Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Qupperneq 19
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985. 19 íþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Fyrsti stórleikur vetrarins í handknattleik: Víkingur gegn bikar- meisturum Spánverja —29. Evrópuleikur Víkings í handknattleiknum gegn Teka í Laugardalshöll kl. 20.30 á sunnudagskvöld Guðmundur Guðmundsson, fyrir- liði Víkings, 24 ára og hefur leikið 80 landsleiki. „Ég bíö með eftirvæntingu eftir leikjunum við Teka í Evrópukeppni bikarhafa. Hef fylgst með Víkingi í Evrópukeppninni úr fjarlægð síðustu tvö árin og saknað þess að vera ekki með. Nú er ég aftur með í baráttunni og við stefnum að sigri hér heima. Sigri sem vonandi nægir okkur til að komast áfram í 3. umferð,” sagði Páll Björgvinsson, hinn gamalreyndi lands- liðskappi Víkinga sem á sunnudaginn mun klæðast Víkingstreyjunni að nýju í Evrópukeppni eftir þríggja ára hlé er bikarmeistarar Víkings mæta spánska liðinu Teka í Evrópukeppni bikarhafa. Leikurinn við Teka er 29. Evrópu- leikur Víkings en liðið er nú að hefja þátttöku sína í Evrópumóti áttunda árið í röð. Frábær árangur Víkinga sem hafa átt firnasterku liði á að skipa Karl Þráinsson hefur verið mesti markaskorarinn i haust i Vikingslið- inu. Tvitugur, fimm landsleikir. síðustu ár. Á síðastliðnu ári komst Vík- ingur í undanúrslit mótsins en mátti þá þola tap fyrir Evrópumeisturunum Barcelona og sannkölluðum heima- dómurum frá Júgóslavíu. Það urðu Víkingum því nokkur vonbrigði er þeir fréttu að sömu dómarar ættu að dæma leik þeirra ytra við Teka. Myndbandssnældur frá Sigga Víkingum barst fyrir nokkru gott vopn í baráttunni gegn Teka. Fyrrver- andi leikmaður Víkings, Siguröur Gunnarsson, sendi félaginu mynd- bandssnældu með leik Teka liðsins og haldgóðar upplýsingar. I spánska lið- inu leika sex núverandi og fyrrverandi landsliðsmenn en auk þess festi félagið Kristján Sigmundsson átti frábœra leiki i Evrópuleikjum Vikings á síð- asta leiktímabili. 100 landsleikir. Ætlum okkur að sigra Teka — segir Ámi Indriðason, þjálfari Víkings „Við ætlum okkur sigur í Höllinni. Ef við náum upp stemmningu í liðinu og einbeitingu þá getum við sigrað Teka. Við leikum til sigurs,” sagði Árni Indriðason, þjálfari Víkings. Hann hefur leikið marga eftirminni- lega leiki með Víkingi og íslenska landsliðinu — marga eftirminnilega Evrópuleiki. Árni leiðir nú í fyrsta sinn Víking í Evrópukeppni sem þjálfari. „Við erum á tímamótum. Reyndir leik- menn, sem hafa verið burðarásar í lið- inu, hafa hætt og aðrir á tímamótum. Því er ekki að neita aö ungir en efnileg- ir leikmenn innan raða Víkings hafa ekki náð að fylla í skörð þeirra. Það Árni Indriðason, þjálfari Vikings og fyrrum leikmaður Víkings. Fyrirliði landsliðsins áður fyrr. tekur tvö til þrjú ár,” sagði Árni Indriðason. „Teka er sterkt lið — ég hef fengið upplýsingar um liðið og séð mynd- bandsupptöku. En í Höllinni leikum við fyrir framan dygga stuðningsmenn og ég tel góða möguleika á sigri. Hins vegar tel ég að Teka hafi meiri möguleika á að komast í 3. umferð. En mikil reynsla býr í liði Víkings þrátt fyrir allt. Við eigum á aö skipa snjöll- um leikmönnum — toppmönnum í íslenskum handknattleik en skortir skyttur. Með samstööu og góðum leik getur allt gerst — það skemmtilega við Evrópukeppni er að allt getur gerst. ’ ’ — Nú á Víkingur í harðri baráttu um Islandsmeistaratitilinn. Áttir þú von á jafngóöum árangri eftir að Víkingur missti tvo helstu leikmenn sína? „I haust, þegar ég mat stöðuna, taldi ég aö Víkingur myndi veröa með 1 til 2 stigum minna en nú er aö Islandsmót- inu hálfnuðu. Hvað þetta varðar þá er ég ánægður. Hins vegar hefur liðið ekki náð að sýna sitt rétta andlit — við getum bætt talsvert við okkur og ætlum okkur fyrsta sætið.” Það eru gerðar miklar kröfur í Víkingi og það á að gera kröfur. Þess vegna förum við ávallt með því hugarfari að sigra — hvort heldur í Islandsmótinu eða í Evrópukeppni,” sagði Árni Indriðason. kaup á f jórum leikmönnum fyrir þetta keppnistímabil þar á meðal júgóslavneska landsliösmanninninum Zlobodan Matinovic. „Lið Teka leikur mjög skemmtileg- an handknattleik og er óstöðvandi þegar best lætur. Hins vegar hefur lið- ið ekki náð sér fullkomlega á strik í haust og hefur árangur liðsins valdið vonbrigðum. Þannig var þjálfari liðs- ins rekinn fyrir stuttu,” sagði Sigurður Gunnarsson en spánska liðið virðist nú vera að finna taktinn því að í fyrsta leiknum, sem það lék eftir brottrekstur þjálfarans, vánn liðið stóran sigur. „Víkingur á góða möguleika á að sigra Teka og komast áfram í aðra um- ferð en til þess þarf Víkingur á stuðn- ingi áhorfenda og toppleikjum að halda,” sagði Sigurður. Lið Víkings er nú blanda af ungum og reyndari leikmönnum. Það varð lið- inu nokkur missir að missa stórskyttur sínar frá síðasta keppnistímabiii, þá Þorberg Aöalsteinsson til Svíþjóðar og Viggó Sigurðsson sem lagt hefur skóna á hilluna eftir mjög litríkan feril. Þá missti liöið einnig Ellert Vigfússon markvörð til Vals en í staöinn er Páll Björgvinsson í þeirra herbúðum. Með þá Pál, Hilmar Sigurgíslason, Karl Þráinsson, Steinar Birgisson og Guð- mund Guðmundsson, auk hinna ungu leikmanna Siggeirs Magnússonar og Bjarka Sigurössonar, má þó ljóst vera að liðiö er langt frá því að vera auð- sigrað eins og lið Teka rekur sig von- andi á á sunnudaginn. -fros föstudaginn 1. november. Öll innlend og erlend . / Næturhólf — £ Símanúmeríð er óbreytt, 78855. Verið velkomin, það er alltaf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.