Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Side 14
DV. FIMMTUDAGUR 9. JANÚÁR1986.
14
Spurningin
Sérð þú eftir þáttunum
Fastir iiðir eins og
venjulega?
Gunnar Björnsson húsvörður:
Nei, ég sé ekkert eftir þeim. Ég horfði
á þá einstaka sinnum, mér fannst
þeir ekki nógu jákvæðir eða
skemmtilegir. Þeir höfðuðu ekki til
mín.
Anna Rún nemi: Jahá, ég sé sko
eftir þeim. Ég horfði ekki á þá alla
en fannst þeir sem ég sá mjög góðir.
íris Sigurðardóttir nemi: Já, ég sé
mjög mikið eftir þeim. Ég sá flestalla
þættina og fannst þeir ofsalega góðir.
Ægir Jóhannsson nemi: Nei, það
geri ég ekki. Efniviðurinn var ágæt-
ur en allt of útþynntur til að vera
skemmtilegur. Afmn og fyrirmynd-
arhúsbóndinn og margt fleira var svo
ofnotað að ég var alltaf farinn að
geispa í miðjum þætti.
Dagný Vilhjálmsdóttir, vinnur í
prentsmiðju: Ja, þeir voru ágætir.
Ég sá þá alla og mér finnst alveg
mega vera svona íslenskir skemmti-
þættir með íslenskum húmor.
Elías Jónsson ellilífeyrisþegi: Ég
held ég verði að segja nei. Þetta var
allt svo ofleikið.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Ekki er allt reykvískt gott
Ónafngreindar skrifa:
Hæ, hæ! Við erum hér tvær úr
Tungunum og viljum koma áríð-
andi skilaboðum til landsmanna.
Áður en við gerum það ætlum við
að taka fram að enginn má bendla
okkur við unglingspíur þær sem
stundum eru nefndar „grúppíur"
og hafa það markmið eitt að gera
hosur sínar nóglega grænar fyrir
æðislegustu hljómsveitargæjunum.
Nei, við erum ráðsettar stúlkur
og höfum það markmið eitt að
koma áriðandi skilaboðum til
landsmanna sem virðast ekki hafa
veitt því athygli að fram er komin
hljómsveit sem slær öllum öðrum
íslenskum hljómsveitum við og þá
ekki síður Duran Duran og Wham
og Culture Club.
Þessi hljómsveit er frá Akureyri
og það er kannski skýringin á því
af hverju aldrei er spilað neitt með
henni í útvarpinu. Reykvíkingar
Fram er komin hljómsveit sem að sögn bréfritara slær öllum öðrum
íslenskum hljómsveitum við.
halda nefnilega alltaf að allt, sem
gott er, komi úr næsta nágrenni
og umfram allt ekki frá Akureyri.
Svo þegar eitthvað gott kemur frá
Akureyri þá má bara ekki viður-
kenna það af því að Akureyri er
mesti óvinabær Reykjavíkur og sá
bær sem helst ógnar veldi höfuð-
borgarinnar.
Sukk og svínarí viljum við tvær
úr Tungunum segja. Tökum sem
dæmi lagið Steini. Honum líður
alveg stígvél en samt er eins og
enginn vilji kannast við það.
Hvernig væri að rás tvö reyndi að
bæta ráð sitt og gera Aðalsteini
almennileg skil í vandaðri þátta-
röð? Þá myndu Reykvíkingar
kannski viðurkenna tilvist ann-
arra menningarstaða landsins.
Það er ósköp skiljanlegt að
hljómsveitir utan af landi eigi erfitt
með að vinna sér sess þegar þær
eru gjörsamlega sniðgengnar í
reykvískum fjölmiðlum.
STÖÐUM
annski hef ég stundum
rugðið yfir mig kápu fífls-
ins.
Viðtal við Flosa
lÓlafsson.
Manngervlar:
Ertu uppi, niðri, plussi, furi,
bongó- og gæruliði eða
fokkerliði? Nákvæm sund-
urliðun og greining inni í
laðinu.
m Lifsreynsla
30 árum síðar í öðru landi
Marinó Jóhannsson segir
frá merkilegri tilviljun.
Snillingurinn
lllugi Jökulsson heldur
áfram með greinaflokk sinn
Ég man það eins og það
hefði gerst í gær.
Sakamálasaga
í hverri Viku.