Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Síða 19
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985.
19
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Fyrsti stórleikur vetrarins í handknattleik:
Víkingur gegn bikar-
meisturum Spánverja
—29. Evrópuleikur Víkings í handknattleiknum gegn Teka í Laugardalshöll
kl. 20.30 á sunnudagskvöld
Guðmundur Guðmundsson, fyrir-
liði Víkings, 24 ára og hefur leikið 80
landsleiki.
„Ég bíö með eftirvæntingu eftir
leikjunum við Teka í Evrópukeppni
bikarhafa. Hef fylgst með Víkingi í
Evrópukeppninni úr fjarlægð síðustu
tvö árin og saknað þess að vera ekki
með. Nú er ég aftur með í baráttunni
og við stefnum að sigri hér heima.
Sigri sem vonandi nægir okkur til að
komast áfram í 3. umferð,” sagði Páll
Björgvinsson, hinn gamalreyndi lands-
liðskappi Víkinga sem á sunnudaginn
mun klæðast Víkingstreyjunni að nýju
í Evrópukeppni eftir þríggja ára hlé er
bikarmeistarar Víkings mæta spánska
liðinu Teka í Evrópukeppni bikarhafa.
Leikurinn við Teka er 29. Evrópu-
leikur Víkings en liðið er nú að hefja
þátttöku sína í Evrópumóti áttunda
árið í röð. Frábær árangur Víkinga
sem hafa átt firnasterku liði á að skipa
Karl Þráinsson hefur verið mesti
markaskorarinn i haust i Vikingslið-
inu. Tvitugur, fimm landsleikir.
síðustu ár. Á síðastliðnu ári komst Vík-
ingur í undanúrslit mótsins en mátti þá
þola tap fyrir Evrópumeisturunum
Barcelona og sannkölluðum heima-
dómurum frá Júgóslavíu. Það urðu
Víkingum því nokkur vonbrigði er þeir
fréttu að sömu dómarar ættu að dæma
leik þeirra ytra við Teka.
Myndbandssnældur
frá Sigga
Víkingum barst fyrir nokkru gott
vopn í baráttunni gegn Teka. Fyrrver-
andi leikmaður Víkings, Siguröur
Gunnarsson, sendi félaginu mynd-
bandssnældu með leik Teka liðsins og
haldgóðar upplýsingar. I spánska lið-
inu leika sex núverandi og fyrrverandi
landsliðsmenn en auk þess festi félagið
Kristján Sigmundsson átti frábœra
leiki i Evrópuleikjum Vikings á síð-
asta leiktímabili. 100 landsleikir.
Ætlum okkur
að sigra Teka
— segir Ámi Indriðason, þjálfari Víkings
„Við ætlum okkur sigur í Höllinni.
Ef við náum upp stemmningu í liðinu
og einbeitingu þá getum við sigrað
Teka. Við leikum til sigurs,” sagði
Árni Indriðason, þjálfari Víkings.
Hann hefur leikið marga eftirminni-
lega leiki með Víkingi og íslenska
landsliðinu — marga eftirminnilega
Evrópuleiki. Árni leiðir nú í fyrsta sinn
Víking í Evrópukeppni sem þjálfari.
„Við erum á tímamótum. Reyndir leik-
menn, sem hafa verið burðarásar í lið-
inu, hafa hætt og aðrir á tímamótum.
Því er ekki að neita aö ungir en efnileg-
ir leikmenn innan raða Víkings hafa
ekki náð að fylla í skörð þeirra. Það
Árni Indriðason, þjálfari Vikings og
fyrrum leikmaður Víkings. Fyrirliði
landsliðsins áður fyrr.
tekur tvö til þrjú ár,” sagði Árni
Indriðason.
„Teka er sterkt lið — ég hef fengið
upplýsingar um liðið og séð mynd-
bandsupptöku. En í Höllinni leikum við
fyrir framan dygga stuðningsmenn og
ég tel góða möguleika á sigri. Hins
vegar tel ég að Teka hafi meiri
möguleika á að komast í 3. umferð. En
mikil reynsla býr í liði Víkings þrátt
fyrir allt. Við eigum á aö skipa snjöll-
um leikmönnum — toppmönnum í
íslenskum handknattleik en skortir
skyttur. Með samstööu og góðum leik
getur allt gerst — það skemmtilega við
Evrópukeppni er að allt getur gerst. ’ ’
— Nú á Víkingur í harðri baráttu um
Islandsmeistaratitilinn. Áttir þú von á
jafngóöum árangri eftir að Víkingur
missti tvo helstu leikmenn sína?
„I haust, þegar ég mat stöðuna, taldi
ég aö Víkingur myndi veröa með 1 til 2
stigum minna en nú er aö Islandsmót-
inu hálfnuðu. Hvað þetta varðar þá er
ég ánægður. Hins vegar hefur liðið
ekki náð að sýna sitt rétta andlit — við
getum bætt talsvert við okkur og
ætlum okkur fyrsta sætið.” Það eru
gerðar miklar kröfur í Víkingi og það á
að gera kröfur. Þess vegna förum við
ávallt með því hugarfari að sigra —
hvort heldur í Islandsmótinu eða í
Evrópukeppni,” sagði Árni
Indriðason.
kaup á f jórum leikmönnum fyrir þetta
keppnistímabil þar á meðal
júgóslavneska landsliösmanninninum
Zlobodan Matinovic.
„Lið Teka leikur mjög skemmtileg-
an handknattleik og er óstöðvandi
þegar best lætur. Hins vegar hefur lið-
ið ekki náð sér fullkomlega á strik í
haust og hefur árangur liðsins valdið
vonbrigðum. Þannig var þjálfari liðs-
ins rekinn fyrir stuttu,” sagði Sigurður
Gunnarsson en spánska liðið virðist nú
vera að finna taktinn því að í fyrsta
leiknum, sem það lék eftir brottrekstur
þjálfarans, vánn liðið stóran sigur.
„Víkingur á góða möguleika á að
sigra Teka og komast áfram í aðra um-
ferð en til þess þarf Víkingur á stuðn-
ingi áhorfenda og toppleikjum að
halda,” sagði Sigurður.
Lið Víkings er nú blanda af ungum
og reyndari leikmönnum. Það varð lið-
inu nokkur missir að missa stórskyttur
sínar frá síðasta keppnistímabiii, þá
Þorberg Aöalsteinsson til Svíþjóðar og
Viggó Sigurðsson sem lagt hefur skóna
á hilluna eftir mjög litríkan feril. Þá
missti liöið einnig Ellert Vigfússon
markvörð til Vals en í staöinn er Páll
Björgvinsson í þeirra herbúðum. Með
þá Pál, Hilmar Sigurgíslason, Karl
Þráinsson, Steinar Birgisson og Guð-
mund Guðmundsson, auk hinna ungu
leikmanna Siggeirs Magnússonar og
Bjarka Sigurössonar, má þó ljóst vera
að liðiö er langt frá því að vera auð-
sigrað eins og lið Teka rekur sig von-
andi á á sunnudaginn.
-fros
föstudaginn 1. november.
Öll innlend og erlend
. /
Næturhólf — £
Símanúmeríð er óbreytt, 78855.
Verið velkomin, það er alltaf