Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Blaðsíða 29
DV. FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986.
29
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
,$andm, Sandm,
jólasveinninn
er örugglega
undir borðimd“
1 fatahengi Þjóðleikhúskjallarans
mætir okkur iðandi og hrópandi
krakkakös með dökkklædda kerl-
ingu í fararbroddi. Hraðinn á fylk-
ingunni er ógnarlegur og það eina
sem bjargar kerlu og öðrum hæg-
gengum af fullorðnu gerðinni frá því
að troðast undir er hæðin á þátttak-
endum í hlaupinu. Þau eru öll ákaf-
legu stutt í annan endann og minna
einna helst á maura sem stefha hrað-
byri á yfirgefinn ostbita.
Á staðnum er síðasta jólatrés-
skemmtunin þessi jólin og starfs-
menn Þjóðleikhússins eru mættir til
leiks með afkomendur og aðra
vandamenn.
Nornin Sandra úr barnatíma sjón-
varpsins var í heimsókn leitandi að
jólasveininum og naut dyggilegrar
aðstoðar barnaskarans sem áður
sagði. Sveinki fannst, börnin gátu
andað léttara og ekki þótti verra
þegar hann hófst handa við að út-
deila sælgætispokum til gestanna.
Jólatréð var hringgengið hraustlega
sem vera ber á slíkum samkomum
og sungið með til að halda uppi
hraðanum.
-baj
Starfsmenn mættu á staðinn - Sigurður Sigurjónsson með tvær prúðbúnar smákvensur.
Skemmtanir af þessu tagi geta verið ógnvekjandi fyrir suma aldurs-
flokka. Það er margt að hræðast - skeggjaða jólasveina, hryllilegar
nornir og aðrar torkennilegar furðuverur. Honum leist svona mátulega
á nornina Söndru þeim stutta. DV-myndir PK
Og ekki batnaði það - dýr af öllum mögulegum gerðum! Henni fannst
vissara að halda sig i hæfilegri fjarlægð þrátt fyrir vinalega framkomu
hoppandi ioðdýranna.
æðruleysi.
Ballerínur eignast líka börn. Helga Bernharð með ungviði.
Arnar Jónsson i jólatrésgöngu
það var sungið við raust.