyrirtækja í Bergen, Investa og sparisjóðsins Vest, er talið að Brann hafi snarað út 100 þúsund vestur-þýskum mörkum fyrir leikmanninn eða 1,6 milljónum íslenskra. Hamborg fékk ekki annað tilboð í leikmanninn. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við Hamborg. Þegar Hamborg keypti hann frá Lille- ström fyrir rúmu ári kostaði hann þýska félagið tæpar þrjár milljónir króna. Hann lék örfáa leiki með Ham- borg í Bundeslígunni. Auk þess sem Brann snaraði út pen- ingum fyrir Soler mun félagið kosta nám hans i sálarfræði við háskólann í Bergen. Þá er Brann einnig að reyna að fá tvo aðrar leikmenn, Fritjof Wilborn, Stromsgodset.og Kjell Rune Pedersen, Kronborg, Bjarni Sigurðs- son verður áfram hjá Brann. hsim. Helgi - topptrener i «handknattleikur Fyrirsögnin á greininni um Helga í Aftenposten, sem við höfum minnkað um helming.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.