Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1985, Page 21
DV. FIMMTUDAGUR 31. OKTOBER1985.
21
íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
;um Frakka gegn Lúxemborg í gær
aland fyrr i haust.
Sovét
æti í lokakeppni HM
hægt aö slá því föstu að Danir fylgja
Sovétríkjunum í lokakeppnina því
markatala þeirra er miklu betri. -fros
Pálmar og ívar unnu ÍR
— Pálmar skoraði 41 stig og ívar Webster 22 þegar Haukar unnu ÍR, 85:76, í gærkvöldi í jöfnum leik
Þeir Pálmar Sigurðsson og ívar
Webster skoruðu 63 stig samanlagt af
85 stigum Hauka þegar Haukar sigr-
uðu ÍR-inga í gærkvöldi í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik með 85 stigum
gegn 76. Staðan í leikhléi var 44:42,
Haukum í vil.
Staöan var 73—72, þegar 5 mínútur
voru eftir af leiknum en á lokasprettin-
um voru Haukar sterkari og náðu aö
tryggja sér sigur. Þeir Pálmar og Ivar
voru þeir tveir menn sem iR-ingar
réðu ekkert viö og þá sérstaklega
Pálmar sem skoraði 41 stig og hitti
hreint ótrúlega vel allan leikinn. Ivar
Webster hirti mikið af fráköstum og
skoraði einnig 22 stig.
Leikur liðanna var mjög jafn allan
timann og það var ekki fyrr en á loka-
mínútunum að Haukar náðu að síga
fram úr. iR-ingar léku á köflum mjög
vel og greinilegt er að liðið hefur burði
til að vinna flest liðin í úrvalsdeildinni.
Karl Guölaugsson fór á kostum í þess-
um leik, kom ekki inn á fyrr en um tíu
mínútur voru af leiknum en skoraöi
engu að síður 25 stig, öll með glæsi-
legum langskotum. Um tíma í síðari
hálfleik var leikurinn nánast einvígi á
milli Pálmars og Karls.
Eins og áður sagði var leikurinn
mjög jafn. Sjá mátti tölur eins og 6—7,
22-15, 35-32, 36-36, 40-40, og 44-42
í leikhléi. I síðari hálfleik: 51—51, 57—
58,71-67,73-70,73-72,79-74 og 85-
76 í lokin.
Pálmar Sigurösson og Ivar Webster
voru algerir yfirburðamenn hjá Hauk-
um og aðrir leikmenn liðsins komu
nánast ekkert við sögu. Hittni Pálmars
var fróbær og enginn leikmaður hefur
skorað fleiri stig í úrvalsdeildinni í
vetur og í einum leik en Pálmar í gær-
kvöldi.
Hjá IR voru þeir Karl Guölaugsson
og Ragnar Torfason bestir. Karl hitti
mjög vel og Ragnar lék af mikilli yfir-
vegun og skynsemi allan leikinn. Karl
skoraði 25 stig og Ragnar 18. Jón örn
Guðmundsson og Hjörtur Oddsson áttu
góða kafla og sömu sögu er að segja
um þá Jóhannes K. Sveinsson og Vigni
Hilmarsson.
Stig Hauka:
Pálmar Sigurðsson 41, Ivar Webster
22, Henning Henningsson 9, Olafur
Rafnsson 9, Viðar Vignisson 2, og
Eyþór Árnason 2.
StiglR:
Karl Guðlaugsson 25, Ragnar Torfa-
son 18, Jón örn Guðmundsson 12,
Hjörtur Oddsson 8, Jóhannes K.
Sveinsson 7, Björn „nagli” Steffensen
4 og Vignir Hilmarsson 2.
Leikinn dæmdu þeir Kristinn
Albertsson og Kristbjöm Albertsson.
Dæmdu þeir félagar mjög vel og betri
dómgæsla hefur varla sést í vetur.
Ribe tapaði sinum fyrsta leik í 1.
deildinni dönsku um helgina en hcldur
þó f orustunni í deildinni. Það var Holte
sem sigraði Ribe, 22—20, eftir að Ribe
hafði þrjú mörk yfir í hálfleik, 11—8.
Við sigurinn náði Holte Ribe að stigum
en hefur leikið einum leik meira. And-
ers Dahl-Nielsen var markahæstur
leikmanna Ribe, skoraði sex mörk.
Eitt vítakast.
Gunnar Gunnarsson skoraði fjögur,
einnig Ole Lauridsen. Gísli Felix
Bjarnason stóð í marki Ribe fyrstu 45
mínúturnar. Staðan þá 16—13 fyrir
Holte. Þá kom Mogens Jeppesen í
Gaman er að sjá Kristbjöm aftur í
slagnum og vonandi fær hann fleiri
leiki að dæma á næstunni. -SK.
markið, gamli landsliðskappinn, og
það fyrsta sem hann gerði var að verja
vítakast frá Michael Berg.
Að sögn dö tsku blaðanna átti Gísli
Felix mjög góðan leik i marki Ribe og
liðið stendur best í vígi hvað mark-
verði snertir, allra dönsku liðanna.
Eftir leikinn sagði Mogens Jeppesen.
„Mér fannst við ekki heppnir með
dómarana lokakafla leiksins.”
Ribe er efst með 6 stig eftir 4 leiki,
markatalan 88—71. Holte hefur einnig
6 stig en eftir 5 leiki. Skovbakken og
meistarar Helsingör hafa 4 stig eftir 3
leiki. hsím.
Ribe enn efst
VIDED
Tilbúið
til
afgreiðslu:
kmm
VIDED
mmwooi
5Í -
aöniv «(í
<wsws»
i 1 ■JffS
t>axmm&ÚÍX\YUX SMARrj.
; rtxri
Vinsamlega hafið samband
við skrifstofu okkar sem fyrst.
Takmarkað upplag.
Opið frá kl. 9.00-17.00, sími 38150.
Tilbúið
til
afgreiðslu
7.
nóvember:
mtceur
laugarásbiö eae
MYNDBANDALEIGUR! 61ð
Nýtt efni komið, sama hagstæða verðið. _viDEO