Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Page 2
2
DV. FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986.
STOR
ÚTSALA
hófst í morgun
Alltað
60%
afsláttur.
Kjólar
Úlpur Kjólar
Úlpu*
^Buxuí
Útigallar
Valborg
Laugavegi 83, sími 11181.
Röntgentæknar hættir störf um:
„Ástandié að
verða bölvað
segir Ásmundur Brekkan yf irlæknir
„Ástandið á deildinni fer að verða
bölvað. Þetta getur ekki gengið
nema örstuttan tíma,“ sagði As-
mundur Brekkan, yfirlæknir á
röntgendeild Landspítalans
Röntgentæknar, sem voru í fullu
starfi á röntgendeild spítalans,
hættu störfum um áramót. Það eru
átta einstaklingar. Stöðugildi rönt-
gentækna á deildinni eru fjórtán,
þeir sem eru eftir eru í hálfu starfi.
„Þær sem hættu voru allar í
lykilstöðum þannig að ástandið er
slæmt,“ sagði yfirlæknirinn.
„Ástæðan fyrir uppsögnunum er
m.a. misræmi á launum milli hjúk-
runarfræðinga og röntgentækna,"
sagði Ágústa Halldórsdóttir, for-
maður Röntgentæknafélagsins.
Uppsagnaraðilar sögðu upp með
þriggja mánaða fyrirvara. Fyrir-
hugað var, af hálfu þeirra flestra,
að endurráða sig í hlutastarf. En
sú ráðstöfun var ekki tekin gild.
„Þetta er uppsögn á samningi,"
sagði Indriði H. Þorláksson hjá
launadeild fjármálaráðuneytisins.
„Við höfum hvorki vilja né getu til
að gera breytingar á sérkjarasamn-
ingum. Samningar eru lausir og við
stöndum í samningaviðræðum við
BSRB og aðildarfélögin," svaraði
hann, spurður um viðræður við
röntgentækna. „Ég býst við að
stjórn spítalans ráði í þessar stöð-
ur.“ - ÞG
HNATTBARIR
Verð kr. 8.980
Taflborð og stólar
Borð kr. 7.900,-
Stóllkr. 3.800,-
Bar kr. 9.680,-
pólsturgorðin
GARÐSHORN
Suðurhlíð, Fossvogi,
símar 40500 & 16541
Franski utanríkisráðherrann kveður fyrir brottför á Reykjavíkurflug-
velli.
DV-mynd KAE.
Franski varautanríkisráðherrann íReykjavík:
„Mikill áhugi á
aukinni samvinnu’7
Jean-Michel Baylet, franski vara-
utanríkisráðherrann, gerði stuttan
stans í Reykjavík í gær og fyrradag.
Hitti hann íslenska frammámenn að
máli, „svona til að bæta samvinnu
landanna" eins og hann orðaði það
síðdegis í gær er hann hélt af landi
brott í einkaþotu.
Þetta er í fyrsta skipti í fimmtán
ár sem fulltrúi frönsku ríkisstjómar-
innar kemur hingað til lands og sagði
Baylet þetta eins konar vinnuheim-
sókn. Hann hitti að máli utanríkis-
ráðherra og ræddu þeir ástand og
horfur í alþjóðamálum, aðild að
NATO og vamarmál. Einnig hitti
hann iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Var þar rætt um nauðsyn þess að
auka viðskiptatengslin, meðal ann-
ars með útflutningi Islendinga á
sjávarafurðum til Frakklands.
Þá hitti hann og Vigdísi Finn-
bogadóttur sem hann sagðist reyndar
hafa hitt áður í heimsókn hennar til
Frakklands 1983.
Þá nefndi Baylet að í ár væru 50
ár liðin frá skipbroti Pourqua pas
við íslandsstrendur. Sagði hann að
þess yrði minnst í Frakklandi með
mikilli sýningu í París. í tengslum
við það kæmi skip úr franska flotan-
um til íslands.
Einnig nefndi Baylet að mikill
áhugi væri á því í Frakklandi að
auka menningartengsl landanna
tveggja.
KÞ
Símon Önnu ekki
í Duran Duran
DV fræddi lesendur sína á kvenna-
málum hins fræga söngvara Duran
Duran, Simon LeBon, í fyrradag. Þar
var stuðst við heimildir bresks blaðs
sem m.a. greindi frá því að Anna
Bjöms fyrirsæta hefði verið með
Símoni þessum í hálft annað ár.
Blaðið sagði Önnu raunar sænska
en DV leiðrétti þann misskilning.
Vegna þessa hafði Anna Bjöms
samband við DV og upplýsti að þama
hefði nágrönnum okkar enskum
orðið á í messunni. Að sönnu ætti
hún sér vin sem kallaði sig Símon,
en ekki Símon LeBon heldur Símon
LeBonbon. Sá er búktalari í New
York og óskyldur nafna sínum. Anna
sagði raunar að þetta væri ekki í
fyrsta skipti sem þessi ruglingur yrði.
Þessu er hér með komið á framfæri.