Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1986, Síða 11
DV. FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR1986.
11
Viðtalið
„Hægt að auka
útflutning á hugviti
77
— segir Ingvar B. Fríðleifsson, sem tekur við nýju starfi hjá Norræna
fjárfestingabankanum
„Ég kem til með að veita forstöðu
verkefnamatsdeildinni sem er ný
deild,“ sagði Ingvar B. Friðleifsson
jarðfræðingur í viðtali við DV. Ing-
var tekur við starfi aðstoðarbanka-
stjóra hjá Norræna íjárfestingar-
bankanum í Helsinki 1. júní nk. Hann
starfar hjá Orkustofnun og heíúr
verið forstöðumaður Jarðhitaskóla
Sameinuðu þjóðanna á íslandi fi-á
stofnun, 1979.
Ingvar hefur starfað að orkumálum
hjá Norræna fjárfestingarbankan-
um, Sameinuðu þjóðunum og Al-
þjóðabankanum.
Jarðfræðiprófi lauk hann frá St.
Andrews háskólanum í Skotlandi
1970 og doktorsprófi frá Oxford 1973.
Þá þegar hóf hann störf sem sérfræð-
ingur í jarðhitadeild Orkustofnunar.
Ingvar hefur verið stundakennari
við Háskóla íslands.
„Starf mitt verður fólgið í því að
athuga bakgrunninn að þeim verk-
eínum sem til athugunar eru, meta
tækni- og fjárhagshliðar verkefn-
anna,“ sagði Ingvar. Hann sagði að
NF væri að styrkja þennan þátt í
rekstri sínum með stofnun verkefna-
matsdeildarinnar. Deildin mun eiga
að styðja frekar við bakið á norrænu
þjóðunum til verkefnaöflunar utan
Norðurlandanna.
„Það eru umtalsverðir hagsmunir
þarna í húfi,“ sagði Ingvar um um-
fang jarðhitaverkefna í þróunar-
löndunum.
„Það verða athugaðir markaðir
fyrir þekkingu Norðurlandanna. Það
er fyrirhuguð mikil vinnsla á jarð-
hita og víða góðir markaðir. Um tíma
hefur hægt á orkuverkefnum vegna
lækkunar olíuverðs en það breytist
aftur. Ef rétt er á málum haldið er
hægt að auka mikið útflutning á
hugviti bæði héðan og frá öðrum
Norðurlöndum,“ svaraði Ingvar að-
spurður um m.a. markaðsmöguleika
okkar í þróunarlöndunum.
Ingvar hefur átt þátt í jarðhita-
rannsóknum víða um heim, m.a. í
Kína, Tyrklandi og Sýrlandi. Hann
hefur undanfarin ár ferðast um á
annan tug landa til fyrirlestrahalds
og rannsóknarstarfa.
Ingvar er kvæntur Þórdísi Árna-
dóttur blaðamanni. Þau eiga þrjár
dætur sem allar munu stunda nám í
sænskumælandi skóla í Helsinki
næsta skólaár. Jarðfræðingurinn
sagðist hafa mikinn áhuga á ferða-
lögum og klassískri músík auk jarð-
fræðinnar. Hann taldi breytingar á
sínum högum og fjölskyldunnar með
flutningum til Helsinki vera mjög
jákvæðar. „Það er öllum nauðsyn-
Innlendirannist
skuttogarana
Miðstjóm Málm- og skipasmiða-
sambands Islands skorar á stjórnvöld
að beita sér fyrir því að breytingar
og endurbætur á tíu skuttogurum
fari fram innanlands.
Komið hefur fram að í bígerð sé
að verulegar breytingar verði fram-
kvæmdar á tíu skuttogurum sem
smíðaðir voru í Japan. Bæði er ráð-
gert að stækka skipin og endurnýja
véla- og tækjabúnað þeirra.
Ákveðið hefur verið að eitt skip-
anna fari til útlanda til breytinga.
Áætlað kostnaðarverð á þeirri fram-
kvæmd erlendis er um 115 milljónir
króna. Miðstjórn MSl bendir á að
dýrmætur gjaldeyrir sparist verði af
þessum framkvæmdum innanlands
og þær stuðli að aukinni atvinnu.
Heildarkostnaður við breytingar
þessara tíu skipa mun vera rúmur
milljarður. Skortur hefur verið á
verkefnum hjá járniðnaðarfyrirtækj-
um og skipasmíðastöðvum. En
tæknilega eru þessi fyrirtæki vel í
stakk búin til að sinna fyrirhuguðum
breytingum á japönsku skuttogurun-
um. . ÞG
legt að skipta aðeins um umhverfi
öðru hvoru,“ sagði hinn nýskipaði
aðstoðarbankastjóri Norræna fjár-
festingarbankans - -ÞG
■■BHHI
• •
co
rn
O f
—r~~ ^
^|i
'Z.~m
Co
nrj
VOiámk
to
* ■
I
inez
KJÖRBÓK
KJORBOKINA
SEMUR ÞÚ SJÁLFUR
SÉRSTÖK VIÐBÓTARHÖFUNDARLAUN FYRIR
ÁRIÐ 1985 LÖGÐUST VIÐ UM ÁRAMÓT.
JF7
/;_J rið 1985 var óvenjulegagott bókaár,-og ekki síst Kjörbókarár. Kjör-
bókareigendur vissu að Kjörbókin var góður kostur til þess að ávaxta sparifé:
Peir vissu að hún bar háa
vexti.
Þeir vissu að samanburður
við vísitölutryggða reikn-
inga var trygging gagnvart
verðbólgu.
Peir vissu að innstæðan
var algjörlega óbundin.
Þeir voru vissir um að þeir
fjárfestu varla í betri bók.
En þeir vissu samt ekki um
vaxtaviðbótina sem lagðist
við um áramótin. Svona er
Kjörbókin einmitt: Spenn-
andi bók sem endar vel.
Við bjóðum nýja sparifjár-
eigendur velkomna í Kjör-
bókarklúbbinn.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
^ANDSBANKI
ÁUSl'l TTSTR/H TI
ÍSLANDS
n' KEYKJAVÍK