Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Síða 18
18
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985.
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
Þrettán á
sölulista
Sunderland
— McMenemy
reiður eftir tapið
á laugardag
Frá Sigurbimi Aðalsteinssyni,
fréttamanni DV á Englandi.
Laurie McMenemy, fram-
kvæmdastjóri Sunderland, er reið-
ur þessa dagana og á mánudag
setti hann 13 af leikmönnum liösins
á sölulista. Þaö sem reiö bagga-
muninn var slæmur leikur Sunder-
land á heimavelii gegn Norwich á
laugardag. Meðal þeirra sem stjór-
inn vill selja eru nær allir þekkt-
ustu leikmenn Sunderland eins og
Barry Venison, Nick Pickering og
Ian Wallace.
Talið er aö mörg félög muni
keppa um þá Venison og Pickering,
sem hafa verið bestu leikmenn
Sunderland mörg undanfarin ár.
Stjóri Liverpool, Kenny Dalglish,
hefur alltaf verið mikill aödáandi
Venison og talið er Uklegt aö hann
bjóöi í leikmanninn.
Þaö er greinilegt að Laurie
McMenemy ætlar sér að reyna aö
byggja upp nýtt lið hjá Sunderland.
Hann tók við liðinu í sumar eftir lit-
ríkan feril hjá Southampton. En þó
hann selji þessa 13 hefur hann enn
níu leikmenn á samningi hjá
Sunderland.
-hsím.
Laurie McMenemy, til vinstri,
og Tom Cowie, formaður Snnder-
land, kátir eftir að hafa gert samn-
ing við Eric Gates, hinn kunna leik-
mann, sem þeir fengu frá Ips'wich.
Nú er öldin önnur.
Kennsla í
spjótkasti
hjá Einari
Helgina 9.—10. nóvember fer
fram í íþróttamiðstöðinni í Laugar-
dal leiðbeinandanámskeið í milli-
vegalengdum og langhlaupum á
vegum FRÍ. Kennarar verða Jón
Diðriksson og Gunnar Páll
Jóakimsson.
Námskeiðið veitir A-stigs mönn-
um B-stigs viðurkenningu í við-
komandi greinum.
Næstu helgi á eftir, dagana 16.—
17. nóvember, verður haldið í KR
heimilinu námskeið i spjótkasti,
einnig á vegum FRl. Kennari
verður Einar Vilhjálmsson.
Bæði námskeiðin hefjast kl. 10 á
laugardegi og er þátttökugjald kr.
500 á hvort.
Þátttökutilkynningar berist
skrifstofu FRÍ í síma 91-83686 sem
fyrst.
Helgi Ragnarsson, þjálfari Stavanger IF, ásamt leikmönnum sínum. Sveinn Bragason beint fyrir aftan hann. Jakob Jónsson til vinstri, viö hliö Sveins.
SIF LEIKUR BETUR EN
ÖNNUR UÐ í NOREGI
með Helga Ragnarsson sem þjálfara og Jakob Jónsson og
Svein Bragason sem leikmenn
„Tvær stærstu útflutningsgreinar
tslands eru fiskur og handknattleiks-
menn. 1 Stavanger er enginn áhugi á að
flytja inn fisk en þar var not fyrir góð-
an handknattieiksþjálfara. Þess vegna
nældi Stavanger IF sér í Helga
Ragnarsson. Það var í maí. Þegar þetta
er skrifað í október leikur SIF „hand-
knattleikur” betur en nokkurt annað
lið hér í landi. Hver á heiöurinn af því?
— Leikmenn, segir Helgi. En það er is-
lendingurinn sem kennt hefur þeim að
leika saman.”
Þannig hefst grein í norska stór-
blaöinu Aftenposten sl. laugardag,
skrifuð af Arne Hole. Stavanger-liðið
er efst í 1. deild í Noregi og Helgi er
ekki eini Islendingurinn, sem kemur
þar við sögu. Með liðinu leika tveir Is-
lendingar, Jakob Jónsson (áöur KR og
KA) og Sveinn Bragason (FH). En
lítum betur á greinina í norska blað-
inu.
„Eftir síösta leiktímabil var SIF í
fimmta sæti. Með marga góða leik-
menn í liðinu en það gaf þó ekki ástæöu
til hárra smella úr kampavínsflöskum.
Nú gengur allt betur en hvers
vegna, Helgi Ragnarsson?
„Það er nauðsynlegt til að koma liði
á toppinn aö hafa góöa aðstööu. Þaö
höfum við og á vellinum er nauðsyn-
legt að leika sem lið. Leikmenn leika
hverfyrirannan.”
Helgi er frá Hafnarfirði. Heldur sig
við staðreyndir. Kann sitt fag og þarf
ekki að skreyta mál sitt með lýsingar-
orðum. Hann telur að norskir hand-
knattleiksmenn geti lært mikið af Is-
lendingum. Ekki minnst hvað hörku og
vilja við kemur. Islendingar þurfa að
hafa fyrir lífinu. Vinnudagurinn er tíu
klukkustundir og síðan fara leikmenn
beint á æfingu. Og þeir æfa átta sinn-
um í viku! — Þá mundi það líka vera
gott fyrir norskan handknattleik ef
hann fengi inni í leikfimitímum skól-
anna. A Islandi eru 10—15 mínútur í
hverjum leikfimitíma nýttar fyrir
handknattleik.
Islenska landsliðið í handknattleik
var of gott til þess að Helgi kæmist í
það. Hins vegar lék hann unglinga-
landsleik í knattspyrnu! — Hann hóf
þjálfun 24 ára og á 10 ára ferli sem
þjálfari hefur hann tvívegis komið liði
upp milli deilda, auk þess hefur lið
hans einn íslenskan meistaratitil og
þátttöku í Evrópukeppni. Þá var hann
um tima þjálfari færeyska landsliðs-
ins.
Hörku og aga hefur tslendingurinn
þegar náð hér í Stavanger. Á æfingum í
sumar fannst honum árangurinn léleg-
ur. Þá sendi hann alla leikmennina
heim! — Það hafði aldrei áður skeð hjá
SIF. Nú lætur hann þá æfa 5—6 sinnum
í viku. Og nú er SIF í efsta sæti í 1. deild
og komiö í undanúrslit bikarsins.
„Við leikum hraðan handknattleik.
Látum knöttinn vinna fyrir okkur, —
látum hann ganga hratt á milli. Þá höf-
um við lagt áherslu á að styrkja vörn-
ina. Sterk vörn gefur ýmsa möguleika
og hraöaupphlaup er hættulegasta
vopn handknattleiksins. Þau geta
brotið mótherjana. Við skorum 5—6
mörk í leik úr hraðaupphlaupum,”
segir Helgi.
Leikkerfi?
„Við erum með sex musmunandi af-
brigði. Síðar munum við æfa fleiri, 12—
13. Og í hverju kerfi eru margir mögu-
leikar. Það er ekki létt að stöðva
okkur,” og Helgi er viss um að SIF
verður í einu af þremur efstu sætunum
í 1. deild. Telur að aðeins Fredensborg,
Ski og Urædd geti veitt SIF keppni.
„Toppliðin í Noregi eru góð en
annars er deildin nokkuö ójöfn. Liðin
hafa einn til tvo stjörnuleikmenn, —
hinir flestir hálfgerðir statistar. Slík
lið ná aldrei langt. Það veröa allir að
vinna og það saman í liðunum,” og
Helgi telur að norskir handknattleiks-
menn hafi ekki jafngóða tækni og
íslenskir.
Þegar Helgi kom frá Islandi í vor
voru tveir ísl. leikmenn meö honum,
Jakob Jónsson og Sveinn Bragason.
Þeir hafa án efa styrkt liö SIF en Helgi
leggur það ekki í vana sinn að ræða um
einstaka leikmenn. Hinn eini sem hann
vill ræða um er markvörðurinn, Espen
Karlsen. Hann er besti markvörður
Noregs, þó aðeins tvítugur.
hsím.
Tony Knapp fær liðsstyrk:
Brann keypti Erik
Soler f rá Hamborg
Tony Knapp, sem nú er orðinn þjálf-
ari hjá Brann í Bergen, hefur fengið
góðan liðsstyrk. Norski landsliðs-
maðurinn Erik Soler, sem lék eitt ár
með Hamburger SV í Þýskalandi,
skrifaði nýlega undir samning við
Brann. Með aðstoð tveggja fyrirtækja í
Bergen, Investa og sparisjóðsins Vest,
er talið að Brann hafi snarað út 100
þúsund vestur-þýskum mörkum fyrir
leikmanninn eða 1,6 milljónum
íslenskra. Hamborg fékk ekki annað
tilboð í leikmanninn. Hann átti eitt ár
eftir af samningi sínum við Hamborg.
Þegar Hamborg keypti hann frá Lille-
ström fyrir rúmu ári kostaði hann
þýska félagið tæpar þrjár milljónir
króna. Hann lék örfáa leiki með Ham-
borg í Bundeslígunni.
Auk þess sem Brann snaraði út pen-
ingum fyrir Soler mun félagið kosta
nám hans i sálarfræði við háskólann í
Bergen. Þá er Brann einnig að reyna
að fá tvo aðrar leikmenn, Fritjof
Wilborn, Stromsgodset.og Kjell Rune
Pedersen, Kronborg, Bjarni Sigurðs-
son verður áfram hjá Brann.
hsim.
Helgi - topptrener i «handknattleikur
Fyrirsögnin á greininni um Helga í Aftenposten, sem við höfum minnkað um helming.