Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Blaðsíða 6
6
DV. FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986.
Hárgreiðslustofa
AGNESAR EINARS,
Hjallaseli 5-sími 77233.
Opið á laugardögum.
Kerastes hársnyrtivörur.
Sólbekkur.
V/SA
Opið 6 laugardögum
PANTANIR
SÍMI13010
VISA
KREDIDKOR TAÞJONUS TA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
KLAPPARSTÍG 29.
VHSIASAUR
OGVHTHGM
Vid höfum vistlega og þægilega
veislusali fyrir 10-120 manns.
Salirnir henta vel fyrir rádstefnur
og hvers konar samkvæmi, t.d.
árshátídir, brúdkaupsveislur o.fl.
Allar veitingar.
UeftÍAooliú/ié
GAPt-mn
V/RE YKJA NESBRA U T, HA FNA RF/Rfíl
SÍMAR 54477, 54424
TOYOTA
Opið á laugardögum
kl. 13.00-17.00
Verð
Toyota Coaster disil árg. '82, 19 m. rúta.....820.000
Toyota Land-Cruiser dísil árg. '82 (3 stk.)...800.000
Toyota HI-LUX árg. '82, bensín, yfirbyggður ..670.000
Toyota HI-LUX 4x4 pallbíll, bensín, árg. '85..595.000
Toyota Land-Cruiser bensin, árg. '86 ..........915.000
Toyota Tercel árg. '85, 4x4....................565.000
Toyota Crown dísil árg. '80....................325.000
Toyota HI-ACE bensin, árg. '81, sendibill......340.000
Toyota Carina GL árg. 082, sjálfsk.,.........340.000
Range Rover árg. '84, 4ra dyra, sjálfsk....1.500.000
Mitsubishi L-200 árg. '82, yfirbyggður.......480.000
Mazda 929 árg. '81 ............................280.000
Mazda 323 1500 árg. '82........................275.000
SAAB 900 GL árg. '82, vökvastýri...............425.000
Lada Sport árg. '84............................305.000
Daihatsu Charmant árg. '79 (2 stk.)............160.000
Subaru 4x4 árg. '80............................250.000
Cortina árg. '79 ..............................140.000
Galant árg. '82 ...............................320.000
TOYOTA
Nýbýlavegi8 200 Kópavogi S. 91-44144
Neytendur Neytendur Neytendur
Heimilistryggingar
Allt að 40% munuráið-
gjöldum af heimilistryggingum
Engin heimili geta án trygginga
verið og eru heimilistryggingar nú
orðnar fastar í sessi og ganga öll
tryggingafélögin út frá svipuðum
staðli og sömu verðskrá. Þrátt fyrir
það eru iðgjöldin nokkuð mismun-
andi frá einu félagi til annars, en í
gjaldskrá er gerður munur á stein-
húsum og timburhúsum, auk þess
sem mismunur er á iðgjöldum sem
greidd eru á höfuðborgarsvæðinu og
stærri þéttbýliskjörnum annars veg-
ar og dreifbýli hins vegar. Þessi
mismunur stafar af því að í dreifbýli
reiknast 15-20% brunavarnaafslátt-
ur vegna minni og ótryggari bruna-
varna og kemur hann þá til samsvar-
andi hækkunar á iðgjöldum.
Neytendasíðan leitaði upplýsinga
hjá átta tryggingafélögum og var
miðað við að tryggingarupphæðin
næmi 1000.000 kr. Niðurstaða könn-
unarinnar sést í meðfyigjandi töflu,
þar sem tekin eru iðgjöld af stein-
húsum og timburhúsum í þéttbýli.
Auk iðgjaldsins, sem er 2,1 prómiii
af steinhúsum en víðast hvar hærra
af timburhúsum, bætast við sölu-
skattur, stimpilgjald og viðlaga-
trygging og sýnir taflan þá heildar-
upphæð sem tryggingataki kemur til
með að borga á hverju ári.
í tilfellum sem þessum er betra að
vera vel tryggður.
Tryggingafélag steinhús timburhús
Trygging h/f 3.062,- 3.937,-
Almennar tryggingar 3.663,- 4.537,
Trygginga- og tjónaþjónustan 2.800,- 3.320,-
Reykvísk endurtrygging 2.800,- 2.800,-
Sjóvá/Hagtrygging 3.283,- 4.228,-
Brunabótafélagið 2.935,- 3.935,-
Samvinnutryggingar 3.538, 3.538,-
Ábyrgð h/f 2.700,- 2.700,-
Fasta eða 350 hita-
einingar á dag?
Nú erum við byrjuð í megrun. Rifj-
um aðeins upp listann góða sem
birtur var á neytendasíðu DV sl.
miðvikudag.
1. Magurtkjöt
2. Kjúklingar og kalkúnar
3. Magur fiskur
4. Egg
5. Magrar mjólkurafurðir eins og
kotasæla og skyr
6. Að minnsta kosti 8 glös af vatni
ádag
Drekka má eins mikið af kaffi og
te án mjólkur, rjóma eða sykurs og
hver víll. Auk þess er leyfilegt að
drekka sykurlausa gosdrykki, nota
gervisætuefni, salt, pipar og annað
líkt krydd.
ALLT ANNAÐ ER ÓLEYFILEGT
-EF ÞAÐ ER EKKI Á LISTANUM
ER ÞAÐ ÓHEIMILT!
Brennir hitaeiningum
Það sem borðað er í þessum meg-
runarkúr er eingöngu eggjahvítu-
efni. Vegna efnaskipta í líkamanum
brennirðu upp fleiri hitaeiningum í
þessum kúr en þú innbyrðir eða í
öðrum kúrum þar sem neytt er færri
hitaeininga.
Með því að vera á þessum kúr
geturðu losnað við allt að 275 hita-
einingar á dag. Þannig gengurðu á
fituforða líkamans og þess vegna
léttist þú.
Líkaminn losar sig við fituforðann
bæði í gegnum lifrina og nýrun og
notar blóðið við flutninginn. En við
skulum sleppa öllum flóknum út-
skýringum hér. I snarheitakúrnum
léttistu hraðar ef þú borðar aðeins
til þess að seðja hungrið í stað þess
að belgja þig út eins og þú hefur
óroiðanlega gert áður. Þvf minnq
n
Sagt er að grunnurinn að offitu sé
lagður í æsku og því er mikils um vert
að reyna að stemma stigu við óhollu
mataræði barna og unglinga.
sem þú borðar þeim mun meira geng-
ur á forða líkamans.
Höfundar bókarinnar bendir okkur
á að þessi megrunarkúr er ekki neinn
undrakúr eða vísindaleg uppfinning
af hans hendi. Eggjahvítukúrar bofn
áður verið notaðir og gefist vel.
Vel þekkt leið til þess að ná af sér
nokkrum kg í grænum hvelli er að
fasta, þ.e. neyta ekki fastrar fæðu,
drekka aðeins vatn í stuttan tíma.
Það er sagt að eftir 18 klst. föstu
finnirðu ekki lengur fyrir hungur-
verkjunum.
Með þessu móti er hægt að losna
við frá 1 upp í 2-3 kg á tveim til þrem
dögum. Svona kúr má hins vegar
ekki standa lengur en í tvo til þrjá
daga nema undir lækniseftirliti.
í bókinni góðu eru ótal megr-
unarkúrar sem eru hálfgerðir föstu-
kúrar og eiga að gefa mjög góða
raun.
350 hitaeininga flugmannakúr
Það er ekki talið æskilegt að flug-
menn séu of þungir, jafnvel talið að
slíkt geti verið stórhættulegt. Því var
settur saman 350 hitaeininga kúr
sem kallaður er flugmannakúrinn:
Morgunverður: 1 harðsoðið egg(80
hitaein.), 1 glas undanrenna (90 hita-
ein.)
Hádegisverður: 100 g grænt salat
með hitaeiningalausri sósu (12 hita-
ein.)
Kvöldverður: 100 g magurt kjöt (160
hitaein.), 100 g grænt salat með hita-
einingalausri sósu (12 hitaein.)
Gleymið ekki að drekka vatn með
matnum og yfir allan daginn, ekki
minna en 8 glös, eða 2 lítra. Þar að
auki er heimilt að drekka eins mikið
af svörtu og sykurlausu kaffi og tei
og hver vill og sömuleiðis sykurlausa
gosdrykki. Ráðlegt er að taka alhliða
vítamín daglega.
Þessi kúr er ekki nema 354 hitaein-
ingar.
* ■ -’Anr. -A.Bj.